
Verkföll 2019

Slíta viðræðum ef ekkert þokast
Fyrir helgi samþykktu sextán aðildarfélög SGS að slíta formlega viðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA) ef ekkert nýtt kæmi frá SA um helgina.

Rekstur hótela í járnum þó ekki komi til launahækkana
Vísbendingar um að ferðamönnum fækki og nýting á hótelherbergjum dragist saman, samkvæmt skoðun Viðskiptaráðs. Miklar launahækkanir gætu haft þveröfug áhrif á það sem stefnt er að.

Atvinnurekendur hafa ekki lagt fram nýjar hugmyndir í kjaraviðræðum
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins skoðar möguleg verkföll ef viðræðum við atvinnurekendur verður slitið á morgun eins og sambandið hefur hótað að gera. Samtök atvinnulífsins hafa um helgina ekki lagt fram neinar nýjar hugmyndir.

Frekari tilraunir til að reyna á verkfallslög verði kærðar til Félagsdóms
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að ef Efling haldi áfram að gera tilraunir til að reyna á lög um verkfallsaðgerðir verði það kært til Félagsdóms.

Formaður Eflingar segir örverkföll ólögleg á tæknilegum forsendum
Formaður Eflingar segir að Félagsdómur hafi dæmt svokölluð örverkföll félagsins ólögleg á tæknilegum forsendun. Vel komi til greina að beita þeim áfram í kjarabaráttunni. Félagsdómur dæmdi í gær fjögur af sjö verkföllum sem félagsmenn Eflingar höfðu greitt atkvæði um ólögmæt.

Öruggt að SGS slíti viðræðum ef ekkert gerist um helgina
Sextán aðildarfélög Starfsgreinasambandsins ætla að slíta viðræðum við Samtök atvinnulífsins ef atvinnurekendur leggja ekkert nýtt fram í viðræðum þeirra um helgina. Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir samningaviðræður steyta á ágreiningi um vinnutíma.

„Við töldum augljóst að þessi túlkun gæti ekki staðist“
Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að fjögur af þeim sjö verkföllum sem félagsmenn Eflingar greiddu atkvæði um og hafði verið boðað til. Hið fyrsta átti að koma til framkvæmda á mánudag. Um eru að ræða svokölluð örverkföll.

Félagsdómur segir örverkföll Eflingar ólögleg
Félagsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að örverkföll sem Efling hafði boðað til væru ólögleg og munu því ekki koma til framkvæmda.

Væntir niðurstöðu Félagsdóms á sunnudag
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, væntir þess að niðurstaða Félagsdóms liggi fyrir á sunnudag.

Erlend fyrirtæki nýta sér verkföllin
Erlend hópferðafyrirtæki taka viðskipti frá íslenskum fyrirtækjum með því að bjóðast til að veita þjónustu meðan á verkföllum stendur.

Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir hafa ekki áhrif á akstursþjónustu fatlaðra
Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir sem Efling hefur boðað mun ekki hafa áhrif á akstursþjónustu fatlaðs fólks að því er fram kemur í tilkynningu frá Strætó bs.

„Halldór Benjamín, með fullri virðingu, er ekki spákona“
Varaformaður VR kveðst vera orðin þreytt á því að viðsemjendur þeirra spái í sífellu fyrir um niðursveiflu í hagkerfinu.

Segir félagsmenn vilja sækja fram af fullum þunga gagnvart SA
Hörður segir að til standi að boða til félagsfundar í lok mars þar sem greitt verður atkvæði um verkfallsaðgerðir. Ef félagsmenn sammælast um að leggja niður störf hefjast verkföll um miðjan apríl.

Mál SA gegn Eflingu þingfest í félagsdómi í gær
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir að með örverkföllum sé verið að reyna á ystu þolmörk vinnulöggjafarinnar. Málið var þingfest í gær.

Formaður VR hefði viljað sjá afdráttarlausari niðurstöðu
Naumur meirihluti félaga í VR samþykkti verkfallsaðgerðir sem hefjast eiga þann 22. mars. Stjórnarformaður Gray Line segir niðurstöðuna vonbrigði.

Verkfallsboðunin ákall um að SA komi með raunhæft tilboð
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vonar að viðsemjendur komi með myndarlegra tilboð en verið hefur að borðinu til að ekki þurfi að koma til verkfalla sem hefur verið boðað til og samþykkt í atkvæðagreiðslu.

Verkföll byrjuð að valda þrýstingi segir framkvæmdastjóri SAF
Efling og VR boða áframhaldandi verkföll á föstudag í næstu viku.

Segir erlend hópferðabifreiðafyrirtæki undirbjóða þau íslensku
Boðaðar verkfallsaðgerðir hafa þegar valdið hópferðafyrirtækjum tjóni og fyrirtæki misst viðskipti til erlendra rútufyrirtækja að sögn formanns Félags hópferðaleyfishafa.

Efling segir vinnustöðvanir fallnar til að lágmarka tjón
Framkvæmdastjóri Eflingar segir að boðaðar verkfallsaðgerðir hafi verið þróaðar í nánu samstarfi við félagsmenn.

Lengi sagt við konur að þær þurfi bara að mennta sig
Formaður félags kvenna í atvinnulífinu segir konur lengi hafa staðið sig betur en karlar í háskóla. Það virðist þó litlu skipta þegar komi að ráðningu forstjóra í einkageiranum.

„Verið að reyna á ystu þolmörk vinnulöggjafarinnar“
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að boðaðar verkfallsaðgerðir Eflingar þar sem starfsfólk sinnir aðeins hluta venjubundinna starfa reyni á þolmörk vinnulöggjafarinnar.

Hyggjast kæra verkfallsaðgerðir Eflingar
Samtök Atvinnulífsins ætla í dag eða á morgun að kæra tilteknar boðaðar verkfallsaðgerðir Eflingar fyrir félagsdómi en aðgerðirnar voru samþykktar í atkvæðagreiðslu um helgina.

Félagsmenn Eflingar samþykktu verkföll með miklum meirihluta
Talningu í atkvæðagreiðslu um verkföll hjá tilgreindum hópum félagsmanna í Eflingu lauk um hádegi í dag.

Segir verkföllin leiða til „hamfara í ferðaþjónustunni“
Viðar Þorsteinsson og Jóhannes Þór Skúlason ræddu komandi verkfallsaðgerðir í Sprengisandi í morgun.

Baráttuhugur í kröfugöngu
Hótelþernur í Eflingu lögðu niður störf klukkan tíu í gærmorgun og stóð verkfallið til miðnættis.

Fyrsta degi verkfallsaðgerða lokið
Verkfalli hótelþerna sem eru félagsmenn í Eflingu lauk nú á miðnætti. Þar með er fyrsta degi verkfallsaðgerða félagsins lokið.

„Algjörlega stórkostlegur dagur“
Það verður ekki annað sagt en að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sé í skýjunum með það hvernig verkfallsaðgerðir félagsins tókust til í dag.

Segir starfsnema ekki mega ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli
Margar spurningar hafa vaknað í kringum verkfallið og þá helst hverjir mega ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli. Skiptar skoðanir eru meðal Samtaka atvinnulífsins og Verkalýðshreyfingarinnar

Segir hótelin ofurseld VR og Eflingu
Verkfallið í dag og fyrirhugaðar aðgerðir á næstu vikum og mánuðum eru þegar farnar að hafa verulega alvarleg áhrif að sögn Kristófers Oliverssonar, framkvæmdastjóra og eiganda Center Hotels og formanns Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu.

Samstaða og einhugur í hópi verkfallsfólks
Mikill hugur var í þernum um tuttugu hótela á höfuðborgarsvæðinu og víðar þegar verkfall um sjöhundruð félagsmanna Eflingar skall á í morgun.