Skattar, tollar og gjöld

Fréttamynd

Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi

Allir sem tóku eldsneyti fyrir miðnætti í gær borguðu lægra verð en þeir sem biðu með að dæla þar til í dag eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi. Um tíma leit út eins og Olís hefði þjófstartað í hækkununum í Mosfellsbæ en um var að ræða bilun í kerfi og allir greiddu rétt verð. Framkvæmdastjórinn gagnrýnir hve stuttan tíma olíufélögin fá til að bregðast við meiriháttar breytingum stjórnvalda. 

Neytendur
Fréttamynd

Bensínlítrinn hefur hækkað á ný

Bensín hefur almennt hækkað um 23 til 24 krónur lítrinn frá því í gær á dælu en á miðnætti rann út tímabundin heimild til að lækka virðisauka á bensín og dísil. Lítrinn af dísil hefur hækkað um 27 krónur. 

Neytendur
Fréttamynd

Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum

Svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu álykta VR og fagfélög að leiðrétta þurfi kjarasamningsbundin laun gagnvart verðbólgu, fjölga frídögum til að koma til móts við þjónustuskerðingar við leik- og grunnskólabörn og tryggja raunverulegt þak á verð- og gjaldskrárhækkanir. 

Innlent
Fréttamynd

Stefnir í fjölda­gjald­þrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum

Bílaleigufyrirtæki hafa leitað til lögmanns eftir að hafa borist rukkun frá Ríkisskattstjóra. Lögmaður segir að upphæðirnar geti skipt hundruðum milljóna og lýsir því hvernig rukkunin hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti fyrir mörg fyrirtæki. Hann óttast að málið geti leitt til fjöldagjaldþrota fari svo að stjórnvöld haldi því til streitu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins

Þrátt fyrir háværan áróður og beitingu tolla milli Bandaríkjanna og Kanada segjast greinendur vestanhafs sannfærðir um að ríkisstjórnir landanna muni komast að samkomulagi. Hvorki Bandaríkjamenn né Kanadamenn vilji í raun vera í viðskiptastríði. Donald Trump og félagar virðast þó telja sig með pálmann í höndunum.

Erlent
Fréttamynd

Auknar tekjur og minni kostnaður

Tekjur Sýnar jukust um 2,8 prósent á milli ára á sama tíma og rekstrarkostnaður lækkaði um 2,3 prósent á milli ára. Forstjóri fyrirtækisins segir tap á ársfjórðungnum skýrast af afskriftum á sýningarréttum. Starfsfólki hefur fækkað um 47 á milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Car­n­ey verður við­staddur stefnu­ræðu ESB-for­seta

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur þekkst boð um að vera viðstaddur stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í næsta mánuði. Sambandið og Kanada hafa færst nær hvert öðru í skugga ágreinings við Bandaríkjastjórn.

Erlent
Fréttamynd

Kanada svarar tollum Banda­ríkja­stjórnar

Fjármálaráðherra Kanada kynnti í dag hefndartolla Kanada á ýmsar bandarískar vörur sem svar við nýjum tollum Bandaríkjastjórnar. Lagður verður tollur á bilinu 15 til 50 prósent á ýmsar bandarískar vörur og taka þeir gildi á miðnætti 8. september.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Daði í baði

10 ástæður fyrir því að virðisaukaskattshækkun á baðlón er galin

Skoðun
Fréttamynd

Elkem segir toll­frelsi geta skilað 350 milljónum á ári

Elkem áætlar að núverandi tollakjör í Bandaríkjunum geti bætt afkomu verksmiðjunnar á Grundartanga um 300 til 350 milljónir króna á ári. Íslenskt kísiljárn, sjávarafurðir og eldisafurðir eru nú tollfrjálsar á Bandaríkjamarkaði á meðan vörur frá nokkrum helstu samkeppnisríkjum bera viðbótartolla.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Við þurfum ekki á Kanada að halda“

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Kanada hafa kallað eftir því að Mark Carney, forsætisráðherra, opinberi þau samningsdrög sem lágu fyrir í viðræðunum við Bandaríkin. Kanadamenn neituðu að skrifa undir samninginn og í kjölfarið setti ríkisstjórn Donalds Trump umfangsmikla tolla á vörur frá Kanada en Carney hafði varað við aðgerðum sem þessu í ræðu í Davos fyrr á árinu.

Erlent
Fréttamynd

Al­menningur á­kveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og á­hætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin

Kosningarnar 29. ágúst snúast að mínu mati um miklu meira en það eitt hvort Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Stundum finnst mér umræðan hjá sumum minna á skammtímaupphrópanirnar í kringum Brexit, þar sem langtímahagsmunir þjóðarinnar fengu ekki alltaf þá virðingu sem þeir áttu skilið, eins og síðar hefur komið í ljós.

Skoðun
Fréttamynd

„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“

Forsætisráðherra Kanada hefur sagt að bylgju bandarískra tolla á landið sé ætlað að „skaða og sundra okkur“, eftir að viðskiptaviðræður fóru út um þúfur á dögunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað tilkynnt nýja íþyngjandi tolla og nú hefur forsætisráðherrann sagst ætla að jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá og með 8. september.

Erlent
Fréttamynd

Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í nótt að hann hefði ákveðið að fresta gildistöku boðaðra refsitolla á Kanada sem áttu að taka gildi í dag um þrjá daga og segir hann viðræður um nýjan viðskiptasamning milli ríkjanna vera á lokametrunum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hin hliðin ljúgi að lands­mönnum

Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar.

Innlent
Fréttamynd

Þessir voru tekju­hæstu læknarnir og tann­læknarnir í fyrra

Röntgenlæknirinn Halldór Benediktsson trónir á toppi listans yfir tekjuhæstu lækna og tannlækna landsins með ríflega sex milljónir á mánuði árið 2025. Fast á hæla honum koma svo skurðlæknirinn Jón H. H. Sen og yfirlæknirinn Súsanna B. Ástvaldsdóttir með hvor sínar tæplega sex milljónirnar á mánuði í fyrra. Ofarlega á listanum er að finna heimilslækna, þyrlulækna, geðlækna og svæfingalækna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Árni skattakóngur annað árið í röð

Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, var launahæstur Íslendinga árið 2025, með rúmar 46 milljónir króna á mánuði. Hann var einnig tekjuhæstur í fyrra en var þá með ívið lægri laun, eða rúmar 40 milljónir á mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ríkis­stjórn sem vandar sig ekki veldur skaða

Í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun var rætt við Ástu Stefánsdóttir, sveitarstjóra Bláskógarbyggðar og Harald Þór Jónsson oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps um neikvæð áhrif hækkunar virðisaukaskatts á baðlón á uppbyggingu ferðaþjónustu í nærsamfélögum á landsbyggðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts

Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fari mjög lík­lega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir jákvætt að unnið sé að því að vinna upp samkeppnishæfni sem hafi tapast undanfarin ár. Aftur á móti séu ýmis atriði sem séu óásættanleg og núverandi ríkisstjórn haldi uppi mýtum um greinina frekar en staðreyndum. Sem dæmi sé því haldið fram að hún sé best geymd á lágframleiðni- og láglaunaskalanum þegar hún sé í raun meðallaunagrein í hagkerfinu.

Innlent
Fréttamynd

Björg­ólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu

Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti sitt frá Bretlandi til Ítalíu vegna breytinga sem hafa verið gerðar á bresku skattkerfi. Hann þyrfti nú að greiða skatt á tekjum sem hann aflar sér utan Bretlands.

Innlent