Vanguard keypti fyrir tvo milljarða í Arion banka
![Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. Hlutabréfaverð bankans hefur lækkað um 12,6 prósent á síðustu tveimur vikum en Úrvalsvísitala Kauphallarinnar er niður um tæplega 15 prósent á sama tíma.](https://www.visir.is/i/63F51EB43C1814F461E84DE04202D4D22061425FA440FE18655D65BC7A69EFF7_713x0.jpg)
Bandaríska sjóðastýringarfélagið Vanguard fer með tæplega 0,8 prósenta eignarhlut í Arion eftir að hafa fjárfest í bankanum samhliða því að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja í byrjun síðastu viku.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/990A9D90089D11F3B830048836EC14453ACD29AC71B1463EE6DF3A6194428C62_308x200.jpg)
Sjóðir Vanguard keyptu í Kviku fyrir nærri milljarð króna
Bandaríski sjóðastýringarrisinn Vanguard ræður yfir nálægt eins prósenta hlut í Kviku eftir að hafa keypt nánast öll þau bréf sem voru seld í bankanum í lokunaruppboði í Kauphöllinni á föstudaginn fyrir rúmlega viku í aðdraganda þess að Ísland færðist upp í flokk nýmarkaðsríkja.
![](https://www.visir.is/i/8FE67DC9E58051DAA6C3E97DB63196E74EF82992FACAB149E3E71BA3CD003749_308x200.jpg)
Stærsta sjóðastýringarfyrirtæki heims keypti í Marel fyrir á fjórða milljarð
Vísitölusjóðir bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Vanguard keyptu nánast öll þau bréf í Marel sem voru seld í sérstöku lokunaruppboði í Kauphöllinni síðasta föstudag í aðdraganda þess að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE vísitölufyrirtækinu.
![](https://www.visir.is/i/4E3831326BD87A2FAEE03FBCC57CFB59CD22E25370E4BA48BC274D14BB1568DC_308x200.jpg)
Sjóðastýringarrisinn Vanguard kominn í hóp stærri eigenda Íslandsbanka
Bandaríska eignarstýringarfélagið Vanguard er orðið á meðal stærri hluthafa Íslandsbanka eftir að nokkrir sjóðir í stýringu þess keyptu í bankanum fyrir samanlagt um 1.300 milljónir króna í sérstöku uppboði sem fór fram eftir lokun markaða fyrir helgi.