
Lög og regla

Fangelsi fyrir umferðalagabrot
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi tuttugu og þriggja ára mann í þriggja mánaða fangelsi í gær fyrir að hafa tíu sinnum á fimm mánuðum gerst brotlegur við umferðarlög. Hann var réttindalaus í öllum tilvikum og nokkrum sinnum ók hann líka of hratt.
Ár fyrir að stela bát
Maður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að hafa í apríl stolið 18 feta Sea Rover rörabáti og Suzuki-utanborðsmótor að verðmæti samtals um 3.770.000 krónur.
Bílþjófar fengu aðstoð lögreglu
Athugull vegfarandi sem átti leið fram hjá Seyðishólum í Grímsnesi í nótt sá þar til tveggja manna, sem voru að bjástra við að skipta um dekk á bíl, en fórst það illa úr hendi. Hann lét lögregluna á Selfossi vita sem fór á vettvang og kom þá ýmislegt í ljós.

Stakk mann fjórum sinnum
Tveir menn, nítján og tuttugu ára, hafa verið ákærðir, annar fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, fyrir framan Broadway í Ármúla í september í fyrra. Annar mannanna stakk þolandann fjórum sinnum með hnífi víðs vegar um líkamann. Aðalmeðferð í málinu var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Dæmdur fyrir umboðssvik
Jón Ragnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Lykilhótela, var í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. En hann tók 37 milljóna króna lán í nafni félagsins hjá Framkvæmdasjóði Íslands.

Flutti inn fíkniefni í vösunum
Tæplega fertugur maður hefur verið ákærður fyrir innflutning á tæpu kílói af kókaíni og tæpu kílói af amfetamíni. Hann var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þegar hann var að koma hingað til lands í maí.

Flugeldasalar sæki um fyrir 10. desember
Frestur til að sækja um tímabundið leyfi til smásölu flugelda rennur út 10. desember. Leyfi eru veitt að uppfylltum skilyrðum ákvæða vopnalaga og gildandi reglugerðar. Ströng skilyrði eru sett um húsnæði, tryggingar og geymslu flugeldanna. Sala hefst 28. desember og má standa til 6. janúar. Meðferð flugelda er einungis heimil á því sama tímabili.

Breiddi yfir haus eftir íkveikju
Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kveikt í fjölbýlishúsi í Breiðholti í Reykjavík í mars árið 2003. Maðurinn kveikti í geymslum í kjallara fjölbýlishúss sem hann bjó sjálfur í.

Sjálfsvíg fátíð í fangelsum
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir ekki hafa legið fyrir beiðni um innlögn á geðdeild hjá stofnuninni vegna þrítugrar konu sem svipti sig lífi í fangelsinu á mánudagsmorgun. Hann segir sjálfsvíg í íslenskum fangelsum mjög fátíð. Ekki hafði verið framið sjálfvíg í íslensku fangelsi í sex ár þegar konan svipti sig lífi.
Angólsk kona í fangelsi
Angólsk kona var í Héraðsdómi Reykjaness dæmd í tveggja mánaða fangelsi fyrir þrjú skjalafalsbrot.

Lést eftir högg á kjálka
Flemming Tolstrup, danski hermaðurinn, lést aðfaranótt laugardags af völdum heilablæðingar sem varð við högg á hægri kjálka samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Scott Ramsay, knattspyrnumaður í liði Keflavíkur, hefur játað að hafa veitt Flemming höggið á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík.
Strokufangi áfram í gæsluvarðhaldi
Gæsluvarðhald yfir nítján ára pilti, sem ákærður er fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki í byrjun september, hefur verið framlengt þar til dómur fellur en þó ekki lengur en til 4. janúar. Aðalmeðferð í málinu verður í lok mánaðarins.

Bruninn kostaði 73 milljónir
Kvikmyndafyrirtækið Sögn var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmt til að greiða Síldarvinnslunni 73,4 milljónir króna vegna bruna sem varð í frystihúsinu í Neskaupstað þegar myndin Hafið var tekin upp, í byrjun desember árið 2001.
Hasslyktin kom upp um þá
Fíkniefni fundust í bíl þriggja pilta, sautján og átján ára að aldri, í Grundarfirði í fyrrakvöld.
Stakk mann í ölæði
35 ára kona hefur játað að hafa stungið sambýlismann sinn í bakið á Kleppsvegi um klukkan fjögur í fyrrinótt. Hann var fluttur á sjúkrahús eftir hnífsstunguna sem fór í herðablað hans og féll annað lunga hans saman.

Lögreglumaður dæmdur í fangelsi
Hallur Hilmarsson, fyrrum fíkniefnalögreglumaður, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt og brot í opinberu starfi. Hann dró sér 870 þúsund krónur sem lögreglan hafði tekið við rannsókn fíkniefnamáls. Hallur var næstráðandi í fíkniefnadeildinni í Reykjavík þegar hann braut af sér.
Óvenju mikið um fíkniefni
Óvenjumörg fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Hafnarfirði um helgina. Um klukkan 16.30 á laugardag voru þrír piltar í bíl stöðvaðir. Í ljós kom að allir voru með kannabisefni á sér og farþegarnir tveir undir áhrifum. Piltarnir gengust við efnunum og var sleppt að yfirheyslunni lokinni.

Játar að hafa slegið Danann
Tæplega þrítugur Skoti, búsettur hér á landi, hefur játað að hafa slegið danska hermanninn Flemming Tolstrup höfuðhöggi á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík aðfaranótt laugardags. Daninn missti meðvitund við höggið og lést skömmu síðar. Skotinn var látinn laus klukkan hálf þrjú í gær en hann hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til í dag.
Þriggja bíla árekstur
Harður þriggja bíla árekstur varð við Lyngholt á milli Akranes og Borgarnes um klukkan sex í gær. Á meðan lögregla var á vettvangi fóru tveir bílar, sem komu að, út af og þurfti að flytja einn farþeganna á sjúkrahúsið á Akranesi.
Gripnir við að flagga
Dalvísk ungmenni skemmtu sér við það aðfaranótt sunnudags að flagga á frumlegan hátt í bænum
Játuðu smyglið
Hollensk kona og þrítugur maður hafa játað innflutning á 200 til 300 grömmum af kókaíni. Lögreglan vill ekki staðfesta magn efnisins að svo stöddu. Konan faldi kókaínið í leggöngum sínum þegar kom til landsins.
Hrina árekstra í Reykjavík
Nokkuð var um árekstra í Reykjavík í gær að sögn lögreglu. Rétt eftir miðnætti varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Ljósvallagötu og Ásvallagötu. Við Norðurbrún var ekið á bifreið en tjónvaldur hvarf af vettvangi. Um níuleytið á sunnudagsmorgun rákust tveir bílar saman á Vesturlandsvegi en tjón var óverulegt.
Hraðakstur á Ólafsfirði
Tíu ökumenn voru stöðvaðir í Ólafsfjarðargöngum á laugardag fyrir hraðakstur, við sameiginlegt umferðareftirlit lögreglu á Ólafsfirði og í Dalvík.
Félagar Skotans niðurbrotnir
Félagar Skotans sem veitti danska hermanninum Flemming Tolstrup banahögg aðfaranótt laugardags segjast niðurbrotnir.
Þrjár bílveltur í mikilli hálku
Þrjár bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gærmorgun. Allar bílvelturnar urðu vegna ísingar og hálku, en á svæðinu var rigning og þíða sem breyttist strax í krapa og ísingu á veginum.
Málið sent saksóknara
Lögreglurannsókn á líkamsárás í Öxnadal aðfaranótt fimmta ágúst er lokið og verður málið sent ríkissaksóknara eftir helgi. Sá grunaði er talinn hafa barið annan mann með hafnaboltakylfu í höfuðið þannig að hann slasaðist alvarlega.
Krefst refsingar
Aðalmeðferð var í máli gegn Jóni Ragnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Lykilhótela, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Jón var ákærður af ríkislögreglustjóra fyrir umboðssvik um 37 milljón króna lán í nafni Lykilhótela.

Krefst um eins árs fangelsis
Saksóknari krafðist þess að tuttugu og eins árs maður, sem framdi vopnað bankarán í útibúi Búnaðarbanka Íslands á Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember fyrir ári síðan, fengi í kringum tólf mánaða fangelsisdóm. Aðalmeðferð málsins lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Áfram í varðhaldi
Gæsluvarðhald hefur verið framlengt um tvær vikur yfir manni sem handtekinn var í lok október vegna rannsóknar á einu stærsta fíkniefnamáli síðari ára. Maðurinn var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok október.

Dómur hvatning fyrir fórnarlömb
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í einkamáli konu gegn þremur karlmönnum er einstæður hér á landi. Hann getur verið hvatning til fórnarlamba nauðgara um að leita réttar síns, þótt ákæruvaldið telji ekki næg efni til ákæru.