Erlent
Sendum Harry eyrnalausan heim til ömmu Erlent 2.5.2007 10:22 Atvinnuleysi minnkar á evrusvæðinu Atvinnuleysi mældist 7,2 prósent á evrusvæðinu í marsmánuði. Þetta er 0,1 prósentustiga samdráttur á milli ára, samkvæmt nýlegum upplýsingum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Mesta atvinnuleysið innan Evrópusambandsins mældist í Póllandi, eða 11,4 prósent. Viðskipti erlent 2.5.2007 09:49 Barnamyndir skiluðu vel í kassann Bandaríska afþreyingafyrirtækið Dreamworks skilaði góðum hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Aukningin felst í góðri sölu á DVD-mynddiskum með barnamyndum á borð ðvið Over the Hedge og fleiri myndum. Steven Spielberg, Jeffrey Katzenberg og David Geffen stofnuðu fyrirtækið fyrir 13 árum. Viðskipti erlent 2.5.2007 09:20 Dýr mundu jakkafötin öll Bandarískur dómari hefur krafið fatahreinsun um 67 milljónir dollara, eða um 4,3 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur vegna þess að hún týndi buxunum hans. Dómarinn, Roy Pearson, segir í dómsskjölum að hann hafi upplifað erfiða tíma vegna þess að fatahreinsunin týndi uppáhalds buxunum hans. Hann ætlaði að vera í þeim á fyrsta degi sínum sem dómari. Erlent 2.5.2007 09:10 « ‹ 117 118 119 120 121 122 123 124 125 … 334 ›
Traktor keyrði tvisvar yfir ungling Traktor keyrði í tvígang yfir austurrískan ungling – fyrst eftir að hann datt af og svo aftur þegar ökumaðurinn bakkaði til að athuga hvar pilturinn væri. Hinn 17 ára Hubert Hochstetter datt af traktornum þegar Josef Mittringer 22 ára félagi hans keyrði hann eftir vegi við þorpið Kainisch í Austurríki. Hann hafnaði undir afturhjólum traktorsins sem vegur um þrjú tonn. Erlent 3.5.2007 10:20
Hættulegustu öfgasamtök N-Írlands hætta starfsemi Hættulegustu öfgasamtök mótmælenda á Norður-Írlandi, Ulster Volunteer Force (UVF), hafa tilkynnt að þau muni hætta vopnaðri baráttu. Þau segjast ætla að taka upp baráttu án vopna. „Frá og með tólf á miðnætti, fimmtudaginn 3. maí 2007, munu Ulster Volunteer Force og Red Hand Commando beita sér á friðsaman hátt og taka upp borgaralega starfsemi." sagði í tilkynningu frá þeim í morgun. Erlent 3.5.2007 10:10
Vilja hvít barnaheimili í Svíþjóð Flokkur þjóðernissinna í Svíþjóð vill stofna barnaheimili fyrir innfædd hvít börn. Ætlunin er að fyrsta barnaheimilið verði opnað í Uppsölum, á næsta ári. Vávra Suk, formaður flokksins segir að fólk eigi að eiga þess kost að ala börn sín upp í vestrænni menningu. Erlent 3.5.2007 09:17
Kosið í Englandi, Skotlandi og Wales Almenningur í Englandi, Skotlandi og Wales gengur til kosninga í sveitastjórnar- og þingkosningum í dag. Kosið er á flestum stöðum í Bretlandi að undanskildri höfuðborginni, Lundúnum. Alls eru 39 milljón manns með kosningarétt. Búist er við góðu veðri í dag sem gæti aukið kjörsókn. Erlent 3.5.2007 08:57
Leiðtogi íslamska ríkisins í Írak allur Bandaríski og íraski herinn hafa fellt leiðtoga íslamska ríkisins í Írak, hryðjuverkahóps með tengsl við al-Kaída. Innanríkisráðherra Íraks skýrði frá þessu í morgun. Hann sagði að leiðtogi hópsins, Abu Omar al-Baghdadi, hefði verið felldur í bardaga norður af Bagdad. Hann neitaði að segja hvenær þetta gerðist en sagði að yfirvöld hefðu lík hans í sinni vörslu. Erlent 3.5.2007 08:20
Bush fundar með demókrötum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og leiðtogar demókrata í bandaríska þinginu hafa heitið því að komast að niðurstöðu varðandi aukafjárveitingu til hersins. Erlent 3.5.2007 07:46
Fundað um framtíð Íraks Alþjóðleg ráðstefna um framtíð Íraks fer nú fram í Sharm el-Sheikh í Egyptalandi. Á meðal þátttakenda eru Bandaríkin, Íran og Sýrland. Búist er við því að löndin sem ráðstefnuna sækja eigi eftir að sættast á fimm ára áætlun sem krefst endurbóta fyrir stuðning. Erlent 3.5.2007 07:12
Jafnræði í kappræðum Frönsku forsetaframbjóðendurnir Nicolas Sarkozy og Sególene Royal tókust á í sjónvarpskappræðum í gærkvöldi. Töluverðar tilfinningar voru í spilinu en kappræðurnar eru taldar geta ráðið úrslitum í forsetakosningunum sem fara fram á sunnudaginn kemur. Erlent 3.5.2007 07:09
AC Milan mætir Liverpool Ítalska knattspyrnuliðið AC Milan bar í gærkvöldi sigurorð af Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og mun því mæta enska liðinu Liverpool í úrslitum þann 23. maí næstkomandi. Brasilíumaðurinn Kaka var hetja AC Milan en hann skoraði fyrsta mark liðsins þegar aðeins tíu mínútur voru liðnar af leiknum. Erlent 3.5.2007 07:06
Japanir vilja nýja stjórnarskrá Forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, sagði í gær að það þyrfti að endurskoða stjórnarskrá landsins. Ástæðuna sagði hann að sú stjórnarskrá sem Bandaríkjamenn hefðu sett Japönum eftir síðari heimsstyrjöld væri úrelt með tilliti til heimsmála í dag. Erlent 3.5.2007 06:59
Þingmenn styðja Olmert Þingmenn Kadima flokksins í Ísrael hafa ákveðið að styðja við bakið á Ehud Olmert eftir að utanríkisráðherra Ísraels, Tzipi Livni, sagði að hann ætti að segja af sér. Þeir áttu sérstakan fund í gærkvöldi til þess að ræða stöðu mála innan flokksins. Erlent 3.5.2007 06:54
20 milljónir horfi á kappræður Búist er við að 20 milljón Frakkar fylgist í kvöld með sjónvarpskappræðum frambjóðendanna tveggja sem berjast um forsetaembættið í Frakklandi. Þetta er síðasta tækifæri sósíalistans Segolene Royal til að saxa á naumt forskot hægrimannsins Nicolas Sarkozy. Kosið er á sunnudaginn. Erlent 2.5.2007 18:57
Vill að Olmert víki Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels hefur hvatt Ehud Olmert til þess að segja af sér sem forsætisráðherra. Hún segir jafnframt að hún muni sækjast eftir forystu í Kadima-flokki hans. Livni skýrði frá þessu eftir fund sinn með Olmert í dag. Erlent 2.5.2007 18:54
Ráðist að sendiherra Eista Eistnesku ræðismannsskrifstofunni í Moskvu var lokað í dag um óákveðinn tíma eftir að hópur rússneskra ungmenna gerði aðsúg að eistneska sendiherranum í Rússlandi í dag. Eistar og Rússar hafa deilt hart á opinberum vettvangi síðan í síðustu viku eða frá því eistneskir ráðamenn létu færa til minnismerki um fallna hermenn sem var í miðborg Tallinn. Erlent 2.5.2007 18:52
Óttast meira mannfall Bush Bandaríkjaforseti óttast að mannfall verði áfram mikið í Írak og segir bandaríska hermenn ekki á heimleið á næstunni. Hann hvetur Íraka til að sameinast í að uppræta ofbeldi í landinu og biður um stuðning Bandaríkjamanna við herliðið í Írak. Erlent 2.5.2007 18:50
Danir bjóða ofsóttum rithöfundum hæli Danir hafa ákveðið að veita ofsóttum rithöfundum hæli og vernd gegn andskotum sínum. Þetta á við um blaðamenn, rithöfunda og teiknara sem hafa ástæðu til þess að óttast um hag sinn. Annaðhvort vegna ofsókna ríkisstjórna eða trúarsamtaka. Erlent 2.5.2007 16:11
Hráolíuverðið lækkar á heimsmarkaði Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði nokkuð og fór undir 64 dali á tunnu á markaði í New York í dag eftir að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því í vikulegri skýrslu sinni að olíuframleiðsla hefði aukist þar í landi í síðustu viku. Þrátt fyrir þetta minnkuðu eldsneytisbirgðir í Bandaríkjunum á milli vikna. Viðskipti erlent 2.5.2007 15:21
Utanríkisráðherrann boðar uppreisn gegn Olmert Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels hefur hvatt Ehud Olmert til þess að segja af sér sem forsætisráðherra. Hún segir jafnframt að hún muni sækjast eftir forystu í Kadima-flokki hans. Livni skýrði frá þessu þegar hún kom af tveggja manna fundi sínum með Olmert. Erlent 2.5.2007 14:38
Bandaríkjamenn hunsuðu Breta í grundvallarákvörðunum Bretar voru algerlega á móti því að leysa upp íraska herinn og reka opinbera starfsmenn úr embætti. Bandaríkjamenn hunsuðu hinsvegar þessar skoðanir. Breta grunar að Dick Cheney, varaforseti hafi staðið á bak við það. Fyrrverandi varnarmálaráðherra Bretlands segir að þeir hafi verið furðu lostnir yfir sumum ákvörðunum Bandaríkjamanna. Erlent 2.5.2007 13:54
Þróunarlöndin menga minna Þróunarlönd sem eru að iðnvæðast, eins og Kína og Indland, hafa dregið meira úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda en krafist hefur verið af öllum iðnríkjunum samanlagt. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem verður gerð opinber á föstudag segir að ýmsar ráðstafanir sem þróunarlöndin hafi gert hafi haft þau hliðaráhrif að draga úr útblæstri. Erlent 2.5.2007 13:34
Samdráttur hjá bandarískum bílasölum Sala á nýjum bílum dróst mikið saman í Bandaríkjunum í síðasta mánuði en salan hefur ekki verið minni í tæp tvö ár. Samdrátturin var mestur hjá bandaríska bílaframleiðandanum Ford en sala dróst saman um 12,9 prósent á milli ára. Hátt eldsneytisverð og verri skuldastaða almennings er helsta ástæða samdráttarins. Viðskipti erlent 2.5.2007 10:24
Fagna kosningum í Tyrklandi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fagnaði í dag tillögu stjórnarflokksins í Tyrklandi um að boða til kosninga til þess að létta á spennu í þjóðfélaginu. Mikil spenna hefur myndast á milli stjórnarliða, sem eru margir múslimar og þeirra sem eru í stjórnarandstöðu og vilja skilja á milli trúar og ríkis. Erlent 2.5.2007 11:55
Kviknakin og drukkin undir stýri Þýskur bensínafgreiðslumaður hringdi á lögreglu eftir að nakin kona keyrði upp að bensíndælu og bað hann um að fyll´ann. Konan hafði keyrt að dælunni með miklum látum. Hún lá á flautunni og blikkaði ljósunum til að ná athygli Jan Matthausen bensínafgreiðslumanns frá Chemnitz. Erlent 2.5.2007 11:29
Búrka-stríð í Danmörku Danski þjóðarflokkurinn er æfur yfir því að opinbert fé skuli notað til þess að borga dagmömmu sem klæðist búrka. Búrka er klæðnaður múslimakvenna, sem hylur þær frá toppi til táar, og einnig andlitið. Talsmaður þjóðarflokksins segir það engu máli skipta að fjölskyldan sem réði dagmömmuna er islamstrúar. Erlent 2.5.2007 11:23
Evrópusambandið sendir nefnd til Moskvu Evrópusambandið ætlar sér að senda sendinefnd til Moskvu til þess að ræða ástandið í málefnum Eistlands og Rússlands. Mikil mótmæli hafa verið fyrir utan eistneska sendiráðið í Moskvu undanfarna daga vegna minnismerkis sem Eistar ætla sér færa. Erlent 2.5.2007 10:51
Alþjóðastríðsglæpadómstólinn ákærir vegna Darfúr-héraðs Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipanir á hendur tveimur mönnum sem sakaðir hafa verið um stríðsglæpi í Darfúr-héraði Súdan. Mennirnir tveir eru Ahmed Haroun, fyrrum innanríkisráðherra Súdan þegar átökin stóðu sem hæst, og herforingi vígamanna, Ali Muhammad Ali Abd-al-Rahman, einnig þekktur sem Ali Kushayb. Súdanir hafa þegar neitað að láta mennina tvo af hendi. Erlent 2.5.2007 10:39
Atvinnuleysi minnkar á evrusvæðinu Atvinnuleysi mældist 7,2 prósent á evrusvæðinu í marsmánuði. Þetta er 0,1 prósentustiga samdráttur á milli ára, samkvæmt nýlegum upplýsingum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Mesta atvinnuleysið innan Evrópusambandsins mældist í Póllandi, eða 11,4 prósent. Viðskipti erlent 2.5.2007 09:49
Barnamyndir skiluðu vel í kassann Bandaríska afþreyingafyrirtækið Dreamworks skilaði góðum hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Aukningin felst í góðri sölu á DVD-mynddiskum með barnamyndum á borð ðvið Over the Hedge og fleiri myndum. Steven Spielberg, Jeffrey Katzenberg og David Geffen stofnuðu fyrirtækið fyrir 13 árum. Viðskipti erlent 2.5.2007 09:20
Dýr mundu jakkafötin öll Bandarískur dómari hefur krafið fatahreinsun um 67 milljónir dollara, eða um 4,3 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur vegna þess að hún týndi buxunum hans. Dómarinn, Roy Pearson, segir í dómsskjölum að hann hafi upplifað erfiða tíma vegna þess að fatahreinsunin týndi uppáhalds buxunum hans. Hann ætlaði að vera í þeim á fyrsta degi sínum sem dómari. Erlent 2.5.2007 09:10