Skóla- og menntamál
47 48 49 50 51 52 53 54 55 … 139 ›
618 börn bíða eftir sálfræðiþjónustu hjá HH Þessa stundina bíða 618 börn eftir sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í nýrri samantekt sem Umboðsmaður barna hefur ráðist í um bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu. Ráðist var í sams konar samantekt í árslok 2021 og síðan voru nýjustu upplýsingar birtar í gær frá sömu aðilum en auk þeirra voru birtar upplýsingar frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilsuskóla barnaspítalans og þjónustu talmeinafræðinga. Innlent 15.9.2022 13:27
Takið ákvörðunina Manstu þegar gluggarnir heima hjá þér fóru að leka, ofninn bilaði og þú áttir von á einu barni til viðbótar svo það bráðvantaði annað herbergi - en þú beiðst bara í nokkur ár þangað til að málið leystist af sjálfu sér? Nei ekki ég heldur. Það er vegna þess að heimurinn virkar ekki þannig. Þvert á móti stækka vandamálin því lengur sem kosið er að vanrækja þau. Skoðun 15.9.2022 08:00
Háskólanemar hjálpi til með fækkun á biðlistum frístundaheimila Leikskólamál hafa verið í brennidepli nú síðustu mánuði, foreldrar hafa fjölmennt á palla ráðhússins með börnin sín, sem fá ekki leikskólapláss. Innlent 14.9.2022 11:57
Nemandi FÁ dró upp hníf í skólanum Myndskeið sem sýnir nemanda í Fjölbrautaskólanum við Ármúla draga upp hníf í skólanum gengur nú manna á milli. Innlent 13.9.2022 19:16
Hefur náð mögnuðum tökum á málinu á skömmum tíma „Ég hef lært íslensku í þrjú ár. Nú á dögum er ég að læra meira af því að ég er í vinnu í grunnskóla, þar sem ég hef verið að tala við krakkana allan tímann,“ segir hinn kínverski Yi Hu, sem rætt var við í Íslandi í dag í síðustu viku. Innlent 13.9.2022 09:01
Hver ber ábyrgð á menntamálum? Þessa dagana er nokkuð rætt um stöðu verkalýðshreyfingarinnar (hér stytt í VLH) og þá jafnframt Samtaka atvinnurekenda (SA) gagnvart kröfu um íslenskukennslu fyrir starfsfólk á vinnumarkaði. Svo virðist sem einhverjir líti svo á að þessir aðilar eigi að sjá um menntamál. En er það tilfellið? Skoðun 13.9.2022 08:01
Kaup hlutafjár eina leiðin í þröngri stöðu Höfundi Hjallastefnunnar þykir afskaplega miður að félagið, sem rekur leik- og grunnskóla, hafi þurft að kaupa hlutafé fráfarandi framkvæmdastjóra félagsins með töluverðum hagnaði fyrir framkvæmdastjórann. Innlent 12.9.2022 23:32
„Afi Palli“ er vinsæll í leikskólanum á Flúðum Börnin í leikskólanum á Flúðum eru alsæl með að vera búin að fá „afa“ í leikskólann sinn enda er hann alltaf kallaður „Afi Palli“. Innlent 12.9.2022 20:07
Ráðast í úttekt á Sælukoti og taka arðgreiðslur til skoðunar Vegna umfangs umkvartana hefur Reykjavíkurborg ákveðið að farið verði í ytra mat á starfsemi leikskólans Sælukots. Meðal annars verður farið yfir reglur um arðgreiðslur og samræmingu innritunar borgarrekinna og sjálfstætt starfandi leikskóla. Innlent 12.9.2022 16:28
Konur af erlendum uppruna gagnrýna ummæli Sólveigar Önnu harðlega Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að þau gagnrýni harðlega þau ummæli sem formaður Eflingar lét falla í viðtali við Ríkisútvarpið í dag. Samtökin segja ummælin skaðleg áratugalangri baráttu þeirra sem hafa flutt hingað til Íslands um að fá aukinn aðgang að vönduðum íslenskunámskeiðum af hendi atvinnurekenda. Innlent 11.9.2022 21:13
Á sandi byggði heimskur maður hús Það sem einkennir gjarnan okkar ágæta samfélag er að málin eru oft leyst með skammtalækningum í stað þess að hugsa til framtíðar. Núna, sem fyrr koma foreldrar og mótmæla stöðunni í leikskólamálum hjá borginni vegna þess að börn þeirra komast ekki inn í skólana. Skoðun 11.9.2022 18:02
Söguleg skólamunastofa heyrir sögunni til Óánægja ríkir með þá ákvörðun skólastjóra og borgaryfirvalda að leggja niður svonefnda skólamunastofu Austurbæjarskóla til að rýma þar fyrir kennslustofu. Skólamunastofan er safn sem hefur staðið í risinu í Austurbæjarskóla um árabil. Innlent 10.9.2022 23:19
„Alls ekki verið nóg gert“ Forsætisráðherra segir alls ekki hafa verið gert nóg í að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Stjórnvöld og atvinnulíf geti gert betur og fólk eigi að geta sótt íslenskunám á vinnutíma án hás kostnaðar. Prófessor emeritus vill að íslenskukennsla verði sett í kjarasamninga. Innlent 10.9.2022 21:28
Fjarlægðu bækur og húsgögn úr Fossvogsskóla Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, skólastjóri Fossvogsskóla, hefur óskað eftir að betur sé farið yfir þau viðmið sem voru notuð við flutning á gögnum, búnaði og húsgögnum úr Korpuskóla. Hún gerir það í kjölfar ábendinga sem bárust frá foreldrum tveggja barna í skólanum. Innlent 9.9.2022 14:11
Vegna umfjöllunar um leikskólann Sælukot Ég undirrituð hef þurft að lesa greinar og hlusta á viðtöl í fjölmiðlum síðustu 2 daga þar sem fram koma ótrúlegustu rangfærslur um skólastarf leikskólans Sælukots sem á að baki 46 ára starf. Skoðun 9.9.2022 13:01
Diljá Mist bíður og bíður: „Spennandi að sjá hvort metið verði slegið“ „Jæja! 7. sept og strákurinn minn bíður enn eftir frístundaplássi í Reykjavík. Varla er stundatöflupúsl enn að vefjast fyrir yfirstjórninni..? Í fyrra fékk hann pláss 12. október, spennandi að sjá hvort metið verði slegið,“ skrifaði Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins á samfélagsmiðla í gær. Lífið 8.9.2022 17:00
Yngsta skólastigið þarf á raunhæfum lausnum að halda Skóli er svo mikið meira en eingöngu veggir. Ómissandi breytur í því sem skapa skóla eru nemendur og kennarar. Nemendur sem þroska og efla félagslegan-, siðferðilegan og vitsmunalegan vöxt sinn. Kennarar sem skapa gæði með sérfræðiþekkingu sinni og fagmennsku, þar sem samvinna, ígrundun, þekkingaröflun og þróun ræður ríkjum. Skoðun 8.9.2022 10:00
Segir umdeilda tillögu Ásmundar aðför að leikskólastjórnendum Leikskólastjóri segir boðaða reglugerðarbreytingu menntamálaráðherra um fjölda barna á leikskólum aðför að leikskólastjórnendum. Hún óttast að sveitarfélögin muni með henni knýja fram hámarksnýtingu á rekstrarleyfi skólanna, þvert á réttindi barnanna. Innlent 7.9.2022 09:45
Er íslenska óvinsæl? Seinustu áratugi hafa rannsóknir sýnt að íslenska sé orðin óvinsæl námsgrein á flestum skólastigum og í kjölfarið er spurt hvort óvinsældirnar nái til tungumálsins sjálfs. Ef til vill er það ansi stórt stökk í rökfærslunni í ljósi þess að íslenska er grundvallarþáttur í lífi allra íslenskra málhafa, svo ríkur þáttur að allt eins mætti spyrja hvort hendur okkar eða fætur séu óvinsælar. Skoðun 7.9.2022 09:00
„Þegar ég flutti heim úr námi fannst mér ég vera frábær“ „Þegar ég flutti heim úr námi fannst mér ég vera frábær og hélt að öll fyrirtæki Íslands biðu spennt eftir að fá mig heim. En það varð ekki alveg raunin,“ segir Sigríður Theódóra Pétursdóttir framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Brandenburg í léttum dúr. Atvinnulíf 7.9.2022 08:00
Foreldrar ekki að missa móðinn Í dag komu foreldrar barna, sem ekki fá pláss á leikskólum Reykjavíkurborgar, með börn sín á palla ráðhússins og mótmæltu ástandinu í leikskólamálum. Öllu færri mættu í dag en á fyrri tvö mótmælin sem haldin hafa verið. Foreldrar þvertaka þó fyrir að þeir séu að missa móðinn. Innlent 6.9.2022 22:12
Íbúafundur í Ráðhúsinu Nú nýlega fjölmenntu foreldrar barna sem bíða eftir plássi á leikskóla á fund borgarráðs í Ráðhúsi Reykjavíkur til að rukka inn síendurtekin kosningaloforð. Sjá mátti áhyggjusvip á andlitum meirihlutafulltrúanna, jafnvel óttasvip, því alltíeinu var komið inn á gafl til þeirra venjulegt fólk með alvöru vandamál. Skoðun 6.9.2022 13:31
Barnvæn bylting Þann 16. ágúst síðastliðinn birtist á vef Vísis skoðunargrein hverrar höfundur er Haraldur Freyr Gíslason formaður Félags leikskólakennara. Grein Haraldar er mjög góð en í henni gælir höfundur við þá hugmynd að hugsanlega séu hagsmunir barna ekki endilega í hávegum hafðir þegar tekist er á um leikskólamál. Undirritaður telur að slíkar grunsemdir eigi við rök að styðjast. Skoðun 6.9.2022 13:00
Leikskóli áfram í Staðarhverfi Nokkrir íbúar í Staðarhverfi í Grafarvogi skrifuðu grein hér á Vísi á dögunum um leikskólamál í hverfinu þar sem ég er sérstaklega ávarpaður. Nú er ég reyndar ekki lengur í forsvari fyrir skólamálin í borginni en hef þó haft aðkomu að þessu máli sem greinin fjallar um og sjálfsagt að upplýsa um það sem ég þekki til málsins. Skoðun 6.9.2022 11:01
Sigríður Júlía nýr kennslustjóri Lýðskólans á Flateyri Sigríður Júlía Brynleifsdóttir hefur verið ráðin kennslustjóri Lýðskólans á Flateyri en hún er jafnframt forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Viðskipti innlent 6.9.2022 08:21
Samræmdum prófum slaufað og „Matsferill“ kemur í þeirra stað Samræmd könnunarpróf í grunnskóla verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til ársins 2024. Í stað prófanna verður unnið með svokallaðan „Matsferil“, nýtt samræmt námsmat, sem mun leysa samræmdu prófin af hólmi. Innlent 2.9.2022 10:11
1.200 börn á biðlista og fjöldi staða ómannaður Alls hafa 3.368 börn fengið pláss á frístundaheimilum í Reykjavík í haust en 1.155 eru enn á biðlista. Enn hefur ekki tekist að manna nema 75 prósent staða á frístundaheimilunum og sértækum félagsmiðstöðvum borgarinnar. Innlent 2.9.2022 08:58
Íþróttafélag og kynlífstækjaverslun hvetja bæjarbúa til að fjölga sér Íþróttafélagið Þróttur Vogum stendur nú að átaki sem ætlað er að fjölga iðkendum félagsins til framtíðar. Félagið stendur að ástarmánuði í samstarfi við þekkta kynlífstækjaverslun, og hvetur íbúa til að fagna ástinni, með þá von að hún beri ávöxt. Lífið 1.9.2022 14:30
Ákall til alþingismanna Staðreynd: Rekstur leikskóla er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga. En það ætti að vera það. Það er undir Alþingi að lögfesta slíkt og tryggja fjármögnun fyrsta skólastigsins. Skoðun 1.9.2022 09:31
„Sumt fólk dæmir fatlað fólk svo mikið því það heldur að það geti ekki gert neitt eins vel og þau“ Einhverf kona sem fékk á dögunum langþráð samþykki frá Háskóla Íslands til að sækja nám í sagnfræði segir að samfélagið þurfi að treysta fólki með fötlun. Innlent 31.8.2022 19:30