Fjármálafyrirtæki

Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður hækkun stýrivaxta
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,5%.

Áframhaldandi uppsagnir hjá bönkunum
Stóru bankarnir þrír sögðu samanlagt upp 39 manns í september. Landsbankinn sagði upp níu starfsmönnum og Arion banki sex í fyrradag.

Landsbankinn spáir einnig stýrivaxtahækkun
Landsbankinn tekur undir spá Íslandsbankans frá því í gær um að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Bankinn telur þó ekki útilokað að stýrivextir hækki um 0,5 prósentustig.

Vara við Sprota-sparibaukum Landsbankans
Neytendastofa hefur varað við Sprota sparibaukum Landsbankans sem bankinn afhendir börnum. Baukarnir eru sagðir geta verið hættulegir og ekki ætlaðir við leik barna, enda kunni smámynt af detta úr baukunum sem geti valdið köfnunarhættu hjá börnum.

Íslandsbanki spáir stýrivaxtahækkun í næstu viku
Íslandsbanki spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunardegi, sem er á miðvikudaginn í næstu viku, þann 6. október. Gangi spáin eftir verða stýrivextir 1,5 prósent.

Litlu og stóru skrefin að grænni framtíð
Tíminn er afstæður. Sjálfri finnst mér langt í árið 2040, heil 20 ár, en þegar uppfylla á sérlega metnaðarfull markmið geta tveir áratugir liðið ansi hratt og þá liggur á að bretta upp ermar.

Seðlabankinn dregur lærdóm af fasteignabólunni fyrir hrun
Seðlabankastjóri segir nýjar reglur um hámark greiðslubyrði húsnæðislána hluta af þeim lærdómi sem draga megi af efnahagshruninu. Þær tengi greiðslubyrðina tekjum heimilanna og vinni gegn gylliboðum á lánamarkaði.

Nýja hámarkið hefur aðallega áhrif á tekjuhærri
Nýtt hámark reglna Seðlabanka Íslands kemur í veg fyrir að fólk geti tekið jafnhá lán og áður. Reglurnar hafa almennt meiri áhrif á tekjuhærri og gera það að verkum að greiðslubyrði fasteignalána skuli almennt ekki fara yfir 35 prósent af ráðstöfunartekjum, en 40 prósent hjá fyrstu kaupendum.

Stytta opnunartíma Landsbankans en auka ráðgjafartíma
Landsbankinn hefur ákveðið að stytta afgreiðslutíma útibúa um klukkustund og verða þau framvegis opin frá 10-16. Um leið lengist sá tími sem fjármálaráðgjöf er í boði símleiðis eða á fjarfundum til klukkan 18 alla daga.

Svikahrappar tæmdu kort Halldóru á tíu mínútum
Það var heldur óskemmtilegt fyrir Halldóru Björg Haraldsdóttir að líta á heimabankann sinn í vikunni. Óþekktir og óprúttnir aðilar höfðu látið greipar sópa um bankareikning hennar og eytt um 130 þúsund krónur hjá veðmálafyrirtækinu Betsson á innan við tíu mínútum. Hún segist ekki hafa hugmynd um hvernig þrjótarnir komust yfir reikningsupplýsingar hennar.

Ráðin nýir framkvæmdastjórar hjá Landsbankanum
Bergsteinn Ó. Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Áhættustýringar hjá Landsbankanum og Sara Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samfélags, sem er nýtt svið hjá bankanum, en undir það heyra mannauðsmál, markaðsmál, fræðsla, samskipti, samfélagsábyrgð og Hagfræðideild.

Íslandsbanki segir kórónukreppunni lokið
Kórónuveirukreppunni er lokið að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Þrátt fyrir að skellurinn hafi verið harðari hér en víða annars staðar sé viðsnúningurinn hraðari.

Sakar Viðskiptablaðið og Morgunblaðið um samantekin ráð gegn sér
Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, sakar Morgunblaðið og Viðskiptablaðið um samantekin ráð til að gera lítið úr jafnaðarmannaskoðunum hennar. Fjölmiðlarnir tveir hafa fjallað um kauprétt sem hún nýtti sér á hlutabréfum í Kviku banka.

Skoðanakannanir fyrir kosningar valdi fjárfestum áhyggjum
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn virðist sveiflast í takt við skoðanakannanir í aðdraganda alþingiskosninga. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárfesta hafa áhyggjur, hvort sem þær séu réttmætar eða ekki, af stjórnvöldum sem hyggi á þrálátri skuldasöfnun ríkissjóðs sem leiði til hækkunar stýrivaxta.

Hlutabréfin rjúka hvergi meira upp en á Íslandi
Tólf mánaða verðhækkun á hlutabréfamarkaðnum hér á landi nam 65,4 prósentum í lok ágúst sem er mesta hækkunin yfir heiminn á þessu tímabili sé litið til helstu hlutabréfamarkaða. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem hagfræðideild bankans gefur út.

Áhyggjur af stöðugum uppsögnum
Stjórn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) hefur áhyggjur af stöðugum uppsögnum innan fjármálageirans og segir uppsagnir starfsmanna í engum takti við afkomu fyrirtækjanna undanfarin misseri.

Bein útsending: Fara markaðir bara upp?
Landsbankinn heldur fræðslufund um mikilvægi eignadreifingar við uppbyggingu á stöndugu eignasafni og hvernig nota má eignadreifingu til að lágmarka sveiflur í ávöxtun.

Fækkar um 24 í starfsliði Íslandsbanka
Fækkað verður um 24 starfsmenn í starfsliði Íslandsbanka í september. Um helmingi þeirra hefur verið sagt upp störfum en samið hefur verið við aðra um snemmbúin starfslok.

Arion mátti krefjast fjárnáms hjá forstjóra United Silicon
Héraðsdómur Reykjavíkur gaf Arion banka grænt ljóst á að krefjast fjárnáms í fasteign Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon, í mars. Bankinn hefur freistað þess að fá greidda skuld félags í meirihlutaeigu Magnúsar upp á tæpar fimm milljónir króna.

Kveður Landsbankann eftir ellefu viðburðarík ár
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum, hefur sagt starfi sínu lausu.

Allir bankarnir búnir að kynna vaxtahækkanir
Íslandsbanki hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum um 0,15 prósentustig. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána haldast óbreyttir.

Breytingar á framkvæmdastjórn Arion banka
Ólafur Hrafn Höskuldsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka og tekur við af Stefáni Péturssyni. Steinunn Hlíf Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina en um er að ræða nýtt svið hjá bankanum.

Arion hækkar vexti eftir ákvörðun Seðlabankans
Inn- og útlánavextir hjá Arionbanka hækka í dag eftir að Seðlabankinn hækkaði nýlega stýrivexti. Bankinn er annar stóru bankanna sem hækkar vexti í kjölfar stýrivaxtahækkunarinnar en Landsbankinn reið á vaðið í fyrradag.

Landsbankinn ríður á vaðið og hækkar vexti
Landsbankinn hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,20 prósentustig. Tæp vika er liðin frá stýrivaxtahækkun Seðlabankans og er Landsbankinn fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna vaxtabreytingar í kjölfarið.

Landsbankinn óskar eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ
Landsbankinn hefur bæst í hóp þeirra stuðningsaðila Knattspyrnusambands Íslands sem krefjast þess að sambandið geri hreint fyrir sínum dyrum. Forsvarsmenn bankans óskuðu í gær eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ.

Stjórnendur Kviku greiddu 70 prósent lægri fjárhæðir fyrir hlutabréfin
Sex æðstu stjórnendur Kviku banka seldu hlutabréf í bankanum fyrir hundruð milljóna króna á gengi dagsins í gær. Á sama tíma nýttu stjórnendur sér áskriftaréttindi og keyptu fyrir um hundrað og fimmtíu milljónir króna í bankanum. Almennir kaupendur greiddu þannig um þrisvar sinnum meira fyrir hlutabréfin í bankanum í gær en stjórnendurnir.

Eðvald fer fyrir nýrri deild Kviku
Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn forstöðumaður hagdeildar á fjármálasviði Kviku banka en deildin er ný á fjármálasviði bankans.

Hvað er mikilvægt; bankar eða gamalt fólk?
Samtök fjármagns- og fyrirtækjaeigenda, sem kalla sig Samtök atvinnulífsins, hafa verið í áróðursherferð undanfarið og haldið því fram að það sé að verða of mikið af gömlu fólki í samfélaginu í samanburði við fólk á vinnualdri.

Forstjóri Kviku meðal þeirra sem seldu bréf fyrir tugi milljóna
Nokkrir af æðstu stjórnendum Kviku seldu bréf fyrir tugi milljóna króna í dag. Marínó Örn Tryggvason forstjóri keypti 2,5 milljónir hluta á genginu 7,16 krónur á hlutinn en seldi á sama tíma fjórar milljónir hluta á 23,5 krónur á hlutinn. Hann kom út í 70 milljónum í plús með viðskiptum dagsins.

Laut í lægra haldi fyrir erlendum tæknirisum
Viðskiptabankarnir töldu að lítil eftirspurn væri eftir greiðsluappinu Kvitt og vildu frekar einbeita sér að innleiðingu erlendra lausna á borð við Apple Pay. Greiðslumiðlunarfyrirtækið Valitor hefur litlar áhyggjur af því að alvarleg röskun geti orðið á tengingu Íslands við erlend greiðslukortakerfi.