Innlent

Sögu­leg skóla­muna­stofa heyrir sögunni til

Árni Sæberg og Snorri Másson skrifa
Pétur Hafþór Jónsson er fyrrverandi kennari og stjórnarmaður í hollvinasamtökum Austurbæjarskóla.
Pétur Hafþór Jónsson er fyrrverandi kennari og stjórnarmaður í hollvinasamtökum Austurbæjarskóla. Stöð 2

Óánægja ríkir með þá ákvörðun skólastjóra og borgaryfirvalda að leggja niður svonefnda skólamunastofu Austurbæjarskóla til að rýma þar fyrir kennslustofu. Skólamunastofan er safn sem hefur staðið í risinu í Austurbæjarskóla um árabil.

Á safninu hefur verið til sýnis ýmiss búnaður úr níutíu ára sögu skólans, ævafornar kennslubækur, gömul kort og kennaraborð, sem eflaust geyma mikla sögu. En ekki meir. Á opnu húsi í dag var síðasta tækifæri til þess að heimsækja safnið.

Ekki er alveg ljóst hvað verður um safnið, sem er eitt sinnar tegundar í Reykjavík, en uppi eru óánægjuraddir með að til standi að loka því.

Hafi gríðarlega þýðingu fyrir þúsundir Reykvíkinga

Pétur Hafþór Jónsson, fyrrverandi kennari og stjórnarmaður í hollvinasamtökum Austurbæjarskóla, er einn þeirra sem lýst ekki á áætlanir borgarinnar og skólastjórnenda.

„Við getum byrjað á því að tala um að þetta er sennilega eina stóra skólamunasafn á Íslandi og þetta hefur gríðarlega þýðingu fyrir allar þær þúsundir Reykvíkinga sem hafa gengið í Austurbæjarskólann og unna Austurbæjarskólanum og þessari arfleifð,“ segir hann í samtali við fréttastofu.

Pétur segir að fólk komi á safnið á menningarnótt og vorhátíðum og skynji hlut sinn í sögunni. „Þetta er svakalegt fyrir okkur, ekki bara mig og ekki bara stjórn hollvinafélagsins, sem hefur eytt ómældum tíma í hundrað prósent sjálfboðavinnu að koma þessu fyrir þarna í risinu, í þessu geymsluhúsnæði,“ segir hann.

Plássið ekki boðlegt til kennslu

Hann segir risið vera afgangshúsnæði í skólanum sem er ekki boðlegt fyrir kennslu. Kynslóðir af stjórnendum, kennurum og nemendum hafi komið munum fyrir í risinu um árabil.

Pétur segist ekki vita hvar framtíðargeymslustaður munanna verði eða hvort þeir verði yfir höfuð teknir úr risinu.

„Það sem ég hef verið að setja út á er að embættismenn skuli komast upp með að taka þessar ákvarðanir. Ég við að kjörnir fulltrúar ákveði þetta,“ segir Pétur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×