Innlendar
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 75 ›
Norðurlandamet hjá Erni - keppir ekki í skriðsundinu Örn Arnarson setti Norðurlandamet í 50 metra baksundi í morgun er hann synti á 24,30 sekúndum. Sport 14.12.2007 11:50
Ragnheiður hársbreidd frá undanúrslitum Ragnheiður Ragnarsdóttir missti naumlega af sæti í undanúrslitum í 100 metra fjórsundi á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Ungverjalandi í morgun. Sport 14.12.2007 09:51
Frábær árangur hjá Erni Örn Arnarson komst í undanúrslit í tveimur sundum á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Ungverjalandi í morgun og bætti Íslandsmet sitt í 50 metra baksundi. Sport 14.12.2007 09:46
Örn í undanúrslit og Íslandsmet hjá Ragnheiði Örn Arnarson tryggði sér naumlega sæti í undanúrslitum 100 metra flugsunds. Jakob Jóhann Sveinsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir komust ekki áfram í sínum greinum. Sport 13.12.2007 10:38
Ragna tapaði á Ítalíu Ragna Ingólfsdóttir tapaði í dag fyrir Elizabeth Cann frá Englandi í 16-manna úrslitum á alþjóðlegu badmintonmóti á Ítalíu. Sport 12.12.2007 16:34
Jóhann Rúnar og Karen Björg best Íþróttasamband fatlaðra útnefndi í dag þau Jóhann Rúnar Kristjánsson og Karen Björg Gísladóttur íþróttamann og -konu ársins 2007 við hátíðlega athöfn. Sport 12.12.2007 16:01
Tvö Íslandsmet í sundinu Tvö Íslandsmet féllu á opna meistaramótinu í sundi sem fram fer í Eindhoven í Hollandi. Erla Dögg Haraldsdóttir úr ÍRB sló 15 ára gamalt met Ragnheiðar Runólfsdóttur þegar hún synti 50 metra bringusund á 33,21 sekúndu. Sport 8.12.2007 12:13
Gullin helgi fyrir Rögnu Árangur íslensku keppendanna á alþjóðlega badmintonmótinu Iceland Express International sem lauk í gær var mjög góður og stjarna mótsins var Ragna Ingólfsdóttir sem vann tvö gull í einliðaleik og tvíliðaleik. Sport 11.11.2007 21:56
Ragna vann tvöfalt Ragna Ingólfsdóttir vann tvöfalt á alþjóðlega badmninton mótinu sem haldið var í TBR húsinu um helgina. Fyrr í dag vann Ragna sigur í einliðaleik þar sem hún lagði Trine Niemaier frá Danmörku í úrslitaleik og sigraði svo í tvíliðaleiknum ásamt Katrínu Atladóttur síðar í dag þegar þær báru sigurorð af Söru Jónsdóttur og Tinnu Helgadóttur. Sport 11.11.2007 15:04
NM-meistari á nýju meti Hinn stórefnilegi frjálsíþróttakappi Sveinn Elías Elíasson úr Fjölni varð í gær Norðurlandameistari unglinga í 400 metra hlaupi en mótið fer fram í Danmörku. Sport 2.9.2007 22:05
Íslandsmótið í strandblaki var haldið um helgina Laugardaginn 18. ágúst var Íslandsmótið í strandblaki haldið í Fagralundi í Kópavogi, og var þetta eitt stærsta Íslandsmót sem haldið hefur verið til þessa. 9 kvennalið og 8 karlalið skráðu sig til keppni, og til marks um hve keppnin var hörð og jöfn þá fóru 5 leikir hjá körlum í 3 hrinur og 4 leikir hjá konunum, en eingöngu þarf að vinna 2 hrinur í strandblaki til að vinna leik. Sport 20.8.2007 16:11
Líney Rut nýr framkvæmdastjóri ÍSÍ Líney Rut Halldórsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri ÍSÍ. Þetta samþykkti framkvæmdastjórn sambandsins einróma á fundi sínum í hádeginu í dag. Líney tekur við starfinu af Stefáni Konráðssyni sem ráðið hefur sig sem framkvæmdastjóra Íslenskrar Getspár. Sport 26.7.2007 15:17
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar var sett í gær Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar var sett í Belgrad í Serbíu og Svartfjallalandi í gær. Fimm Íslenskir frjálsíþróttaunglingar á aldrinum 16-17 ára munu taka þátt á mótinu, en 38 Íslenskir íþróttamenn taka þátt í Ólympíuhátíðinni að þessu sinni í sjö íþróttagreinum. Íslenski boltinn 23.7.2007 15:25
Árshátíð Kraft fór fram í dag Árshátið Kraftlyftingasambands Íslands fór fram í Hátúni í dag og þar var mikið um dýrðir. Þar var meðal annars kraftakeppni þar sem óvæntar hetjur tóku þátt og hápunkturinn var án efa þegar einn stærsti jeppi landsins gerði sér lítið fyrir og ók yfir tvo fólksbíla. Sjáðu myndir frá keppninni í albúmi sem fylgir fréttinni. Sport 21.7.2007 19:54
Skagafjarðarrall ræst í morgun Skagafjarðarrall var ræst frá Sauðárkróki klukkan 9 í morgun í blíðskaparveðri. Fyrstu sérleiðir dagsins verða eknar um Mælifellsdal.Sextán áhafnir eru skráðar til leiks. Sport 21.7.2007 11:40
Ragna fékk silfur Ragna Ingólfsdóttir, Íslandsmeistari í badminton, endaði Opna ástralska mótið í badminton í örðu sæti. Ragna beið lægri hlut í úrslitaleik í morgun fyrir Larisu Griga frá Úkraínu, 11-21 og 10-21. Ragna þokar sig enn upp heimslistann í einliðaleik en hún var í 38 sæti fyrir mótið og styrkir með þessari frammistöðu enn stöðu sína á að komast á Ólympíuleikana. Sport 15.7.2007 15:03
Ragna í úrslit í Melbourne Ragna Ingólfsdóttir, Íslandsmeistari í badminton, tryggði sér í morgun sæti í úrslitum á alþjóðlega Viktoríumótinu sem fram fram fer í Melbourne í Ástralíu. Ragna sigraði Kristinu Ludikovu í morgun í tveimur settum en mætir svo Larisu Griga frá Úkraínu í úrslitunum á morgun. Ragna er í 38. sæti á heimslistanum í einliðaleik kvenna. Sport 14.7.2007 15:39
Suðurlandströllið fer fram um helgina Hin árlega aflraunakeppni Suðurlandströllið fer fram í Hveragerði og á Selfossi á laugardaginn. Keppnin hefst klukkan 13:30 við Selfossbrú þar sem m.a. verður keppt í trukkadrætti og Drumbalyftu. Klukkan 16 færist svo keppnin að Eden í Hveragerði þar sem keppt verður í axlalyftu, uxagöngu og Húsafellshelluburði. Sterkasti maður Íslands, Kristinn "Boris" Haraldsson verður meðal keppenda á mótinu. Sport 12.7.2007 19:23
Jón Oddur og Jakob Jóhann bæta met í 50m bringusundi Jón Oddur Sigurðsson synti í morgun 50m bringusund í undanrásum á danska opna meistaramótinu og setti nýtt íslandsmet á tímanum 28,71 sek. Hann bætti rúmlega 2 ára gamalt met Jakobs Jóhanns Sveinssonar sem var 28,86 sek. Íslenski boltinn 10.7.2007 11:00
Fjögur Íslandsmet féllu á Héðinsmótinu Fjögur Íslandsmet voru sett á Héðinsmótinu árlega í bekkpressu sem haldið var á Ólafsvík í gær. Jakob Baldursson setti Íslandsmet í 125 kg flokki þegar hann lyfti 285 kg og bætti met Auðuns Jónssonar um 4,5 kg. Héraðsmaðurinn Ísleifur Árnason bætti eigið met í 90 kg flokki með því að lyfta 218,5 kg. Sport 8.7.2007 13:40
Landsmótið sett annað kvöld Risalandsmót UMFÍ verður haldið í Kópavogi dagana 5. - 8. júlí. Ungmennafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu og af því tilefni er efnt til stærsta landsmóts sem haldið hefur verið hér á landi. Sport 4.7.2007 16:52
Eygló bætir meyjamet í 200m baksundi Á heimasíðu Sundsambands Íslands kemur fram að Eygló Ósk Gústafsdóttir úr sundfélaginu Ægir hafi í dag stórbætt meyjamet í 200m baksundi. Sport 30.6.2007 18:26
Frábær árangur hjá skylmingamönnum Íslensku keppendurnir á Norðurlandamótinu í skylmingum hafa nú lokið keppni á mótinu og er árangurinn frábær. Íslenska liðið sigraði í dag í liðakeppni í skylmingum með höggsverði og vann alls til níu gullverðlauna á mótinu. 35 íslenskir keppendur tóku þátt í mótinu og sigruðu þeir í 8 af 11 flokkum í keppni einstaklinga. Körfubolti 28.6.2007 18:24
Þrír titlar í viðbót í skylmingunum Íslenska skylmingalandsliðið bætti í dag þremur titlum í sarpinn á Norðurlandamótinu. Ragnar Ingi Sigurðsson FH varð í dag Norðurlandameistari í opnum flokki í skylmingum með höggsverði. Þorbjörg Ágústsdóttir SFR varð Norðurlandameistari í kvennaflokki fyrr í dag. Þar með hafa íslensku stúlkurnar náð öllum Norðurlandameistaratitlum í kvennaflokkum á mótinu. Sindri Snær Freysson hampaði Norðurlandameistaratitli í barnaflokki 13 ára og yngri. Sport 27.6.2007 16:44
Þrír titlar hjá Íslendingum á NM í skylmingum í dag Íslensku keppendurnir á Norðurlandamótinu í skylmingum gerðu gott mót í dag. Þrír af íslensku keppendunum unnu þannig sigra í skylmingum með höggsverði á öðrum keppnisdeginum. Sport 26.6.2007 19:31
Andy Gray á Íslandi Skoska knattspyrnugoðsögnin Andy Gray hjá Sky-sjónvarpsstöðinni kemur til Íslands á morgun til að vera viðstaddur sérstakan blaðamannafund sem haldinn verður á miðvikudaginn. Á fundinum verður sjónvarpsstöðin Sýn 2 formlega kynnt til leiks en hún mun gera enska boltanum góð skil á íslandi frá og með upphafi næstu leiktíðar. Sport 25.6.2007 17:19
Skylmingar: 35 íslenskir keppendur á NM Alls taka 35 íslenskir keppendur þátt í Norðurlandamótinu í skylmingum sem verður haldið dagana 25. - 29. júní. Mótið verður í Óðinsvéum í Danmörku. Auk liðakeppni keppir Ísland í 11 flokkum. Sport 22.6.2007 16:41
Frjálsar: Landsliðið valið fyrir Evrópubikarkeppnina í Óðinsvé Landslið Frjálsíþróttasambands Íslands hefur verið valið fyrir Evrópubikarkeppnina í Óðinsvé um næstu helgi. Ísland keppir í A riðli 2. deildar. Sport 18.6.2007 15:35
Ísland með næstflest verðlaun á smáþjóðaleikunum Íslensku íþróttamennirnir stóðu sig vel á nýafstöðnum smáþjóðaleikum í Mónakó, en þeim lauk í gærkvöld. Íslenska keppnisliðið hlaut alls 76 verðlaun á leikunum en Kýpverjar unnu flest verðlaun - 91. Íslenska liðið vann 31 gullverðlaun, 22 silfur- og 23 brons. Sport 10.6.2007 17:01
Hafsteinn kom fyrstur í mark í Bláalónsþrautinni Hjólreiðamenn fengu sannkallað draumaveður í dag þegar hin árlega Bláalónsþraut á fjallahjólum fór fram í 11. sinn. Hjóluð var 60 km leið frá Hafnarfirði um Djúpavatnsleið, til Grindavíkur og þaðan í mark í Bláa Lóninu. Smelltu á spila til að sjá skemmtilegt myndbrot sem tekið var í keppninni. Sport 10.6.2007 16:17