Suðurnesjabær
1 2 3 4 5 6 7 8 … 12 ›
Flúði kuldann heima og gisti í Kópavogi Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er búsettur á Suðurnesjum en flúði kuldann þar og fór til Kópavogs. Innlent 12.2.2024 08:37
Vatn farið að streyma í heitavatnstanka á Fitjum Framkvæmdir við nýja hjáveitulögn Njarðvíkuræðarinnar gengu vonum framar í nótt og vatn er nú tekið að streyma inn í heitavatnstanka HS Orku á Fitjum. Innlent 12.2.2024 07:46
„Hér er um lengri tíma viðburði að ræða“ Orkumálastjóri segir ljóst að atburðirnir á Suðurnesjum komi til með að endurtaka sig og mikilvægt sé að innviðir séu undir það búnir. Vinnuvegur var lagður í nótt ofan á hraunið sem flæddi yfir Grindavíkurveg í núliðnu eldgosi. Innlent 11.2.2024 21:00
„Það er í raun allt mjög einstakt við þetta verkefni“ Vinnuvegur var lagður í nótt ofan á heitt hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í síðustu viku. Skammt frá vinna tugir manna, allan sólarhringinn, við varasamar aðstæður að nýrri hjáveitulögn fyrir Suðurnesin. Innlent 11.2.2024 18:45
Skólastarf á nær öllum Suðurnesjum á morgun Að öllu óbreyttu verður skólastarf á morgun í leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum á morgun að undanskyldum Sandgerðisskóla og leikskólanum Sólborg í Suðurnesjabæ. Innlent 11.2.2024 18:35
Aflraunir á Suðurnesjum Það eru snúnir tímar á Suðurnesjum þessa dagana þegar dýrmætasta auðlind Íslendinga jarðhitaorkan hikstar aðeins, einmitt vegna jarðhita sem upp kom í nágrenninu með heldur harkalegum hætti. Skoðun 11.2.2024 18:00
Álag við þolmörk um kvöldmatarleyti og brýnt að raforkunotkun sé takmörkuð HS veitur biðla enn og aftur til íbúa Suðurnesja að fara sparlega með rafmagn um kvöldmatarleytið vegna ástandsins sem þar er en heitavatnslaust hefur verið síðan á fimmtudag. Innlent 11.2.2024 17:56
Sporthúsið býður íbúum aðgang að sturtu ókeypis Sporthúsið í Reykjanesbæ hefur ákveðið að bjóða heitavatnslausum íbúum ókeypis í sturtu. Æfingaaðstaða þeirra er líka opin. Innlent 11.2.2024 16:56
Vegagerð yfir hraunið er lokið Framkvæmdir næturinnar við hjáveitulögn Njarðvíkuræðar gengu vel og örugglega fyrir sig samkvæmt HS Orku. Vegur liggur nú yfir heitt hraunið. Þjónusta á Suðurnesjum verður skert næstu daga en fyrirkomulag skólahalds er til skoðunar. Innlent 11.2.2024 10:44
Flúðu heimilið með fimm daga gamalt barn Ung hjón af Suðurnesjum flúðu heimili sitt á dögunum með tvö ung börn, þar af annað fimm daga gamalt. Þau eru á leið í sumarbústað sem þau fengu lánaðan hjá ókunnugri konu, en vita ekki hvenær þau geta snúið aftur heim. Innlent 10.2.2024 20:01
„Þetta verður erfið vika“ Samskiptastjóri Almannavarna segir sviðsmyndina á Suðurnesjum svarta eins og staðan er núna. Heitavatnslaust er á öllum Suðurnesjum og hún segir ljóst að erfið vika blasi við. Innlent 10.2.2024 19:21
Suðurnesjabúar fá frítt í sund í Hveragerði Hveragerðisbær býður íbúum á Suðurnesjum frítt í sundlaugina í Laugaskarði í Hveragerði í dag og svo lengi sem heitavatnsleysi varir. Innlent 10.2.2024 18:29
Almannavarnir boða til upplýsingafundar Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar klukkan 17. Á fundinum verður farið yfir atburði síðustu daga á Reykjanesskaganum. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 10.2.2024 14:50
Margra daga heitavatnsleysi blasir við: Grafalvarleg staða Margra daga heitavatnsleysi blasir við íbúum Suðurnesja. Grafalvarleg staða er komin upp að sögn samskiptastjóra almannavarna sem segir nú reyna á samtakamátt íbúa sem aldrei fyrr. Boðað hefur verið til upplýsingafundar almannavarna klukkan 17. Innlent 10.2.2024 12:18
Staðan á kerfunum þokkalega góð Bæjarstjórar sveitarfélaga á Suðurnesjum koma saman til fundar í Reykjanesbæ um hádegisleytið og fara yfir stöðuna. Fundað verður reglulega í allan dag til að skipuleggja starfsemina og ákveða aðgerðir fyrir næstu daga. Innlent 10.2.2024 10:58
Ekki hægt að segja til um hvenær heita vatnið kemur á Almannavarnir og HS Orka undirbúa lagningu annarrar hjáveitulagnar eftir að hin laskaðist undir hrauni í nótt. Heitavatnslaust er í Reykjanesbæ og álagið á rafmagnskerfið slíkt að slegið hefur út víða á svæðinu og segja almannavarnir kerfið vera að þolmörkum komið. Innlent 10.2.2024 10:20
Hjáveitulögn í sundur og ekkert heitt vatn næstu daga Hjáveitulögn meðfram Njarðvíkuræðinni fór í sundur undir miðju hrauni um klukkan 22:30 í kvöld. Vegna þessa berst ekki lengur heitt vatn til Reykjanesbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku. Innlent 10.2.2024 00:48
Vara við langvarandi rafmagnsleysi haldi fólk ekki út Almannavarnir hvetja íbúa á Reykjanesi til að spara rafmagn og vara við alvarlegum afleiðingum haldi kerfið ekki út þessa álagstíma. Innlent 9.2.2024 21:17
Orkuinnviðir íslands eiga að vera sameign þjóðarinnar Hraun hefur nú runnið yfir heitavatnslögnina, svokallaða Njarðvíkuræð fyrir vatn frá Svartsengi að Fitjum. Atburðarásinvar hraðari en nokkur sá fyrir eftir því sem fram kemur hjá Almannavörnum. Nú blasir við gríðarlega alvarlegan skort á heitu vatni, í nokkra daga. Skoðun 9.2.2024 14:32
Reikna með heitu vatni í hús á sunnudag Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir vinnu ganga vel við að tengja Njarðvíkurlögnina, heitavatnslögnina sem skemmdist þegar hraun rann yfir hana nærri Svartsengi í gær. Reiknað er með því að vatni verði hleypt á kerfið á miðnætti. Tvo sólarhringa tekur að ná fullum þrýstingi á kerfið. Innlent 9.2.2024 12:11
Stoltur af starfsfólki og íbúum Suðurnesja eftir strembna nótt Tugir starfsmanna HS Orku og verktaka unnu í alla nótt að því að tengja nýja hjáveitulögn til að sjá íbúum Suðurnesja fyrir heitu vatni. Forstjóri HS Veitna segir mögulegt að lögnin komist í gagnið síðdegis en lengri tíma tekur að koma þrýstingi inn á kerfið. Innlent 9.2.2024 11:51
Hafi unnið þrekvirki í nótt Starfsmenn HS Orku auk verktaka eru komnir langleiðina með að tengja nýju hjáveitulögnina við Njarðvíkurlögnina sunnanmegin við varnargarðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku. Innlent 9.2.2024 09:08
„Þegar maður horfði út um bílgluggann var svona metri í hraunið“ Gunnar Ágúst Halldórsson starfsmaður Ellerts Skúlasonar ehf. var einn þeirra sem vann við að moka yfir nýja hjáveitulögn HS Veitna við hraunjaðarinn í dag. Hann og félagar hans voru aðeins örfáum metrum frá hraunrennslinu. Innlent 8.2.2024 20:33
Slökkt á loftræstingu og snjóbræðslukerfum á Keflavíkurflugvelli Búið er að slökkva á loftræstingu á Keflavíkurflugvelli til að halda hita á byggingunni. Allt flugvallarsvæðið verður brátt án alls heits vatns. Innlent 8.2.2024 16:20
Heitavatnsleysi gæti varað í margar vikur ef ekki tekst að tengja varalögn Varabirgðir af heitu vatni í tönkum á Fitjum klárast á næstu klukkustundum. Þá tekur við heitavatnsleysi í Reykjanesbæ, á Suðurnesjum og í Vogum. Unnið er hörðum höndum við að tengja varalögn, en ef hún fer einnig undir hraun gæti heitavatnsleysi varað í margar vikur. Innlent 8.2.2024 15:45
Rafmagnsofnar uppseldir: Íbúar mjög uggandi Rafmagnsofnar eru uppseldir í Reykjanesbæ. Verslunarstjóri í Múrbúðinni segist aldrei hafa upplifað annað eins, örtröðin í dag hafi verið svakaleg. Viðskiptavinur sem beið í langri röð segir þungt hljóð í íbúum. Innlent 8.2.2024 14:35
Heitavatnslaust á Keflavíkurflugvelli Heitavatnslaust er á Keflavíkurflugvelli vegna hrauns sem flætt hefur yfir heitavatnsæð við Svartsengi. Innlent 8.2.2024 13:25
Neyðarstigi lýst yfir vegna rofs á heitavatnslögn Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að virkja neyðarstig Almannavarna vegna rofs á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum. Innlent 8.2.2024 13:16
Fleiri innviðir í hættu Víðir Reynisson, sviðstjóri Almannavarna segir ljóst að heitavatnsleysi á Suðurnesjum verði talið í dögum. Svartasta sviðsmyndin sem teiknuð hafi verið upp sé að rætast. Rafmagns- og kaldavatnslagnir eru í hættu á að verða undir hrauni en þær eru á talsverðu dýpi og vonast er til að þær haldi. Innlent 8.2.2024 12:25
Hraunið farið yfir heitavatnslögnina Hraunið hefur farið yfir heitavatnslögnina sem ber heitt vatn frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkur og Voga. Heitavatnslaust verður í að minnsta kosti nokkra daga. Innlent 8.2.2024 12:14