Myndlist
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 23 ›
Anna Maggý og Ashley Tisdale á listamessunni LA Art Show Ljósmyndarinn, leikstjórinn og listakonan Anna Maggý er stödd í Kaliforníu um þessar mundir en hún er með bás á alþjóðlegu listamessunni LA Art Show. Með henni í för er Ásdís Þula, eigandi Gallerí Þulu, en blaðamaður tók aðeins púlsinn á þeim. Menning 20.2.2023 11:31
Frægðin aldrei nokkurn tíma heillað „Mig langaði að taka inn hinn tilfinningaskalann sem er þessi fögnuður, gleði, partý og fyrir alla,“ segir tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir um cornucopiu, væntanlega tónleikaseríu sína í Laugardalshöll. Blaðamaður settist niður með henni og fékk nánari innsýn í hennar stöðugt vaxandi og skapandi hugarheim. Tónlist 17.2.2023 06:00
Ákærðar fyrir vörslu þýfis og brot á höfundalögum Héraðssaksóknari hefur ákært tvær listakonur fyrir brot á höfundarrétti vegna styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stolið var af Snæfellsnesi í fyrra. Styttan var flutt til Reykjavíkur en þar komu þær Bryndís Björnsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir henni fyrir í eldflaug á skotpalli fyrir utan Nýlistasafnið í Reykjavík. Innlent 13.2.2023 15:55
Lionel Messi kominn á Hvolsvöll Knattspyrnuhetjan Messi og átrúnaðargoð margra er nú mættur á Hvolsvöll, reyndar ekki í eigin persónu en níu ára strákur á staðnum fékk málverk af honum í afmælisgjöf, sem mamma hans málaði. Verkið hefur vakið mikla athygli. Lífið 12.2.2023 21:39
Idol keppendur máluðu myndir af dómurunum: „Þetta er eins og blint egg með spangir“ Í síðasta þætti af Idol kepptu þau Saga, Kjalar, Bía og Símon ekki aðeins í söng, heldur fékk fjölmiðlamaðurinn Gústi B krakkana einnig til þess að keppa í myndlist. Lífið 8.2.2023 15:58
Rafmögnuð stemning í Kópavogi í kvöld „Vörpunarverk Þórönnu er eitt stærsta og viðamesta verkefnið á hátíðinni í ár en áralöng hefð er fyrir því að varpa nýju verki á kirkjuna á Vetrarhátíð,“ segir Elísabet Indra Ragnarsdóttir, verkefna- og viðburðastjóri menningarmála í Kópavogi en glæsileg dagskrá Vetrarhátíðar hefst í kvöld klukkan 18 þegar verki Þórönnu Björnsdóttur verður varpað á austurhlið Kópavogskirkju. Lífið samstarf 3.2.2023 08:52
Gunna Tryggva færir Selfyssingum veglega gjöf með skýrum skilyrðum Myndlistarkonan Guðrún Arndís Tryggvadóttir hefur fært sveitarfélaginu Árborg málverkið Kafarann að gjöf og óskar þess að verkið verði sett upp á gangi sundlaugarbyggingar Sundhallar Selfoss. Bæjarráð Árborgar hefur ákveðið að þiggja gjöfina – sem sögð er „höfðingleg“ – og gangast við þeim skilyrðum sem Guðrún Arndís setur. Verkið muni sóma sér vel í Sundhöll Selfoss. Menning 19.1.2023 13:43
Mætir heim til fólks og skapar list beint á veggina „Ég hef alltaf upplifað mikla ró við það að horfa til himins,“ segir listamaðurinn Unnar Ari Baldvinsson. Hann opnar sýninguna Skýjamyndir í Gallerí Gróttu á morgun. Menning 18.1.2023 11:31
Rannsakar hlut kvenna í íslenskri listasögu næsta árið Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir hefur verið valin til að gegna rannsóknarstöðu við Listasafn Reykjavíkur sem hefur það að markmiði að rannsaka hlut kvenna í íslenskri listasögu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur. Menning 17.1.2023 15:44
„Greinilega lítill tískugosi sem ég geng með“ Tískan er órjúfanlegur hluti af listagyðjunni Sögu Sigurðardóttur, sem er þekkt fyrir litríkan og einstakan stíl sinn. Klæðaburður er sköpunarform að hennar mati og hún nýtur þess nú að þróa stílinn sinn í nýja átt þar sem hún er ólétt. Saga Sigurðardóttir er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 15.1.2023 07:00
Málar hrúta í gríð og erg Hrútar eru í miklu uppáhaldi hjá listamanni í Eyjafirði enda hefur hann málað þá marga um ævina og selt ferðamönnum. Lífið 13.1.2023 10:03
„Hér þarf ég ekki að binda mig við skipsmastur í óveðri“ Fjölmenni var á opnun Bjarna Sigurbjörnssonar í Portfolio galleri síðustu helgi. Bjarni flutti úr bæjarlífinu vestur á Hellissand um mitt ár 2022 og hefur verið að reisa sér virki listarinnar ásamt spúsu sinni Ragnheiði Guðmundsdóttur. Lífið 11.1.2023 17:30
Settist í sófann hjá Jimmy Fallon: „Þetta fer algjörlega í minningabankann“ Thelma Sigurhansdóttir varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að setjast í sófa þáttastjórnandans Jimmy Fallon á meðan á auglýsingahléi við upptökur á kvöldþáttunum vinsælu „The Tonight Show with Jimmy Fallon“ stóð í desember síðastliðnum. Hún segir Fallon mikinn karakter en indælan. Bíó og sjónvarp 8.1.2023 00:13
Sigurður maðurinn á bak við Auglýsingahléð Myndlistarmaðurinn Sigurður Ámundason er maðurinn á bak við myndlistarverkin sem hafa síðastliðna daga yfirtekið auglýsingaskilti víða um borgina. Sýningin, sem ber heitið Rétthermi, birtist á hundruðum skjáa og hefur líklega náð til yfir 80% höfuðborgarbúa. Menning 3.1.2023 15:48
Merkir myndirnar vel svo fólk haldi ekki að hann sé að falsa verkin Jóhannes K. Kristjánsson er ekki stórt nafn í myndlistarheiminum þrátt fyrir að vera alveg ótrúlegur myndlistarmaður. Lífið 30.12.2022 14:31
Málar á gömul gluggatjöld á Seyðisfirði sem heilla þjófa Listamaðurinn „Tóti Ripper” eins og hann kallar sig á Seyðisfirði kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að mála því hann málar myndirnar sínar á gömul gluggatjöld þegar hann hefur ekki efni á því að kaupa striga. Innlent 26.12.2022 20:05
KÚNST: Kúrekar og leyndarmál í Ásmundarsal Síðastliðin fimm ár hefur Ásmundarsalur staðið fyrir jólasýningu þar sem fjölbreyttur hópur myndlistarfólks kemur saman með ólík listaverk til sölu. Í dag, á Þorláksmessu, er síðasti dagur sýningarinnar en KÚNST leit við á sýninguna um daginn og fékk innsýn í hugarheim nokkurra listamanna á svæðinu. Menning 23.12.2022 06:00
Matargerð og myndlist í eina sæng Listakonurnar Antonía Bergþórsdóttir og Íris María Leifsdóttir opna sýninguna „Leiðarvísir augnablika“ á veitingastaðnum Sumac í dag. Verkin verða varanlegur hluti af veitingastaðnum og eru unnin undir áhrifum matargerðar Þráins Freys Vigfússonar, yfirkokks á Sumac og ÓX. Menning 20.12.2022 13:31
KÚNST: Jólasýningin í Ásmundarsal „Það sem skiptir svo miklu máli er að kafa aðeins dýpra og skilja hvað það er sem myndlistarmaðurinn er að fást við. Af hverju er hann að fást við það og hver er sagan? Oft er sagan miklu meira en helmingurinn af verkinu,“ segir Olga Lilja Ólafsdóttir, sýningarstjóri Jólasýningarinnar 2022 í Ásmundarsal. Menning 20.12.2022 06:01
Smíðuðu plexi kassa sem flaug óvart á vörubíl Ljósmyndarinn, leikstjórinn og listakonan Anna Maggý hefur leikstýrt ýmsum myndböndum í gegnum tíðina og má þar nefna tónlistarmyndband fyrir tónlistarkonuna Eydísi Evensen við lagið Brotin. Anna Maggý er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst en þar deildi hún meðal annars vægast sagt eftirminnilegri reynslusögu. Menning 18.12.2022 06:01
Leðurbuxur, hringur í nef og nafla og permanent en toppnum náð á fermingadaginn Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir myndlistarkona og kennari viðurkennir að hafa farið alla leið í tískunni sem unglingur. Permanent tólf ára, hringur í nefið og rakaði af sér hárið einhverjum árum síðar. Í unglingatískunni segist hún samt hafa toppað sjálfan sig á fermingardaginn. Atvinnulíf 17.12.2022 10:01
Þessi fá listamannalaunin 2023 Tilkynningar hafa verið sendar út til þeirra listamanna sem sóttu um starfslaun fyrir árið 2023 og hafa beðið milli vonar og ótta. Nú liggur fyrir hverjir fá listamannalaun og hverjir ekki. Menning 16.12.2022 17:37
Sigurjón Sighvats stelur frá þjófi og skammast sín ekkert Klukkan 13.30 bæði laugardag og sunnudag um þessa helgi mun Jón Proppé listheimspekingur taka Sigurjón Sighvatsson í listamannaspjall um hliðarsjálf sitt CozyBoy en sýning á verkum hans stendur nú yfir við Hafnartorg. Menning 16.12.2022 15:04
Snorri Ásmundsson segist tilbúinn í hlutverkið besti málari Evrópu Snorri Ásmundsson er nýkominn heim úr ævintýralegri og vel heppnaðri gestavinnustofudvöl í Vínarborg þar sem hann hélt frægan píanó gjörning og einkasýningu. Blaðamaður tók púlsinn á Snorra sem hefur nú gefið út yfirlýsingu um það sem koma skal. Menning 14.12.2022 11:30
„Eina sem maður kemst ekki hjá er að fæðast og deyja“ „Móðir mín fór til spákonu og spákonan sagði að dóttir hennar yrði listakona. Þannig að mamma sendi mig strax í myndlist, sem er dálítið fyndið,“ segir listakonan, ljósmyndarinn og leikstjórinn Anna Maggý en hún er viðmælandi í þessum nýjasta þætti af Kúnst. Menning 13.12.2022 06:00
Íslensk listakona á Art Basel í Miami „Ég er alltaf jafn hissa þegar ég fæ þessi tækifæri, það er algjör heiður að fá að taka þátt á þessari hátíð,“ segir listakonan María Guðjohnsen í samtali við blaðamann en María tók á dögunum þátt í listahátíðinni Art Basel í Miami. Hátíðin er ein stærsta sinnar tegundar í listheiminum en María er búsett í New York þar sem hún sinnir listsköpuninni af fullum krafti. Menning 8.12.2022 20:01
Elskar að henda sér út í djúpu laugina „Allt frá því ég var krakki hef ég haft áhuga á tölvum og listsköpun,“ segir listamaðurinn og tölvunarfræðingurinn Halldór Eldjárn sem opnar sýninguna „flora inorganica“ á morgun þar sem tækni, plöntur og myndlist blandast saman. Sýningin fer fram í STAK að Hverfisgötu 32 og hefur verið opin gestum alla vikuna þar sem hægt er að fylgjast með verkum í vinnslu og uppsetningu sýningarinnar. Menning 7.12.2022 13:02
Hildigunnur fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2024 Hildigunnur Birgisdóttir hefur verið valin fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2024 en það verður í sextugasta sinn sem hann er haldinn. Þá slæst hún í hóp með mörgum af fremstu listamönnum þjóðarinnar og má þar nefna Jóhannes Kjarval, Ragnar Kjartansson, Hrafnhildi Arnardóttur, Rúrí og Egil Sæbjörnsson. Blaðamaður tók púlsinn á Hildigunni. Menning 5.12.2022 21:40
Jólapósthús í Ásmundarsal þar sem gestir ferðast aftur í tímann Í Ásmundarsal í Reykjavík hefur verið sett upp Jólapósthús sem vakið hefur mikla lukku á meðal gesta sýningarinnar. Lífið 5.12.2022 14:30
Hundrað listamenn saman á sýningu Næstkomandi laugardag opnar jólasýning Listvals í Hörpu. Á sýningunni má finna yfir 300 verk eftir um 100 listamenn sem njóta vinsælda hérlendis. Þær Helga Björg Kjerúlf og Elísabet Alma Svendsen eru stofnendur og eigendur Listvals og hafa saman staðið að fjöldanum öllum af sýningum með ólíku listafólki. Menning 2.12.2022 20:00