Íþróttir
143 144 145 146 147 148 149 150 151 … 334 ›
Jimmy Bullard úr leik Jimmy Bullard leikur ekki meira með Fulham í ensku úrvalsdeildinni á þessu keppnistímabili eftir að hafa meiðst illa á hné á dögunum. Bullard byrjaði ferilinn vel hjá Fulham í sumar eftir að hann kom frá Wigan, en nú er ljóst að hann verður frá keppni í að minnsta kosti níu mánuði. Sport 12.9.2006 17:30
Thatcher sleppur ótrúlega vel Varnarmaðurinn Ben Thatcher hjá Manchester City hefur verið dæmdur í átta leikja bann af aganefnd enska knattspyrnusambandsins eftir líkamsárás sína á Pedro Mendes hjá Portsmouth í leik liðanna á dögunum. Thatcher hefur þegar tekið út tvo leiki af sex sem hann fékk í bann frá City og missir því aðeins af sex leikjum í viðbót með liði sínu. Sport 12.9.2006 17:13
Lætur Schumacher heyra það Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher hjá Ferrari sé óíþróttamannslegasti ökuþór í sögu Formúlu eitt og hlakkar til að losna við hann úr keppni á næsta ári eftir að Þjóðverjinn tilkynnti að hann ætlaði að hætta eftir yfirstandandi keppnistímabil. Formúla 1 12.9.2006 15:48
Veislan hefst í kvöld Hin árlega veisla knattspyrnuáhugamanna hefst í kvöld þegar riðlakeppni meistaradeildarinnar hefst með látum. Sjónvarpsstöðin Sýn lætur sitt ekki eftir liggja á þeim bænum frekar en venjulega og verður með þrjár beinar útsendingar frá keppninni í kvöld. Þá verða þeir Guðni Bergs og Heimir Karls að sjálfssögðu á sínum stað og fara yfir stöðu mála í leikjum kvöldsins. Fótbolti 12.9.2006 14:16
Blikar í eldlínunni í dag Kvennalið Breiðabliks hefur leik í milliriðlum Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu í dag þegar liðið mætir finnsku meisturunum í HJK Helsinki. Sport 12.9.2006 14:23
Henry verður ekki með gegn Hamburg Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, verður ekki með liði sínu annað kvöld þegar það mætir Hamburg í mestaradeild Evrópu eftir að hafa meiðst á fæti á æfingu. Unglingurinn Theo Walcott er aftur kominn í hóp Arsenal eftir að hafa verið hvíldur og þá er reiknað með að Julio Baptista verði í hópnum. Jens Lehmann snýr einnig aftur í lið Arsenal eftir að hafa tekið út leikbann. Fótbolti 12.9.2006 13:49
United vinnur Celtic Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United og Glasgow Celtic, segist hafa grunað að liðin ættu eftir að mætast í meistaradeildinni í ár þegar hann hætti að leika með enska liðinu á sínum tíma. Keane telur að United muni fara með sigur af hólmi í "Baráttunni um Bretland" annað kvöld. Fótbolti 12.9.2006 13:16
Sló öll aðsóknarmet um helgina Heimildarmyndin Þetta er ekkert mál sem byggð er á ævi kraftajötunsins Jóns Páls Sigmarssonar, sló öll aðsóknarmet í kvikmyndahúsum þegar hún var frumsýnd um helgina. Tvöfalt fleiri sáu myndina en heimildarmyndina Blindsker um Bubba Morthens á sínum tíma og reiknað er með að hún eigi eftir að verða vinsælasta heimildarmynd sem gerð hefur verið á Íslandi. Sport 12.9.2006 13:37
Benitez mætir Koeman á ný Rafa Benitez, stjóri Liverpool, mun í kvöld reyna að forðast að tapa fyrir liði undir stjórn Ronald Koeman annað árið í röð í meistaradeildinni þegar Liverpool mætir PSV Eindhoven. Koeman stýrði liði Benfica á síðustu leiktíð þegar liðið sló Liverpool úr keppni, en viðureign PSV og Liverpool í kvöld verður sýnd beint á Sýn. Fótbolti 12.9.2006 13:05
Inter Milan er með besta hóp í heimi Jose Mourinho segir að þó vissulega verði Chelsea að teljast eitt af þeim liðum sem eru sigurstrangleg í meistaradeildinni í ár, séu að minnsta kosti tíu lið sem hafi alla burði til að vinna keppnina. Hann segir ítalska liðið Inter Milan vera með sterkasta leikmannahóp allra liða í heiminum í dag. Fótbolti 12.9.2006 12:38
Við erum að nálgast okkar besta form Thierry Henry, franska markamaskínan hjá Arsenal, er sannfærður um að liðið muni brátt finna sitt besta form. Arsenal hefur farið afar hægt af stað í ensku úrvalsdeildinni í ár og aðeins hlotið tvö stig í fyrstu þremur leikjum sínum. Sport 10.9.2006 20:47
Hefur engar áhyggjur af Shevchenko Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segist styðja Andrei Shevchenko heilshugar í baráttu sinni við að skora fleiri mörk en Úkraínumaðurinn hefur aðeins skorað eitt mark í fyrstu fjórum leikjum liðsins. Það er undir þeirri tölfræði sem vænst var af honum í kjölfarið á 30 milljón punda sölunni frá AC Milan í sumar. Sport 10.9.2006 20:56
Einn sá besti í sögu Man. Utd. Sir Alex Ferguson sparaði ekki stóru orðin í garð Ryan Giggs eftir frammistöðu hans gegn Tottenham í gær og segir hann vera einn besta leikmann í sögu Manchester United. Giggs skoraði sigurmarkið í leiknum, var valinn leikmaður mánaðarins í úrvalsdeildinni og virðist aldrei hafa verið í betra formi. Sport 10.9.2006 13:00
Nistelrooy skoraði þrennu Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy fór hamförum og skoraði þrennu þegar Real Madrid burstaði Levante 4-1 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta var fyrsti sigur Real í deildinni í ár. Fótbolti 10.9.2006 20:40
Raikkönen tekur við af Schumacher Það verður Finninn Kimi Raikkönen sem mun taka sæti Michael Schumacher sem ökumaður Ferrari á næsta keppnistímabili í formúlu 1. Þetta tilkynnti stjórn Ferrari eftir Ítalíu-kappaksturinn í dag en áður hafði Schumacher greint frá því að hann hyggðist draga sig í hlé eftir tímabilið. Formúla 1 10.9.2006 15:11
Góður dagur hjá Íslendingunum Fjölmargir leikir fóru fram í norsku og hollensku úrvalsdeildunum í fótbolta í kvöld. Öll Íslendingaliðin unnu góða sigra í sínum leikjum. Sport 10.9.2006 20:28
Crouch er ekki öruggur Terry Venables, aðstoðarmaður Steve McLaren hjá enska landsliðinu í fótbolta, segir að Peter Crouch, sóknarmaður Liverpool, sé ekki öruggur með byrjunarliðssæti í enska liðinu þrátt fyrir að hafa skorað 11 mörk í 14 landsleikjum. Sport 10.9.2006 15:00
Jol vill selja Defoe Nokkur ensku blaðana greindu frá því í morgun að Martin Jol, stjóri Tottenham, sé tilbúinn að losa sig við enska landsliðsframherjann Jermain Defoe og ætli sér að hlusta vel á tilboð sem gætu borist í hann þegar leikmannaglugginn opnast að nýju í byrjun næsta árs. Sport 10.9.2006 13:14
Jafnt hjá West Ham og Aston Villa West Ham og Aston Villa gerðu 1-1 jafntefli í leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liam Ridgwelle kom Villa yfir strax í upphafi leiks en hinn funheiti Bobby Zamora jafnaði á 52. mínútu. Carloz Tevez kom inn á hjá West Ham þegar hálftími var eftir en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Sport 10.9.2006 16:56
Andri jafnaði í blálokin Andri Ólafsson skoraði í uppbótartíma fyrir ÍBV og tryggði liðinu dýrmætt stig í leiknum gegn FH í Eyjum í dag. FH náði þar með ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Sport 10.9.2006 16:34
Staðan versnar fyrir ÍA ÍA er ennþá í 9. sæti Landsbankadeildar karla eftir að hafa misst unnin leik gegn Breiðablik niður í jafntefli í síðari hálfleik í dag. Atli Guðnason er búinn að koma FH í 1-0 í Eyjum þegar rúmur hálftími er eftir. Sport 10.9.2006 15:55
Argentínumennirnir á bekknum Carlos Tevez og Javier Macherano, argentínsku landsliðsmennirnir sem gengu til liðs við West Ham fyrir skemmstu, eru ekki í byrjunarliði liðsins í leiknum gegn Aston Villa. Leikurinn er að hefjast á Upton Park, heimavelli West Ham. Sport 10.9.2006 14:57
ÍA skoraði á síðustu mínútu Guðjón Heiðar Sveinsson var að koma Skagamönnum í 2-1 í viðureign liðsins gegn Breiðablik í Kópavogi. Staðan hjá Keflavík og Fylki er 1-1 en það er enn markalaust í leik Víkings og KR. 45 mínútna seinkunn varð á leik ÍBV og FH í Eyjum og er hann því að hefjast núna. Sport 10.9.2006 14:46
Schumacher ætlar að hætta eftir tímabilið Þýski ökuþórinn Michael Schumacher var rétt í þessum að tilkynna á dramatískum blaðamannafundi eftir Ítalíukappaksturinn að hann hafi ákveðið að þetta verði síðasta tímabilið á hans ferli. Þrjú mót eru eftir á keppnistímabilinu og eftir þau er Schumacher hættur. Formúla 1 10.9.2006 13:36
Hafði fylgst með Kuyt í þrjú ár Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hafði verið með hollenska framherjann Dirk Kuyt undir smásjánni í þrjú ár áður en hann lét verða af því að kaupa hann í sumar. Sport 10.9.2006 11:43
Schumacher sigraði Aðeins tveimur stigum munar á Fernando Alonso og Michael Schumacher í stigakeppni ökumanna í formúlu 1 eftir að sá þýski sigraði í Ítalíu-kappakstrinum sem var að ljúka rétt í þessu. Alonso féll úr leik þegar 10 hringir voru eftir og fer því stigalaus frá Monza. Formúla 1 10.9.2006 13:19
Alonso fallinn úr keppni Heimsmeistarinn Fernando Alonso var rétt í þessu að falla úr leik í Ítalíu-kappakstrinum. Vélin í bíl Alonso nánast hvellsprakk en þetta er í fyrsta skipti í hjartnær tvö ár sem vél Renault klikkar. Formúla 1 10.9.2006 13:06
Þetta er ekki íþrótt Ökuþórinn Fernando Alonso, sem ekur fyrir Renault í formúlu 1, er æfur eftir að hafa verið refsað fyrir að hindra Felipe Massa í tímatökunum fyrir Ítalíu-kappaksturinn í gær, að því er yfirmenn formúlunnar segja að hafi verið vísvitandi. Alrangt, segir Alonso. Formúla 1 10.9.2006 12:52
Annar risatitill Sharapovu Maria Sharapova bar sigur úr býtum á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis í nótt með því að sigra Justin Henen Hardinne frá Belgíu í úrslitaleik, 6-4 og 6-4. Þetta er í annað sinn sem Sharapova sigrar á einu af fjórum árlegu risamótunum í tennis. Sport 10.9.2006 11:50
ÍBV fellur og fjögur önnur lið eru í hættu Í dag hefst 16. umferð Landsbankadeildar karla með fjórum leikjum. FH getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum og Ólafur Þórðarson, sem spáir í spilin fyrir Fréttablaðið í dag, býst ekki við öðru. „Þeir tryggja sér titilinn í þessum leik. Ég held að það sé ekki spurning,“ sagði Ólafur. Sport 9.9.2006 20:56