Erlent Filippseyjar í sárum Spænskt lækna- og björgunarlið sögðu í dag ólíklegt að einhver myndi finnast á lífi fjórum dögum eftir að fellibylur sem gekk á land á Filippseyjum olli aurskriðum. Aurskriðurnar umkringdu og eyddu heilu þorpunum og sagði björgunarmaður sem var þar að störfum að leitarhundar fyndu eingöngu lík. Erlent 4.12.2006 08:41 Flugeldaverksmiðja springur Tveir slökkviliðsmenn létu lífið í eldum sem geysuðu í flugeldaverksmiðju í suðuhluta Englands í gær. Flugeldar sprungu og sást reykurinn í margra kílómetra fjarlægð en verksmiðjan er um 100 kílómetra frá Lundúnum. Erlent 4.12.2006 07:47 Chavez endurkjörinn Hugo Chavez, forseti Venesúela, sigraði í forsetakosningum í landinu en úrslitin voru birt í gær. Þegar að 78 prósent atkvæða höfðu verið talin var Chavez með 61 prósent þeirra, en meginandstæðingur hans, Manuel Rosales, með 38 prósent. Erlent 4.12.2006 07:40 Herinn á Fídjieyjum undirbýr valdarán Herinn Á Fiji-eyjum afvopnaði í morgun viðbragðssveitir lögreglunnar í höfuðborginni Suva. Talið er að herinn sé að undirbúa væntanlegt valdarán en hershöfðinginn Frank Bainimarama hefur undanfarna vikur hótað því ef forsætisráðherra eyjanna segi ekki af sér. Erlent 4.12.2006 07:28 Tugir rússneskra njósnara starfa í Bretlandi -myrða og kúga Rússneskir njósnarar, í Bretlandi, eru jafn virkir og þeir voru meðan kalda stríðið stóð sem hæst, að sögn bresku leyniþjónustunnar. Leyniþjónustan telur líklegast að launmorðingjar í þjónustu rússneskra stjórnvalda hafi myrt fyrrverandi KGB manninn Alexander Litvinov, sem lést í Lundúnum fyrir tíu dögum. Erlent 3.12.2006 20:51 Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp í Bretlandi Að minnsta kosti tveir slökkviliðsmenn hafa farist og bæði slökkviliðsmenn og óbreyttir borgarar hafa slasast í gríðarlegum sprengingum í flugeldaverksmiðju í bæn um Lewes, í Englandi. Tugir manna hafa verið fluttir á sjúkrahús. Erlent 3.12.2006 20:46 Bush sammála Rumsfeld um slæmt gengi í Írak George Bush er sammála Donald Rumsfeld um að hlutirnir gangi hvorki nógu fljótt né vel, í Írak, að sögn þjóðaröryggisráðgjafa forsetans. Stephen Hadley sagði í samtali við ABC fréttastofuna að menn gerðu sér grein fyrir því að það yrði að breyta stefnunni í Írak og að því væri unnið. Erlent 3.12.2006 19:52 Ekki lengur síamstvíburar Írösku tvíburasystrunum Zöruh og Fatimu heilsast vel eftir að læknar skildu þær að með skurðaðgerð á sjúkrahúsi í Sádi-Arabíu í gær. Erlent 3.12.2006 17:49 Læknarnir björguðu Pinochet Líf Augustos Pinochets, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hefur hangið á bláþræði undanfarinn sólarhring en hann fékk alvarlegt hjartaáfall í nótt. Erlent 3.12.2006 17:47 Pinochet þarf aðra aðgerð Erlent 3.12.2006 18:22 Það geisar borgarastríð í Írak -Kofi Annan Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að það geisi borgarastríð í Írak og að Írakar séu verr settir núna en þeir voru undir stjórn Saddams Hussein. Erlent 3.12.2006 17:48 Bílasalar sem kunna ekki að keyra Bílasalar sem kunna ekki að keyra yrðu líklega ekki eftirsóttir hér á landi. Í Saudi-Arabíu er hinsvegar talsvert af þeim. Þessir bílasalar eru konur. Og þær selja bílana konum sem ekki mega keyra þá. Erlent 3.12.2006 15:41 Mannfall Bandaríkjanna í Írak nálgast þriðja þúsundið Þrír bandarískir hermenn féllu í tveim sprengjuárásum, í Írak, í dag og er nú mannfall Bandaríkjanna í Írak nálgast nú þriðja þúsundið. Með þessu hafa tvöþúsund áttahundruð og níutíu hermenn fallið í landinu. Erlent 3.12.2006 14:55 Saddam áfrýjar dauðadómi Erlent 3.12.2006 14:17 Pútin vildi að Blair þaggaði niður í njósnara Rússar reiddust mjög og kvörtuðu yfir því við bresku ríkisstjórnina, að bréf sem KGB njósnarinn Alexander Litvinenko skrifaði á banabeði sínum skyldi gert opinbert eftir að hann lést. Í bréfinu sakaði Litvinenko Vladimir Putin um að hafa myrt sig. Erlent 3.12.2006 14:05 Íranar þakka Rússum Íranar fögnuðu því í dag að Rússar skuli vera andvígir þeim hörðu refsiaðgerðum sem Bandaríkjamenn og Evrópusambandið vilja beita landið vegna kjarnorkuáætlunar þess. Erlent 3.12.2006 13:54 Pinochet veittar nábjargirnar Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, er við dauðans dyr eftir alvarlegt hjartaáfall sem hann fékk í gær. Að sögn AP-fréttastofunnar hefur prestur veitt honum hinsta sakramentið. Erlent 3.12.2006 13:38 Rumsfeld hafði efasemdir Nokkrum dögum áður en Donald Rumsfeld, fyrrverandi landvarnaráðherra Bandaríkjanna, sagði af sér embætti hafði hann lagt til meiriháttar breytingar á stefnunni í Írak við forsetaembættið. Erlent 3.12.2006 10:05 Scaramella hinn hressasti Mario Scaramella, trúnaðarvini KGB-mannsins sáluga, Alexander Litvinenko, heilsast vel þrátt fyrir að geislavirka efnið pólóníum 210 hafi fundist í líkama hans. Erlent 3.12.2006 10:03 50 milljón brjálaðar bílskúrshurðir Í Cheyenne fjalli í Kólóradó, í Bandaríkjunum, er stjórnstöð bandaríska flughersins. Þaðan er auðvitað mikið um fjarskipti og meðal annars hefur herinn sérstaka tíðni sem hann notar til þess að láta æðstu embættismenn vita ef eitthvað er í uppsiglingu. Erlent 3.12.2006 10:41 Mótmælin halda áfram Mótmælendur í miðborg Beirútar, höfuðborgar Líbanons, láta engan bilbug á sér finna en þeir eyddu annarri í nótt í tjaldborg við stjórnarráðið til að þrýsta á ríkisstjórnina að segja af sér. Erlent 3.12.2006 10:01 Pinochet við dauðans dyr Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, liggur á milli heims og helju eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall í nótt. Erlent 3.12.2006 09:59 Rumsfeld lagði til stórfelldar breytingar í Írak Donald Rumsfeld, lagði til meiriháttar breytingar á stefnunni í Írak rétt áður en hann lét af embætti, að sögn bandaríska blaðsins New York Times. Hann sagði ljóst að það sem Bandaríkin væru að gera í Írak gengi ekki nógu vel. Erlent 2.12.2006 21:41 Harðir skotbardagar milli Palestínumanna á Gaza Hundruð palestinskra lögreglumanna háðu í dag margra klukkustunda skotbardaga við hóp palestínumanna þegar þeir reyndu að handtaka meðlimi stórrar fjölskyldu sem eru sakaðir um eiturlyfja- og vopnasmygl, og að stela landi í eigu hins opinbera. Erlent 2.12.2006 20:53 Ræddu brotthvarf danskra hermanna frá Írak Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur átti í dag fund með Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, og ræddu þeir um möguleikann á að danskir hermenn hyrfu frá landinu á næsta ári. Al-Maliki hefur sagt að Írakar verði reiðubúnir til þess að taka sjálfir við öryggisgæslu í landi sínu árið 2007. Erlent 2.12.2006 20:37 Sótt að Rauða hverfinu Borgarstjórnin í Amsterdam hefur fyrirskipað að þriðjungi allra vændishúsa í Rauða hverfinu svonefnda skuli lokað svo að stemma megi stigu við fjölgun glæpa í borginni. Erlent 2.12.2006 18:59 Laug til um krabbamein Einstæð móðir frá Wisconsin í Bandaríkjunum á yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisvist fyrir að skrökva að vinum og samstarfsmönnum að hún væri með ólæknandi krabbamein. Erlent 2.12.2006 18:58 Dýrt að fara í vinnuna á Range Rover Breska samgönguráðuneytið íhugar að hækka gjöld á þá sem aka bílum sínum í höfuðborg landins. Þeir þurfa þegar að borga fyrir að aka í miðborginni, en það gæti hækkað verulega á næstu árum. Erlent 2.12.2006 20:07 Tvennir síamstvíburar skildir að Það er ekki á hverjum degi sem síamstvíburar eru skildir að, hvað þá tvennir. Það gerðist þó í vikunni þegar læknar í Kína gerðu skurðaðgerð á 28 daga gömlum systrum frá Fujian-héraði sem voru samvaxnar á búknum. Um svipað leyti hófu sádiarabískir læknar að skilja að írösku systurnar Fatimu og Zöhru en þær eru tíu mánaða gamlar. Erlent 2.12.2006 18:57 Castro hvergi sjáanlegur Fimm daga hátíðarhöldum vegna áttræðisafmælis Fidels Castro lauk í dag með hersýningu á heimsmælikvarða. Sökum veikinda var afmælisbarnið hins vegar hvergi sjáanlegt og það hefur gefið þeim orðrómi byr undir báða vængi að Castro liggi banaleguna. Erlent 2.12.2006 18:54 « ‹ 207 208 209 210 211 212 213 214 215 … 334 ›
Filippseyjar í sárum Spænskt lækna- og björgunarlið sögðu í dag ólíklegt að einhver myndi finnast á lífi fjórum dögum eftir að fellibylur sem gekk á land á Filippseyjum olli aurskriðum. Aurskriðurnar umkringdu og eyddu heilu þorpunum og sagði björgunarmaður sem var þar að störfum að leitarhundar fyndu eingöngu lík. Erlent 4.12.2006 08:41
Flugeldaverksmiðja springur Tveir slökkviliðsmenn létu lífið í eldum sem geysuðu í flugeldaverksmiðju í suðuhluta Englands í gær. Flugeldar sprungu og sást reykurinn í margra kílómetra fjarlægð en verksmiðjan er um 100 kílómetra frá Lundúnum. Erlent 4.12.2006 07:47
Chavez endurkjörinn Hugo Chavez, forseti Venesúela, sigraði í forsetakosningum í landinu en úrslitin voru birt í gær. Þegar að 78 prósent atkvæða höfðu verið talin var Chavez með 61 prósent þeirra, en meginandstæðingur hans, Manuel Rosales, með 38 prósent. Erlent 4.12.2006 07:40
Herinn á Fídjieyjum undirbýr valdarán Herinn Á Fiji-eyjum afvopnaði í morgun viðbragðssveitir lögreglunnar í höfuðborginni Suva. Talið er að herinn sé að undirbúa væntanlegt valdarán en hershöfðinginn Frank Bainimarama hefur undanfarna vikur hótað því ef forsætisráðherra eyjanna segi ekki af sér. Erlent 4.12.2006 07:28
Tugir rússneskra njósnara starfa í Bretlandi -myrða og kúga Rússneskir njósnarar, í Bretlandi, eru jafn virkir og þeir voru meðan kalda stríðið stóð sem hæst, að sögn bresku leyniþjónustunnar. Leyniþjónustan telur líklegast að launmorðingjar í þjónustu rússneskra stjórnvalda hafi myrt fyrrverandi KGB manninn Alexander Litvinov, sem lést í Lundúnum fyrir tíu dögum. Erlent 3.12.2006 20:51
Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp í Bretlandi Að minnsta kosti tveir slökkviliðsmenn hafa farist og bæði slökkviliðsmenn og óbreyttir borgarar hafa slasast í gríðarlegum sprengingum í flugeldaverksmiðju í bæn um Lewes, í Englandi. Tugir manna hafa verið fluttir á sjúkrahús. Erlent 3.12.2006 20:46
Bush sammála Rumsfeld um slæmt gengi í Írak George Bush er sammála Donald Rumsfeld um að hlutirnir gangi hvorki nógu fljótt né vel, í Írak, að sögn þjóðaröryggisráðgjafa forsetans. Stephen Hadley sagði í samtali við ABC fréttastofuna að menn gerðu sér grein fyrir því að það yrði að breyta stefnunni í Írak og að því væri unnið. Erlent 3.12.2006 19:52
Ekki lengur síamstvíburar Írösku tvíburasystrunum Zöruh og Fatimu heilsast vel eftir að læknar skildu þær að með skurðaðgerð á sjúkrahúsi í Sádi-Arabíu í gær. Erlent 3.12.2006 17:49
Læknarnir björguðu Pinochet Líf Augustos Pinochets, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hefur hangið á bláþræði undanfarinn sólarhring en hann fékk alvarlegt hjartaáfall í nótt. Erlent 3.12.2006 17:47
Það geisar borgarastríð í Írak -Kofi Annan Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að það geisi borgarastríð í Írak og að Írakar séu verr settir núna en þeir voru undir stjórn Saddams Hussein. Erlent 3.12.2006 17:48
Bílasalar sem kunna ekki að keyra Bílasalar sem kunna ekki að keyra yrðu líklega ekki eftirsóttir hér á landi. Í Saudi-Arabíu er hinsvegar talsvert af þeim. Þessir bílasalar eru konur. Og þær selja bílana konum sem ekki mega keyra þá. Erlent 3.12.2006 15:41
Mannfall Bandaríkjanna í Írak nálgast þriðja þúsundið Þrír bandarískir hermenn féllu í tveim sprengjuárásum, í Írak, í dag og er nú mannfall Bandaríkjanna í Írak nálgast nú þriðja þúsundið. Með þessu hafa tvöþúsund áttahundruð og níutíu hermenn fallið í landinu. Erlent 3.12.2006 14:55
Pútin vildi að Blair þaggaði niður í njósnara Rússar reiddust mjög og kvörtuðu yfir því við bresku ríkisstjórnina, að bréf sem KGB njósnarinn Alexander Litvinenko skrifaði á banabeði sínum skyldi gert opinbert eftir að hann lést. Í bréfinu sakaði Litvinenko Vladimir Putin um að hafa myrt sig. Erlent 3.12.2006 14:05
Íranar þakka Rússum Íranar fögnuðu því í dag að Rússar skuli vera andvígir þeim hörðu refsiaðgerðum sem Bandaríkjamenn og Evrópusambandið vilja beita landið vegna kjarnorkuáætlunar þess. Erlent 3.12.2006 13:54
Pinochet veittar nábjargirnar Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, er við dauðans dyr eftir alvarlegt hjartaáfall sem hann fékk í gær. Að sögn AP-fréttastofunnar hefur prestur veitt honum hinsta sakramentið. Erlent 3.12.2006 13:38
Rumsfeld hafði efasemdir Nokkrum dögum áður en Donald Rumsfeld, fyrrverandi landvarnaráðherra Bandaríkjanna, sagði af sér embætti hafði hann lagt til meiriháttar breytingar á stefnunni í Írak við forsetaembættið. Erlent 3.12.2006 10:05
Scaramella hinn hressasti Mario Scaramella, trúnaðarvini KGB-mannsins sáluga, Alexander Litvinenko, heilsast vel þrátt fyrir að geislavirka efnið pólóníum 210 hafi fundist í líkama hans. Erlent 3.12.2006 10:03
50 milljón brjálaðar bílskúrshurðir Í Cheyenne fjalli í Kólóradó, í Bandaríkjunum, er stjórnstöð bandaríska flughersins. Þaðan er auðvitað mikið um fjarskipti og meðal annars hefur herinn sérstaka tíðni sem hann notar til þess að láta æðstu embættismenn vita ef eitthvað er í uppsiglingu. Erlent 3.12.2006 10:41
Mótmælin halda áfram Mótmælendur í miðborg Beirútar, höfuðborgar Líbanons, láta engan bilbug á sér finna en þeir eyddu annarri í nótt í tjaldborg við stjórnarráðið til að þrýsta á ríkisstjórnina að segja af sér. Erlent 3.12.2006 10:01
Pinochet við dauðans dyr Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, liggur á milli heims og helju eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall í nótt. Erlent 3.12.2006 09:59
Rumsfeld lagði til stórfelldar breytingar í Írak Donald Rumsfeld, lagði til meiriháttar breytingar á stefnunni í Írak rétt áður en hann lét af embætti, að sögn bandaríska blaðsins New York Times. Hann sagði ljóst að það sem Bandaríkin væru að gera í Írak gengi ekki nógu vel. Erlent 2.12.2006 21:41
Harðir skotbardagar milli Palestínumanna á Gaza Hundruð palestinskra lögreglumanna háðu í dag margra klukkustunda skotbardaga við hóp palestínumanna þegar þeir reyndu að handtaka meðlimi stórrar fjölskyldu sem eru sakaðir um eiturlyfja- og vopnasmygl, og að stela landi í eigu hins opinbera. Erlent 2.12.2006 20:53
Ræddu brotthvarf danskra hermanna frá Írak Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur átti í dag fund með Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, og ræddu þeir um möguleikann á að danskir hermenn hyrfu frá landinu á næsta ári. Al-Maliki hefur sagt að Írakar verði reiðubúnir til þess að taka sjálfir við öryggisgæslu í landi sínu árið 2007. Erlent 2.12.2006 20:37
Sótt að Rauða hverfinu Borgarstjórnin í Amsterdam hefur fyrirskipað að þriðjungi allra vændishúsa í Rauða hverfinu svonefnda skuli lokað svo að stemma megi stigu við fjölgun glæpa í borginni. Erlent 2.12.2006 18:59
Laug til um krabbamein Einstæð móðir frá Wisconsin í Bandaríkjunum á yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisvist fyrir að skrökva að vinum og samstarfsmönnum að hún væri með ólæknandi krabbamein. Erlent 2.12.2006 18:58
Dýrt að fara í vinnuna á Range Rover Breska samgönguráðuneytið íhugar að hækka gjöld á þá sem aka bílum sínum í höfuðborg landins. Þeir þurfa þegar að borga fyrir að aka í miðborginni, en það gæti hækkað verulega á næstu árum. Erlent 2.12.2006 20:07
Tvennir síamstvíburar skildir að Það er ekki á hverjum degi sem síamstvíburar eru skildir að, hvað þá tvennir. Það gerðist þó í vikunni þegar læknar í Kína gerðu skurðaðgerð á 28 daga gömlum systrum frá Fujian-héraði sem voru samvaxnar á búknum. Um svipað leyti hófu sádiarabískir læknar að skilja að írösku systurnar Fatimu og Zöhru en þær eru tíu mánaða gamlar. Erlent 2.12.2006 18:57
Castro hvergi sjáanlegur Fimm daga hátíðarhöldum vegna áttræðisafmælis Fidels Castro lauk í dag með hersýningu á heimsmælikvarða. Sökum veikinda var afmælisbarnið hins vegar hvergi sjáanlegt og það hefur gefið þeim orðrómi byr undir báða vængi að Castro liggi banaleguna. Erlent 2.12.2006 18:54
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent