Stjórnsýsla
1 2 3 4 5 6 … 70 ›
Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Atvinnuvegaráðuneytið hefur á þessu ári keypt ráðgjöf og þjónustu af samskipta- og almannatengslafyrirtækinu Athygli ehf. fyrir tæpar 3,5 milljónir króna, meðal annars í tengslum við breytingar á lögum um veiðigjald. Allt árið í fyrra greiddi sama ráðuneyti rúmar hundrað þúsund krónur fyrir þjónustu almannatengla, þá af fyrirtækinu Góðum samskiptum ehf. Innlent 22.12.2025 06:47
Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Sveitarstjóri Mýrdalshrepps segir að sveitarfélagið muni senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna viðbrögðum Vegagerðarinnar við sjávarflóðum sem hann segir lengi hafa ógnað byggðinni í Vík. Innlent 21.12.2025 16:01
Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Dómsmálaráðherra segist ekki ætla skoða mál starfsmanns Útlendingastofnunar sem deildi nöfnum skjólstæðinga á samfélagsmiðlum nánar. Hún muni ekki beita sér í málinu. Hún segir málið ekki gott ef satt reynist og að hún líti háttsemina alvarlegum augum. Innlent 21.12.2025 15:45
„Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Dagbjört Hákonardóttir þingkona Samfylkingarinnar segir að mál starfsmanns Útlendingastofnunar, sem deildi nöfnum skjólstæðinga sinna og stærði sig af því að hafa synjað fólki um landvistarleyfi, verði að hafa afleiðingar. Útlendingastofnun þurfi að sýna það út á við að þeim sé treystandi til að vinna verkefni sín af fagmennsku. Innlent 21.12.2025 14:46
Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Útgjöld mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna aðkeyptrar þjónustu almannatengla hafa numið rúmum 16,5 milljónum á þessu ári, samanborið við tæpar tvær milljónir í fyrra. Ráðuneytið hefur meðal annars notið þjónustu almannatengslafyrirtækja vegna boðaðra skipulagsbreytinga á framhaldsskólastigi og kynningarátaks vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Innlent 21.12.2025 07:01
Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Starfsmaður Útlendingastofnunar er sagður hafa deilt nöfnum skjólstæðinga sinna með fólki á Instagram. Það er brot á þagnarskyldu umrædds starfsmanns og er talið alvarlegt brot gegn skyldum embættismanna. Innlent 20.12.2025 13:58
Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Undirstofnanir félags- og húsnæðismálaráðuneytisins hafa frá árinu 2018 gert alls 24 starfslokasamninga og hefur heildarkostnaður vegna þeirra numið 174,5 milljónum króna. Mestu munar um þrjá starfslokasamninga sem gerðir voru hjá embætti ríkissáttasemjara árið 2023 sem samtals hljóða upp á 64 milljónir króna. Flestir starfslokasamningar hafa hins vegar verið gerðir hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun en níu slíkir samningar voru gerðir hjá stofnuninni á tímabilinu sem spannar átta ár og nemur heildarkostnaður vegna þeirra 29,2 milljónum. Innlent 19.12.2025 08:11
Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Stjórnvöld ætla að ráðast í metnaðarfyllstu hagræðingaraðgerðir í ríkisrekstri í langan tíma að mati fjármálaráðherra. Aldrei hafi verið ákveðið að spara aðra eins fjármuni eins og næstu ár eða um hundrað og sjö milljarða króna. Búist sé við að starfsfólki fækki. Innlent 18.12.2025 21:01
Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Sýslumaðurinn á Vestfjörðum hefur fellt Zuism úr trúfélagaskrá. Forráðamenn félagsins hlutu fangelsisdóma fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við félagið fyrr á þessu ári. Innlent 18.12.2025 15:50
Stofnunum fækkar um tuttugu Um helmingur tillagna frá hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar verður að veruleika, samkvæmt skýrslu vinnuhóps. Ríkisstjórnin lofar 107 milljarða hagræðingu í ríkisrekstri yfir næstu fimm árin. Flest af því sem kemur fram í tillögunum hefur þegar verið kynnt, en verði af öllum áformum mun stofnunum fækka um tuttugu. Innlent 17.12.2025 15:32
Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Lesstofu Borgarskjalasafns á Tryggvagötu hefur formlega verið lokað. Öll starfsemi safnsins verður færð yfir á Þjóðskjalasafnið á næsta ári í sparnaðarskyni. Innlent 16.12.2025 15:37
Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Óvíst er hvort Guðmundur Ingi Kristinsson menntamálaráðherra muni snúa aftur til starfa í menntamálaráðuneytið eftir að veikindaleyfi hans nú lýkur. Hann er á leið í opna hjartaskurðaðgerð og tíminn þarf að leiða í ljós hvernig bataferli hans verður. Innlent 15.12.2025 22:40
Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Umhverfis- og orkustofnun hefur endurútgefið virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Það er eftir að fyrra leyfið var fellt úr gildi með dómi Hæstaréttar frá 9. júlí. Nú mun Landsvirkjun sækja um framkvæmdaleyfi að virkjuninni sjálfri, þar sem undirbúningsvinna er sögð langt komin. Innlent 12.12.2025 17:09
Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Fangelsismálastjóri í leyfi, háskólaprófessor og fjórir stjórnendur eru meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu. Sex umsóknir bárust um embættið en staðan var auglýst laus til umsóknar þann 25. nóvember síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út þann 10 desember. Innlent 12.12.2025 10:49
325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær beiðni umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar um að heimila útboð í framkvæmdir vegna LED-ljósavæðingar og endurnýjunar gatnalýsingar fyrir næsta ár. Áætlaður kostnaður vegna framkvæmdanna er 325 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin muni borga sig upp á nokkrum árum þar sem nýtt ljósakerfi verði ódýrara í rekstri. Innlent 12.12.2025 07:49
Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði kröfu íbúa í grennd við bakaríið og kaffihúsið Hygge á Barónsstíg. Íbúarnir lögðu fram stjórnvaldskæru og kölluðu eftir því að starfsleyfi staðarins yrði afturkallað, meðal annars vegna sorphirðumála og mengunar. Innlent 11.12.2025 16:49
Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Helgi Valberg Jensson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, tekur við sem ritari þjóðaröryggisráðs um næstu mánaðarmót. Forsætisráðherra féllst á tillögu Þórunnar J. Hafstein, fráfarandi ritara, að hún láti af störfum. Innlent 11.12.2025 15:12
Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur samþykkti í gær að auglýsa tillögu að nýju deiluskipulagi vegna Borgarlínu og hefur málinu verið vísað til borgarráðs. Um er að ræða breytingu sem varðar stóran hluta af fyrsta áfanga Borgarlínu sem snýr að skipulagi við Suðurlandsbraut frá Skeiðarvogi að Lágmúla. Tillagan hefur verið umdeild en borgarfulltrúar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks lýstu hörðum mótmælum við áformin í bókunum við afgreiðslu málsins í ráðinu. Innlent 11.12.2025 15:10
Helmingur ríkisstofnana hafi stytt opnunartíma Síðan samið var um styttingu vinnuvikunnar fyrir sex árum hefur um helmingur ríkisstofnana stytt opnunartíma sinn. Algengast er að opnunartíminn hafi verið styttur um tvær klukkustundir, úr átta í sex, í þeim tilfellum sem það hefur verið gert. Þá hefur opnunartími haldist óbreyttur hjá rúmum þriðjungi stofnana ríkisins en þrettán prósent þeirra hafa lengt opnunartíma sinn. Innlent 11.12.2025 08:16
Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Hafnarfjarðarbær hafi brotið gegn stjórnsýslulögum með því að afturkalla ráðningu Óskars Steins Ómarssonar stjórnmálafræðings í stöðu deildarstjóra tómstundamiðstöðvar Hraunvallaskóla, þremur vikum eftir að hann var ráðinn. Óskar Steinn telur að gagnrýni hans í garð kjörinna fulltrúa bæjarins hafi orðið til þess að hætt var við ráðninguna og segir gott að geta skilað skömminni til síns heima, í ráðhús Hafnarfjarðar. Innlent 8.12.2025 14:41
Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Fjárhæð veiðigjalds næsta árs liggur nú fyrir en eru upplýsingarnar seinni á ferðinni en venjulega. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkisins af veiðigjaldi næsta árs verði um fimmtán milljarðar. Lög gera ráð fyrir að ríkisskattstjóri geri tillögu um fjárhæð gjaldsins til ráðherra eigi síðar en 1. desember ár hvert, en enn sem komið er hafa ekki fengist svör frá stjórnvöldum um hvers vegna auglýsing um fjárhæð gjaldsins er seinni á ferðinni í ár en venjulega. Sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga að greiða gjaldið voru farin að lengja eftir því að vita hvað þau eigi að borga á næsta ári. Viðskipti innlent 5.12.2025 14:53
Koma Ársæli til varnar og telja ráðherra refsa honum fyrir skoðanir sínar Fulltrúar úr fráfarandi skólanefnd Borgarholtskóla skora á mennta- og barnamálaráðherra að falla frá ákvörðun sinni um að framlengja ekki skipunartíma Ársæls Guðmundssonar skólameistara skólans. Fulltrúar sem setið hafa í skólanefndinni telja ákvörðun ráðherra órökstudda og án aðdraganda auk þess sem þau gruni að með ákvörðun sinni sé ráðherra að refsa Ársæli fyrir gagnrýni sem hann hafi haldið á lofti um áform stjórnvalda um málefni framhaldsskóla. Innlent 4.12.2025 09:57
Nú má heita Jörvaldi, Aþanasíus, Fjörður, Ai, Kalix og Ríma Mannanafnanefnd hefur nú samþykkt nöfnin Rick, Raven, Enora, Carlo, Flóres, Jörvaldi, Ian, Mannsi, Amaram, Aþanasíus, Fjörður, Ai, Kalix og Ríma. Þá er búið að samþykkja föður- og móðurkenningarnar Maríusson, Maríusdóttir, Margrétardóttir og Mikaelsdóttir. Úrskurðirnir voru birtir í vikunni á vef stjórnarráðsins. Innlent 28.11.2025 11:57
Bætt stjórnsýsla fyrir framhaldsskólana Á síðustu sjö vikum hef ég heimsótt alla opinberu framhaldsskólana, 27 um land allt. Í þessum heimsóknum hef ég kynnst og rætt við kennara, nemendur, stjórnendur og starfsfólk sem allt vinnur að því að skapa öflugt og lifandi skólasamfélag. Skoðun 27.11.2025 08:31
Páll áfram í leyfi en leggur fyrirhugaðri nýrri stofnun lið Páll Winkel verður áfram í leyfi frá störfum sem forstöðumaður Fangelsismálastofnunar en hefur tekið að sér vera fulltrúi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins í verkefni um nýja Miðstöð um öryggisráðstafanir. Birgir Jónasson, sem hefur verið settur fangelsismálastjóri síðan Páll fór í leyfi í september í fyrra, verður áfram settur fangelsismálastjóri í ár til viðbótar. Innlent 26.11.2025 13:47
Skipuð framkvæmdastjóri Menntasjóðs námsmanna Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur skipað Rakel Elíasdóttur í embætti framkvæmdastjóra Menntasjóðs námsmanna til fimm ára frá og með 1. janúar næstkomandi. Innlent 26.11.2025 08:27
Hafa áhyggjur af fjármögnun loftslagsaðgerða stjórnvalda Nauðsynlegt er að ráðast í ítarlega greiningu á áhrifum loftslagsaðgerða stjórnvalda til þess að hægt sé að forgangsraða þeim, að mati verkefnisstjórnar stjórnvalda sem lýsir áhyggjum af fjármögnun aðgerðanna. Forgangsaðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga að draga úr losun um ríflega hálfa milljón tonna koltvísýrings næsta hálfa áratuginn. Innlent 21.11.2025 14:09
Nær allir sammála um afsögn ríkislögreglustjóra Svarendur í skoðanakönnun sem Maskína gerði voru svo gott sem á einu máli um að það hefði verið rétt ákvörðun hjá Sigríði Björk Guðjónsdóttur að segja af sér sem ríkislögreglustjóri. Sú afstaða er óháð kyni, aldri, búsetu, menntun, tekjum eða stjórnmálaskoðunum svarenda. Innlent 20.11.2025 09:20
Sviðsstjóri lögsækir Ríkisendurskoðun Sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun hefur höfðað mál á hendur embættinu vegna ákvörðunar ríkisendurskoðanda um að færa hann til í starfi. Málið er höfðað hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 19.11.2025 21:09
Mál ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Forsætisnefnd Alþingis hefur borist formlegt erindi um mannauðsmál Ríkisendurskoðunar. Bryndís Haraldsdóttir, 1. varaforseti þingsins, staðfestir í samtali við fréttastofu að málið og gögnin séu komin til nefndarinnar. Málið sé nú á borði forseta þingsins. Innlent 19.11.2025 18:05
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent