Íþróttir
156 157 158 159 160 161 162 163 164 … 334 ›
Missir af landsleikjunum í næstu viku Gary Neville hefur verið gert að taka sér frí frá landsleikjum Englendinga í undankeppni EM í næstu viku. Neville er enn ekki búinn að ná sér að fullu af meiðslum á kálfa sem hann varð fyrir á HM í sumar. Sport 25.8.2006 13:09
Lerner tryggir sér meirihluta í Aston Villa Ameríski milljarðamæringurinn Randy Lerner hefur formlega eignast tæplega 60% hlut í enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, en þetta var tilkynnt í kauphöllinni í Lundúnum í dag. Lerner hefur því formlega eignast hlut Doug Ellis, fyrrum stjórnarformanns félagsins og vantar því lítið upp á að eignast 75% hlut í félaginu svo hann geti talist formlegur eigandi félagsins. Sport 25.8.2006 13:18
Það versta sem ég hef lent í á ferlinum Portúgalski miðjumaðurinn Pedro Mendes er nú á hægum batavegi eftir líkamsárásina sem hann varð fyrir í leik Manchester City og Portsmouth á dögunum, þegar Ben Thatcher réðist á hann og sló hann í andlitið með olnboganum. Mendes segir þetta verstu lífsreynslu sína á knattspyrnuvellinum. Sport 25.8.2006 12:59
Anelka til Bolton fyrir metfé Enska úrvalsdeildarfélagið Bolton hefur fest kaup á franska framherjanum Nicolas Anelka fyrir 8 milljónir punda, sem er metfé í sögu Bolton. Anelka kemur frá tyrkneska liðinu Fenerbahce þar sem hann hefur verið síðasta eitt og hálfa árið. Anelka spilaði áður með Arsenal, Liverpool og Manchester City og er því öllum hnútum kunnugur í ensku úrvalsdeildinni. Sport 25.8.2006 12:53
Tottenham mætir Slavia Prag Í dag var dregið í næstu umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, en sigurvegarar í næstu umferð tryggja sér sæti í riðlakeppninni. Tottenham, sem tekur nú þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn í nokkur ár, mætir tékkneska liðinu Slavia Prag. Newcastle mætir FC Tallin frá Eistlandi, Rangers mæta norska liðinu Molde og West Ham mætir ítalska liðinu Palermo frá Sikiley. Sport 25.8.2006 12:44
Verð að vera þolinmóður Sænska staðarblaðið Hallandsposten gerði framgöngu Gunnars Heiðars Þorvaldssonar hjá Hannover 96 að umfjöllunarefni í gær en hann var áður á mála hjá Halmstad og varð í fyrra markakóngur sænsku deildarinnar. Hann hefur hins vegar ekki verið valinn í hópinn hjá Hannover í fyrstu tveimur leikjum liðsins í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 24.8.2006 21:17
Við bregðumst stuðningsmönnum okkar ekki aftur Sir Alex Ferguson var ekkert að skafa af því í kvöld þegar hann var spurður um yfirlýst markmið Manchester United í riðlakeppni meistaradeildarinnar, en liðið hafnaði í riðli með Glasgow Celtic, Benfica og FC Kaupmannahöfn. Fótbolti 24.8.2006 23:34
Riðillinn verður erfiður en skemmtilegur Arsene Wenger á von á að Arsenal bíði erfitt en skemmtilegt verkefni í G-riðli meistaradeildar Evrópu í vetur þar sem liðið leikur ásamt Porto, CSKA Moskvu og Hamburg. Fótbolti 24.8.2006 23:17
Vissi að við fengjum Barcelona Peter Kenyon segir að það hafi nánast legið í loftinu að Chelsea og Barcelona ættu eftir að mætast enn eina ferðina í dag, þegar dregið var í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. Hann skorar þó á menn að gleyma ekki hinum liðunum tveimur í A-riðlinum. Fótbolti 24.8.2006 22:58
Newcastle í riðlakeppnina Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni Evrópumóts félagsliða þrátt fyrir að gera aðeins markalaust jafntefli við lettneska liðið Ventspils á heimavelli sínum. Newcastle vann fyrri leik liðanna 1-0 og fer áfram á því, en þrátt fyrir að hafa vaðið í færum í leiknum í kvöld, var leikmönnum fyrirmunað að skora. Sport 24.8.2006 22:55
KR-ingar í annað sætið KR-ingar skutust í annað sæti Landsbankadeildarinnar í kvöld þegar liðið lagði ÍBV 2-0 í vesturbænum. Björgólfur Takefusa skoraði bæði mörk KR í kvöld. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var afar óhress með leik sinna manna í kvöld og sagði þá hafa spilað eins og "helvítis lopasokka og aumingja" í fyrri hálfleiknum í viðtali við Guðjón Guðmundsson á Sýn. Sport 24.8.2006 19:52
KR hefur yfir gegn ÍBV Nú hefur verið flautað til leikhlés í viðureignunum þremur sem standa yfir í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Björgólfur Takefusa skoraði bæði mörk KR sem hefur yfir 2-0 gegn ÍBV í Frostaskjóli sem sýndur er í beinni á Sýn. Hafþór Ægir Vilhjálmsson skoraði mark ÍA sem hefur yfir 1-0 gegn Keflavík á Skaganum og markalaust er hjá Grindvíkingum og Víkingi í Grindavík. Sport 24.8.2006 18:46
Al Harrington loksins til Indiana Framherjinn Al Harrington er loksins genginn í raðir Indiana Pacers frá Atlanta Hawks í NBA deildinni. Félögin hafa þráttað við samningaborðið í allt sumar en í dag varð loks ljóst að Harrington gengi aftur til liðs við félagið sem tók hann í nýliðavalinu árið 1998. Harrington er 26 ára gamall og skoraði 18 stig og hirti 7 fráköst að meðaltali með Atlanta Hawks í fyrra. Körfubolti 24.8.2006 18:37
Juaquin til Valencia Spænska stórliðið Valencia hefur náð samkomulagi við Real Betis um kaup á vængmanninum Juaquin fyrir um 25 milljónir evra ef marka má fréttir frá Spáni í dag. Sagt er að aðeins eigi eftir að ganga frá formsatriðum í samningi leikmannsins sem er til fimm ára. Juaquin var um tíma eftirsóttur af liðum í ensku úrvalsdeildinni og hafði Liverpool meðal annars verið á höttunum eftir spænska landsliðsmanninum. Fótbolti 24.8.2006 18:27
Martins genginn í raðir Newcastle Nígeríumaðurinn Obafemi Martins er genginn formlega í raðir enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle frá Inter Milan á Ítalíu. Þessi 21 árs framherji hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið og er kaupverðið sagt röskar 10 milljónir punda. Sport 24.8.2006 18:17
Birkir í byrjunarliði ÍBV Gamla kempan Birkir Kristinsson hefur tekið fram hanskana á ný og er í byrjunarliði ÍBV sem sækir KR heim í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Birkir lagði hanskana á hilluna í fyrra, en hefur nú snúið aftur til að koma fyrrum félögum sínum í ÍBV til bjargar í markmannsvandræðum þeirra. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hægt er að fylgjast með gangi mála í leikjum kvöldsins á Boltavaktinni hér á Vísi. Sport 24.8.2006 17:38
KR - ÍBV í beinni á Sýn Þrír leikir fara fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld, en hér er um að ræða fyrstu leikina í 15. umferðinni. Leikur KR og ÍBV verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending klukkan 17:50 frá KR-velli. Skagamenn taka á móti Keflvíkingum á Skipaskaga og þá eigast við Grindavík og Víkingur suður með sjó. Allir leikirnir hefjast klukkan 18:00. Sport 24.8.2006 17:16
Ronaldinho valinn bestur Brasilíski snillingurinn Ronaldinho var í dag kjörinn besti leikmaðurinn í meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð, en tilkynnt var um valið um leið og dregið var í riðla fyrir keppnina í ár. Leikmenn Barcelona hirtu öll verðlaunin sem veitt voru í dag, nema verðlaunin fyrir besta markmanninn í meistaradeildinni sem féllu í hlut þýska markvarðarins Jens Lehmann hjá Arsenal. Fótbolti 24.8.2006 16:57
Enn mætast Barcelona og Chelsea Nú rétt áðan var dregið í riðla í meistaradeild Evrópu. Englandsmeistarar Chelsea drógust í riðil með Evrópumeisturum Barcelona og því er ljóst að liðin mætast þriðja árið í röð í keppninni. Eiður Smári Guðjohnsen fær því ef til vill tækifæri til að mæta sínum gömlu félögum í Chelsea á knattspyrnuvellinum fyrr en margan hefði grunað. Fótbolti 24.8.2006 16:27
Thatcher skrifar Mendes afsökunarbréf Forráðamenn Manchester City hafa sent frá sér tilkynningu vegna árásar Ben Thatcher á Pedro Mendes í leik Manchester City og Portsmouth í gær. Í tilkynningunni segir að Thatcher hafi skrifað Mendes bréf og beðið hann afsökunar á glórulausri framkomu sinni í gær. Þar kemur auk þess fram að forráðamenn City ætli að taka á málinu í sínum herbúðum og að Stuart Pearce muni ákveða refsingu leikmannsins. Sport 24.8.2006 15:45
Íslendingar þekktari fyrir skíðagöngu en knattspyrnu Á heimasíðu Barcelona er nú hægt að nálgast upplýsingar um feril Eiðs Smára Guðjohnsen sem knattspyrnumanns og þar kemur fram að hann hafi vissulega fetað í fótspor föður síns á knattspyrnuvellinum. Ekki virðast umsjónarmenn síðunnar vera jafn vel að sér í íslenskri íþróttasögu, því þar kemur fram að Íslendingar séu þekktari fyrir afrek sín í skíðagöngu en á knattspyrnuvellinum. Fótbolti 24.8.2006 15:27
Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Riðlakeppninni á HM í körfubolta í Japan er nú lokið og ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum keppninnar. Bandaríkjamenn völtuðu yfir Senegala í lokaleik sínum í dag og vann liðið því alla fimm leiki sína í riðlinum. Evrópumeistarar Grikkja lögðu Tyrki 76-69 og unnu einnig alla leiki sína í riðlakeppninni. Körfubolti 24.8.2006 14:38
Abramovich sættir sig ekki við neitt minna en Evróputitil í ár Ítalinn Claudio Ranieri, forveri Jose Mourinho hjá Chelsea, segir að Roman Abramovich eigandi félagsins sætti sig ekki við neitt minna en sigur í meistaradeildinni á þessari leiktíð. Ranieri segir að þó Mourinho segi það forgangsatriði að vinna ensku deildina, gæti hann jafnvel þurft að leita sér að nýju starfi ef hann stýrir liðinu ekki til sigurs í meistaradeildinni í vor. Sport 24.8.2006 14:20
Orðrómur á kreiki um drykkjuskap Raikkönen Síðustu daga hefur þrálátur orðrómur verið á kreiki á vefsíðum sem tengjast Formúlu 1 að finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hafi verið tekinn fyrir ölvunarakstur eftir kappaksturinn í Ungverjalandi á dögunum. Raikkönen var sagður hafa týnt peningaveski sínum með nokkrum fjármunum, ökuskírteini sínu og vegabréfi, en sumir vilja meina að lögreglan hafi tekið það af honum eftir að hann var handtekinn. Formúla 1 24.8.2006 13:54
Tilboði Atletico Madrid í Reyes hafnað Spænska knattspyrnufélagið Atletico Madrid ætlaði sér að slá grönnum sínum í Real Madrid ref fyrir rass í gær með því að gera kauptilboð í spænska landsliðsmanninn Jose Anthonio Reyes hjá Arsenal, en himinn og haf er á milli þeirrar upphæðar sem enska félagið vill fá fyrir hann og þess sem Atletico er tilbúið að borga fyrir hann. Fótbolti 24.8.2006 13:43
Dirk Nowitzki fór hamförum Dirk Nowitzki var gjörsamlega óstöðvandi í morgun þegar Þjóðverjar unnu 108-103 sigur á Angóla í rafmögnuðum þríframlengdum leik á HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Nowitzki skoraði 47 stig og hirti 16 fráköst fyrir Þjóðverja, en þetta var í fyrsta sinn í sögu HM sem leikur fer í þrjár framlengingar. Körfubolti 24.8.2006 12:37
Atvik í leik Manchester City og Portsmouth til rannsóknar Enska knattspyrnusambandið og lögreglan í Manchester eru nú að rannsaka ljótt atvik sem átti sér stað í leik Manchester City og Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í gær, þegar Ben Thatcher, leikmaður City, rotaði Portúgalann Pedro Mendes hjá Portsmouth. Sport 24.8.2006 12:23
Hundóánægður með hugarfar leikmanna Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var skiljanlega ekki sáttur við sína menn eftir að þeir töpuðu 2-1 fyrir Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann sagði liðið sem hann horfði á missa niður 1-0 forystu og tapa á síðustu tíu mínútum leiksins ekki hafa verið "Jose Mourinho lið." Sport 24.8.2006 12:06
Þrír leikir í kvöld Fimmtánda umferð Landsbankadeildar karla hefst í kvöld með þremur leikjum. KR mætir ÍBV vestur í bæ, ÍA tekur á móti Keflavík og Grindavík og Víkingur mætast suður með sjó. Umferðinni lýkur síðan á sunnudag þegar FH tekur á móti Breiðablik og Valsmenn heimsækja Fylki í Árbæinn. Sport 23.8.2006 21:46
Vill burt frá Stoke City Hannes Þ. Sigurðsson staðfesti við Fréttablaðið í gær að hann vilji fara frá Stoke City sem leikur í ensku 1. deildinni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa norsk lið mikinn áhuga á að klófesta kappann. Fótbolti 23.8.2006 21:46