Erlent
252 253 254 255 256 257 258 259 260 … 334 ›
Útilokar að herinn verði kvaddur heim frá Írak á næstunni Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði það yrðu stórkostleg mistök að kalla breska hermenn heim frá Írak á næstunni og slíkt kæmi ekki til greina. Þetta kom í fyrirspurnartíma á breska þinginu í morgun. Erlent 18.10.2006 13:22
Nýsjálendingar segja ákvörðun Íslendinga aumkunarverða Tortryggni og undrun eru leiðarstef í umfjöllun erlendra fjölmiðla um ákvörðun íslensku ríkisstjórnarinnar að heimila atvinnuhvalveiðar. Einna hörðust hafa viðbrögðin verið í Nýja-Sjálandi en þarlend stjórnvöld segja ákvörðunina aumkunarverða. Erlent 18.10.2006 12:18
Líkur á vaxtahækkun í Bretlandi Miklar líkur eru sagðar á hækkun stýrivaxta í Bretlandi í nóvember. Þegar Englandsbanki ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum fyrr í mánuðinum í 4,75 prósentum voru sjö meðlimir peningamálanefndar fylgjandi óbreyttum vöxtum en tveir á móti. Þeir studdu 25 punkta hækkun. Viðskipti erlent 18.10.2006 12:57
Svisslendingar panta bóluefni gegn fuglaflensu Sviss varð í dag fyrsta landið til að panta birgðir af tilraunabólefni gegn fuglaflensu sem lyfjarisinn GlaxoSmithKline hefur þróað. Fram kemur á fréttavef Reuters að svissnesk heilbrigðisyfirvöld hafi pantað átta milljónir skammta af bóluefninu, fyrir alla þjóðina, til að reyna að koma í veg fyrir að fuglaflensa geti orðið að faraldri í landinu. Erlent 18.10.2006 11:43
Drápu son sinn með því að loka hann inni í ferðatösku Dómstóll í Hong Kong dæmdi í dag karl og konu í annars vegar eins og hálfs árs og hins vegar tveggja ára fangelsi fyrir að hafa drepið tíu ára gamlan son sinn með því að loka hann inni í ferðatösku í tvo tíma. Erlent 18.10.2006 11:11
Hagnaður Yahoo minnkar Hagnaður bandaríska netfyrirtækisins Yahoo á þriðja fjórðungi ársins nam 159 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 10,9 milljarða íslenskra króna. Þetta er 38 prósenta samdráttur á milli ára og segja forsvarsmenn fyrirtækisins afkomuna óásættanlega. Viðskipti erlent 18.10.2006 11:00
West Ham ræðir við tvo hópa um kaup Terry Brown, stjórnarformaður enska knattspyrnufélagsins West Ham, hyggst á næstu dögum ræða við tvo hópa um hugsanleg kaup á félaginu, en annar þeirra er íslenskur hópur sem Eggert Magnússon, formaður KSÍ, fer fyrir. Erlent 18.10.2006 10:59
Of hátt of lengi skaðar Að hlusta á háa tónlist með heyrnartólum úr starfrænum tónlistarspilara í meira en 90 mínútur á dag getur verið skaðlegt heyrninni. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem gerð var í Bandaríkjunum. Erlent 18.10.2006 08:42
Átta létust í sprengingu í Mexíkó Að minnsta kosti átta létust og níu slösuðust þegar olíutankur sprakk í Mexíkó í gær. Tankurinn var á svæði olíufyrirtækis í eigu ríkisins og varð sprengingin nærri borginni Coatzacoalcos í Veracruzfylki. Erlent 18.10.2006 08:39
Auðjöfur kaupir í Aer Lingus Írski auðjöfurinn Denis O'Brien hefur keypt 2,1 prósents hlut í írska flugfélaginu Aer Lingus. O'Brien segir kaupin gerð til að koma í veg fyrir óvinveitta yfirtöku Ryanair á flugfélaginu. Viðskipti erlent 18.10.2006 09:39
Segir súdönsku ríkisstjórnina styðja vígahóp Fyrrverandi meðlimur vígahópsins Janjaweed sem herjar á íbúa Darfur-héraðs í Súdan, segir súdönsku ríkisstjórnina ekki einungis styrkja vígahópinn um vopn og skotfæri heldur einnig gefa þeim skipanir um hvar og hvenær eigi að ráðast á óbreytta borgara. Erlent 18.10.2006 08:35
Reynir að þrýsta á að refsiaðgerðum sé fylgt eftir Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundar í dag með japönskum stjórnvöldum vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna. Rice hefur ferð sína um Asíu í dag en með henni vill hún fylgja eftir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreumönnum. Erlent 18.10.2006 08:15
Leita að smyglgöngum Tveir palestínskir hermenn létust þegar ísraelski herinn hélt áfram sókn sinni á suðurhluta Gaza í morgun. Öryggisfulltrúar Palestínu segja að ísraelski herinn hafi í dögun tekið yfir landamærasvæðið sem skilur að Gaza og Egyptaland. Erlent 18.10.2006 08:07
Frumefni 118 birtist andartak Vísindamönnum frá Kaliforníu og Rússlandi tókst að búa til nýtt frumefni sem fær þá sinn stað í lotukerfinu sem frumefni númer 118. Þetta er þyngsta frumefnið sem til er, en það er afar óstöðugt og frumeindirnar þrjár, sem vísindamönnunum tókst að kalla fram í tilraunastofum sínum, voru aðeins til í eitt augnablik og varla það – eða nánar tiltekið í níu tíuþúsundustu hluta úr sekúndu. Erlent 17.10.2006 20:52
Búa sig undir aðra sprengju Fyrrverandi ráðamaður í Norður-Kóreu segir engar líkur á því að samningaviðræður við Norður-Kóreu skili árangri. Eina sem dugi sé að einangra landið. Erlent 17.10.2006 20:52
Drottningu fagnað í Litháen Elísabet II Englandsdrottning fékk höfðinglegar móttökur er hún kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Litháens í gær. Mikill mannfjöldi safnaðist saman í höfuðborginni Vilníus til að fagna breska þjóðhöfðingjanum. Erlent 17.10.2006 20:52
Yfir hundrað manns slasaðir Kona á þrítugsaldri fórst þegar jarðlest á fullri ferð ók aftan á kyrrstæða lest á lestarstöð í miðborg Rómar í gær. Meira en hundrað manns að auki slösuðust, þar af tíu alvarlega. Erlent 17.10.2006 20:52
Leyfi til að beita harkalegum aðferðum við yfirheyrslur George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, undirritaði í gær lög um herdómstóla, sem eiga að fjalla um mál grunaðra hryðjuverkamanna sem hafðir eru í haldi í Guantanamo á Kúbu. Jafnframt er í lögunum heimild til þess að harkalegum yfirheyrsluaðferðum, sem jaðra við pyntingar, sé beitt á þessa fanga. Erlent 17.10.2006 20:52
Töluverðar skemmdir í jarðskjálfta Kostnaður vegna skemmdir sem urðu þegar jarðskjálfti skók Hawaii á sunnudaginn nemur jafnvirði tæpra þriggja milljarða íslenskra króna. Skjálftinn mældist 6,7 á Richter og er sá öflugasti sem riðið hefur yfir eyjaklasann á Kyrrahafi í tvo áratugi. Óttast er að talan eigi eftir að hækka en starfsmenn Rauða krossins, björgunarsveita á Hawaii og hópur verkfræðinga skoðar nú eyjarnar til að meta skemmdir á vegum, brúm, skólum og öðrum byggingum. Enginn dó í skjálftanum og enginn slasaðist alvarlega. Erlent 17.10.2006 23:42
Enn óvíst hverjir taka sæti Argentínu í Öryggisráði SÞ Atkvæðagreiðslum um arfta Argentínumanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hefur verið frestað um sólahring svo hægt verði að ræða næstu skref. Gvatemala og Venesúela berjast um sætið en hvorugu ríki hefur tekist að fá 2/3 atkvæða á Allsherjarþinginu sem þarf til að hreppa hnossið. Í dag og í gær er búið að greiða atkvæði 21 sinni og hefur Gvatemala haft vinningin, en betur má ef duga skal. Erlent 17.10.2006 22:52
8 týndu lífi í sprengingu í Mexíkó Að minnsta kosti 8 týndu lífi þegar sprenging var um borð í olíuflutningaskipi í eigu olíufélags frá Mexíkó. Verið var að dæla af skipinu við höfn í Veracruz þegar sprengingin varð. Erlent 17.10.2006 22:43
Bush styður aðild Króatíu að ESB og NATO Bush Bandaríkjaforseti ætlar að hvetja til þess á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í næsta mánuði að Króatía verði tekin inn í bandalagið. Auk þess ætlar hann að ítreka stuðning bandarískra stjórnvalda við aðild landsins að Evrópusambandinu. Erlent 17.10.2006 22:21
Dómi yfir Kenneth Lay hrundið Dómstóll í Bandaríkjunum hratt í dag fjársvikadómi yfir Kenneth Lay, fyrrverandi forstjóra olíurisans Enron, á þeim forsendum að hann gæti ekki áfrýjað honum. Lay lést í júlí síðastliðnum, tveimur mánuðum eftir að hann var sakfelldur fyrir fjársvik og samsæri í tengslum við gjaldþrot fyrirtækisins árið 2001. Erlent 17.10.2006 21:57
Aðstoð Írana og Sýrlendinga æskileg Ofbeldisátökum í Írak myndi linna innan fárra mánaða ef Íranar og Sýrlendingar tækju þátt í því að reyna að tryggja stöðugleika í landinu. Þetta sagði Jalal Talabani, forseti Íraks í viðtali við Breska ríkisútvarpið, BBC, í dag. Hann sagði að slíkt yrði upphafið á endalokum hryðjuverka í heiminum. Erlent 17.10.2006 21:43
Þjóðaratkvæði um vafamál Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, segir að svo geti farið að hann boði til þjóðaratkvæðagreiðslna um ákvarðanir sem hann taki í tengslum við framtíð heimastjórnar Palestínumanna sem skipuð er Hamas-liðum. Ef stjórnarskrá taki ekki á tilteknum máli ætli hann að leita álits almennings. Erlent 17.10.2006 19:53
Þjóðarflokkurinn kærir Nyhedsavisen Ungliðahreyfing Danska þjóðarflokksins hefur kært dagblaðið Nyhedsavisen til fjölmiðlasiðanefndar vegna myndbirtingar þess af lokaðri samkomu hreyfingarinnar. Erlent 17.10.2006 19:01
Óttast frekari tilraunasprengingar Norður-Kóreumenn líta á refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna, vegna kjarnorkutilrauna þeirra, sem stríðsyfirlýsingu. Óttast er að þeir hyggi á frekari tilraunasprengingar. Erlent 17.10.2006 18:59
Gvatemala hefur áfram forskot á Venesúela Gvatemala hefur áfram forskot á Venesúela í atkvæðagreiðslu um sæti til 2 ára í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Atkvæði voru greidd milli ríkjanna 10 sinnum á Allsherjarþingi SÞ í gær en þá var atkvæðagreiðslu frestað til morguns. Aftur var tekið til óspilltra málanna í dag og heldur Gvatemala áfram forskoti sínu en nær þó ekki 2/3 atkvæða sem þarf til að hreppa hnossið. Erlent 17.10.2006 17:33
Bandaríkjaforseti staðfestir frumvarp um yfirheyrsluaðferðir George Bush, Bandaríkjaforseti, staðfesti í dag lagafrumvarp þar sem skilgreint er hvað leyfist við yfirheyrslur á grunuðum hryðjuverkamönnum. Frumvarpið skilgreinir einnig hvernig rétta skal yfir þeim. Markmiðið með lagasetningunni er að tryggja það að mannréttindi fanganna séu virt en samt er að finna ákvæði í þeim sem takmarka rétt þeirra til að kæra varðhald þeirra og jafnvel fá því hnekkt. Erlent 17.10.2006 17:09
Verðbólguótti í Bandaríkjunum Verðbólguóttinn hefur gert vart við sig í Bandaríkjunum eftir að vísitala framleiðsluverð reyndist hærri en væntingar stóðu til. Vísitalan hækkaði um 0,6 prósentustig í síðasta mánuði, sem er 0,4 prósentustigum meira en reiknað var með. Viðskipti erlent 17.10.2006 16:03