Lög og regla

Fréttamynd

Margar leiðir til að finna fólk

Smári Sigurðsson, hjá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra, segir beiðni ekki hafa borist frá utanríkisráðuneytinu um aðstoð við að reyna að hafa uppi á þeim Íslendingum sem hugsanlega gætu verið á hættusvæðum í Asíu. Ekki er vitað hvar tólf Íslendingar eru niðurkomnir í Asíu. Fjórir eru taldir hafa getað verið á hættusvæðunum.

Innlent
Fréttamynd

Sækja sænska ríkisborgara

Flugvél frá Loftleiðum, leiguflugsfyrirtæki Flugleiða, fór frá Keflavíkurflugvelli í gær til að sækja sænska ríkisborgara til eyjarinnar Phuket í Taílandi að beiðni sænskra stjórnvalda.

Innlent
Fréttamynd

Þjófurinn skilaði veskinu

Veski sem stolið var af konu í Bónusversluninni í Hafnarfirði fyrir jól og innihélt meðal annars mikilvæg læknisgögn um ungan son hennar er komið í leitirnar. 35 ára kona sem stal því kom á lögreglustöðina í Hafnarfirði í gærkvöldi og skilaði því ásamt kortum, skilríkjum, síma og öðrum verðmætum sem voru í veskinu.

Innlent
Fréttamynd

Mikið af falsaðri merkjavöru

Aukið eftirlit hefur skilað sér í því að hundruð kílóa af falsaðri merkjavöru voru haldlögð á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Brot á lögum um vörumerki geta varðað fangelsi allt að þrjá mánuði. Fölsun merkjavarnings er mjög víðtækur og skipulagður iðnaður í heiminum.

Innlent
Fréttamynd

Rólegt hjá lögreglu

Mjög rólegt var yfir öllu skemmtanahaldi í gærkvöldi eftir óvenju mikinn eril hjá lögreglu víða um land í fyrrinótt vegna drykkjuláta fram eftir allri nóttu. Það virðist því vera að vinnuvikan hafi hjá mörgum hafist degi seinna en almanakið gerir ráð fyrir því ástandið í gærkvöldi og í nótt var líkara því sem gerist aðfararnætur mánudaga.

Innlent
Fréttamynd

Umboðsmaður segir lög brotin

Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðuneytið hafi brotið lög með úrskurði sem staðfesti synjun fangelsisyfirvalda á umsókn fanga um dagsleyfi.

Innlent
Fréttamynd

Tvö fíkniefnamál í Hafnarfirði

Lögreglan í Hafnarfirði rannsakar nú tvö fíkniefnamál sem komu upp í fyrrinótt og á jóladag. Í öðru tilvikinu voru viðkomandi með hass í fórum sínum en í hinu fundust tuttugu grömm af hvítu efni sem talið er vera annað hvort amfetamín eða kókaín. Þrír menn voru handteknir í tengslum við það mál.

Innlent
Fréttamynd

Ólætin í Grindavík rædd á morgun

Bæjarráð Grindavíkur hittist á morgun til að ræða ólæti sem brutust út á jóladagskvöld fimmtu jólin í röð. Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri segir að í samráði við bæjarbúa verði leitað allra leiða til koma í veg fyrir að þetta ástand verði viðvarandi. Slík skrílslæti hafa þekkst á gamlárskvöld og þrettándanum á fleiri stöðum á landinu.

Innlent
Fréttamynd

Grunaður um brot í starfi

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra hefur verið leystur frá störfum vegna rökstudds gruns um brot í starfi. Maðurinn skráði bíl embættisins á sambýliskonu sína, sem er lögreglufulltrúi á höfuðborgarsvæðinu, árið 2001. Þá notaði hann, á þessu ári, bíl embættisins í eigin þágu.

Innlent
Fréttamynd

Yfirmanni í lögreglunni vikið frá

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóranum hefur verið leystur frá störfum vegna gruns um brot í starfi. Maðurinn er grunaður um að hafa árið 2001 skráð bíl í eigu embættisins á nafn sambýliskonu sinnar og að hafa á þessu ári notað bíl embættisins í eigin þágu. Rökstuddur grunur um meint brot mannsins vaknaði við innra eftirlit embættisins.

Innlent
Fréttamynd

Rafmagn fór tvisvar af

Rafmagn fór tvisvar af á Vestfjörðum í gær vegna bilana á svokallaðri vesturlínu Landsvirkjunar.

Innlent
Fréttamynd

Vonskuveður fyrir austan

Ófært var vegna vonskuveðurs um mestallt Austurland frá því á aðfangadagskvöld og þar til í gær, þegar veðrið lagaðist og farið var að ryðja vegi. Björgunarsveitin á Seyðisfirði var kölluð út á aðfaranótt jóladags til að festa niður þakplötur á skemmu í bænum.

Innlent
Fréttamynd

Fullur og illa klæddur

Allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt upp úr klukkan átta á aðfangadagskvöld til að leita að fertugum manni sem fór frá heimili sínu í Vogahverfinu um kvöldmatarleytið.

Innlent
Fréttamynd

Fólk sat fast í óviðri

Óveður og ófærð var á öllu Norðurlandi og víða aðstoðaði lögregla fólk við að komast á milli staða. Lögreglunni á Húsavík bárust 75 hjálparbeiðnir vegna ófærðar á aðfangadag og jóladag.

Innlent
Fréttamynd

Þjófur sofnaði

Maður á fertugsaldri var handtekinn um borð í bát í Ísafjarðarhöfn á jóladag. Hann fór um borð í bátinn til að stela lyfjum.

Innlent
Fréttamynd

Vöknuðu við þjófa

Brotist var inn á fjórum stöðum í Reykjavík frá því klukkan fimm á jóladagsmorgun og til klukkan ellefu um kvöldið. Húsráðandi í Breiðholti vaknaði við þrusk og kom að tveimur innbrotsþjófum í eldhúsinu. Þjófarnir ruku tómhentir á brott.

Innlent
Fréttamynd

Foreldrar meðal brennuvarga

Fimmtu jólin í röð brutust út ólæti í Grindavík vegna fullorðinna karlamanna sem reyndu að kveikja brennu inn í bænum um miðnætti á jóladag. Í framhaldinu var kveikt í áramótabrennu bæjarbúa við Litluvör. Slökkviliðinu tókst ekki að slökkva eldinn og bjarga brennunni sem brann að mestu niður.

Innlent
Fréttamynd

Foreldrar fá engar bætur

Hæstiréttur sýknaði ríkið af skaðabótakröfu foreldra fjölfatlaðs drengs í gær. Foreldrarnir fóru fram á 25 milljónir króna í bætur þar sem þau álitu að lélegt mæðraeftirlit og fæðingarhjálp hefðu leitt til þess að drengurinn skaðaðist.

Innlent
Fréttamynd

Fegin að málinu sé lokið

Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri á Patreksfirði, segir að fórnarlömb mannsins sem fékk fjögurra ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Vestfjarða í gær hafi öll fengið aðstoð vegna áfallsins. Yfirheyrslur og rannsókn málsins hafi reynt mikið á og hann sé feginn að málinu sé lokið. Nanna Sjöfn Pétursdóttir, skólastjóri grunnskólans þar, tekur í sama streng.

Innlent
Fréttamynd

Þagnarskyldan mismunandi

Þagnarskylda lögreglumanna er mismunandi eftir málefnum og aðstæðu hverju sinni og metin í samræmi við það.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla leitar ofbeldismanns

Lögreglan í Keflavík leitar manns sem veitti manni áverka í heimahúsi í Keflavík undir morgun. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á sjúkrahúsið í Keflavík og mun meðal annars vera nefbrotinn. Vitni voru að átökunum og er vitað hver árásarmaðurinn er en hann hefur áður gerst brotlegur við lög.

Innlent
Fréttamynd

Hlupu þjófana uppi

Lögreglumenn á Akureyri hlupu í nótt uppi tvo menn, grunaða um að hafa brotist inn í verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð. Tilkynnt var um innbrot þar og sáust mennirnir í grennd. Þegar lögregla ætlaði að hafa tal af þeim tóku þeir til fótanna en höfðu ekkert að gera í sprettharða lögreglumennina sem handtóku þá.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið sýknað af 25 milljóna kröfu

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði íslenska ríkið í dag af tuttugu og fimm milljóna króna skaðabótakröfu vegna meintra mistaka við mæðraeftirlit á Kvennadeild Landspítalans. Það voru foreldrar sem stefndu ríkinu fyrir hönd ólögráða sonar síns sem er mikið fatlaður.

Innlent
Fréttamynd

Sjúkragögnum drengs stolið

Mikilvæg sjúkragögn um ungan dreng, sem er á förum til Bandaríkjanna til að gangast undir læknismeðferð, eru meðal þess sem er í svartri leðurtösku sem stolið var af konu í Bónus í Hafnarfirði í gær. Rannsóknalögreglan í Hafnarfirði skorar á þjófinn að skila gögnunum sem eru drengnum afar mikilvæg.

Innlent
Fréttamynd

Stálu ísskáp úr íbúð á 3. hæð

Bíræfnir þjófar stálu stórum tvöföldum ísskáp með ísmolavél úr íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærdag. Þeir slitu ísskápinn úr sambandi, og þar með vatnslögnina til ísmolavélarinnar, með þeim afleiðingum að vatn fór að leka úr leiðslunni. Þegar flætt hafði um alla íbúðina tók vatnið að leka niður í tvær íbúðir fyrir neðan.

Innlent
Fréttamynd

Georg forstjóri Gæslunnar

Dómsmálaráðherra skipaði í dag Georg Kr. Lárusson, forstjóra Útlendingastofnunar, í embætti forstjóra Landhelgisgæslu Íslands frá og með 1. janúar næstkomandi. Georg var valinn úr hópi níu umsækjenda. Georg tekur við af Hafsteini Hafsteinssyni sem tekur við starfi skrifstofustjóra í utanríkisráðuneytinu um áramót.

Innlent
Fréttamynd

Með 850 grömm af kókaíni

Brasilísk kona hefur verið úrskurðuð í þriggja vikna gæsluvarðhald fyrir að reyna að smygla til landsins 850 grömmum af kókaíni.

Innlent
Fréttamynd

Sýknaður af manndrápsákæru

Tvítugur maður var sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Maðurinn var talinn hafa ekið bifreið sinni of hratt miðað við aðstæður og ekki gætt nægrar varúðar þegar árekstur við aðra bifreið olli banaslysi.

Innlent