Fréttir af flugi
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 147 ›
909 milljarðar í samgöngur og einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 útrýmt Tillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra að samgönguáætlun til næsti fimmtán ára gerir ráð fyrir að 909 milljarðar króna verði varið í samgöngur á tímabilinu. Auknu fjármagni verði varið í innanlandsflugvelli og einbreiðum brúm á hringveginum útrýmt. Innlent 13.6.2023 13:20
Fjögur börn fundust eftir fjörutíu daga í frumskóginum Fjögur börn sem hafa vafrað allslaus í Amazon-regnkóginum í Kólumbíu undanfarna fjörutíu daga eftir flugslys fundust heil á húfi í gær. Erlent 10.6.2023 08:43
Farþegar reiðir leiguflugvélum Icelandair Upp á síðkastið hafa nokkrar flugferðir Icelandair verið með óhefðbundnu sniði en félagið leigir nú flota frá búlgarska flugfélaginu Fly2Sky auk þess sem Dash8 Q400 vél úr innanlandsflugi var bætt við flotann. Flugvélarnar sem um ræðir eru að sögn ósáttra farþega minni, háværari og ekki er boðið upp á skemmtikerfi á sætisbökum, sem er eitt aðaleinkenni Icelandair flugvéla. Neytendur 9.6.2023 12:16
Icelandair flýgur til Færeyja Icelandair tilkynnti Færeyjar sem nýjan áfangastað í dag. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku með morgunflugi út október á næsta ári. Viðskipti innlent 8.6.2023 12:52
Vilja allir fljúga? Með árunum finnst mér millilandaflug farið að verða minna og minna spennandi. Öryggisleitin á flugstöðinni er niðurlægjandi. Hnútur í maganum í flugtaki. Innilokunarkenndin í flugvélinni þrúgandi. Það fer hrollur um mig þegar ég hugsa um farþegaþotu sem upphitaðan þrýstiklefa á næstum hljóðhraða. Ef eitthvað klikkar, þá er maður dauður. Og nú er flugviskubitið verulega farið að naga mig. Skoðun 8.6.2023 08:01
Misstu meðvitund skömmu eftir flugtak Flugmaður og farþegar einkaflugvélar sem brotlenti í Virginíu í Bandaríkjunum á dögunum misstu líklega meðvitund skömmu eftir flugtak. Einungis fimmtán mínútum eftir að flugvélinni var flogið af stað, svaraði flugmaður hennar ekki fyrirspurnum flugumferðarstjóra. Erlent 7.6.2023 09:56
Stærsti mánuður Play frá upphafi Farþegar Play voru 128.894 í maí síðastliðnum. Um er að ræða 26 prósent fjölgun milli mánaða og metfjölda hjá flugfélaginu unga. Viðskipti innlent 7.6.2023 09:46
Farþegum fjölgaði um sextán prósent milli ára Heildarfjöldi farþega Icelandair var um 366 þúsund í maí, sextán prósent fleiri en í maí í fyrra þegar farþegar voru 316 þúsund. Sætaframboð í maí jókst um ellefu prósent miðað við fyrra ár. Viðskipti innlent 6.6.2023 17:47
Munu fljúga daglega til Amsterdam næsta vetur Flugfélagið Play hyggst fljúga daglega til Schiphol-flugvallar í Amsterdam næsta vetur. Félagið fór í sitt fyrsta áætlunarflug til hollensku höfuðborgarinnar í gær. Viðskipti innlent 6.6.2023 10:45
Rangfærslur um skýrslu vegna Nýja Skerjafjarðar Vegna sífelldra rangfærslna um að það sé í lagi að ný byggð rísi í Skerjafirði vegna þess að „mótvægisaðgerðir“ muni bjarga málunum er rétt að leiðrétta þann misskilning sem borgarfulltrúar meirihlutans, borgarstjóri og aðrir vilja halda fram, hvort sem það er gert viljandi í áróðursskyni eða vegna vanþekkingar á málinu. Skoðun 5.6.2023 13:00
Orrustuþotum flogið til móts við stjórnlausa flugvél yfir Washington DC Engin lifði af þegar einkaflugvél brotlenti í Virginíu í Bandaríkjunum í gær. Áður en hún brotlenti var henni flogið beint yfir höfuðborg Bandaríkjanna og svaraði flugmaður hennar ekki fyrirspurnum og virðist flugvélin hafa verið stjórnlaus. Því voru orrustuþotur sendar til móts við hana. Erlent 5.6.2023 10:24
Icelandair hefur samstarf við Turkish Airlines Icelandair og Turkish Airlines undirrituðu í morgun samstarfssamning sem felst í því flugfélögin munu geta boðið viðskiptavinum sínum tengingar á milli leiðakerfa sinna og þannig aukið úrval tengimöguleika. Viðskipti innlent 4.6.2023 11:32
Flugsýning einn af stærstu menningarviðburðum borgarinnar Þúsundir manna sóttu flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem sjá mátti þverskurð íslenska fluggeirans, allt frá litlum drónum upp í stórar farþegaþotur. Margir tóku andköf þegar djarfir listflugmenn veltu sér um háloftin. Innlent 3.6.2023 22:18
Fluttu stigabíl frá Keflavík fyrir Airbus-þotu í Reykjavík Sérstakur stigabíll fyrir stórar flugvélar var fluttur til Reykjavíkur frá Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. Flytja þurfti hann á trukki þar sem hann er ekki á númerum. Ástæðan fyrir þessum óvenjulega flutningi er sú að á Reykjavíkurflugvelli er aðeins til einn nægilega stór stigi og talin var þörf á tveimur stórum stigum vegna flugsýningarinnar sem þar fer fram í dag, laugardag. Innlent 2.6.2023 22:52
Stækkun flotans lyftir Play upp úr botnsæti listans yfir framlegð í flugi Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir að framvegis muni flugfélagið ekki verma botnsætið á listanum yfir rekstrarframlegð á fyrsta ársfjórðungi. Eftir að hafa stækkað flotann upp í tíu vélar sé stærðarhagkvæmnin farin að skila sér í eðlilegra jafnvægi milli kostnaðar og tekna. Innherji 2.6.2023 08:58
Boða til stærstu flugsýningar ársins á Reykjavíkurflugvelli „Stærsta flugsýning ársins“ segir Flugmálafélag Íslands í kynningu flugsýningar sem haldin verður á Reykjavíkurflugvelli á morgun, laugardag, 3. júní. Hátt á áttunda tug flugvéla og flygilda verða til sýnis og hátt á þriðja tug flugatriða þar sem lögð verður áhersla á að sýna breidd og drifkraft íslensks flugsamfélags, að sögn Matthíasar Sveinbjörnssonar, forseta Flugmálafélagsins. Innlent 1.6.2023 23:40
Samkeppni um innritun farangurs í Keflavík Nýtt íslenskt fyrirtæki að nafni BagBee tekur nú að sér innrita farangur fyrir fólk á Keflavíkurflugvelli. Þjónusta sem þessi hefur verið að ryðja sér til rúms í Evrópu en um er að ræða annað fyrirtækið hér á landi sem býður upp á hana. Viðskipti innlent 1.6.2023 14:09
Segir Play með yngsta flugflota í Evrópu með nýjustu þotunni Flugfélagið Play fékk í dag sína tíundu þotu, beint úr verksmiðju Airbus í Hamborg. Forstjóri Play segir félagið núna með yngsta flugflota Evrópu. Viðskipti innlent 31.5.2023 23:03
Breytt neyslumynstur gæti dempað áhrif verðbólgu á ferðamennsku Breytingar á neyslumynstur fólks eftir heimsfaraldurinn gæti mögulega dregið úr þeim neikvæðu áhrifum sem mikil verðbólga mun hafa á eftirspurn í flugiðnaðinum, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair. Rekstrarafkoma íslensku flugfélaganna á fyrsta ársfjórðungi var sýnu verst í samanburði við nærri sextíu flugfélög á heimsvísu. Innherji 31.5.2023 11:54
Svona er Keflavíkurflugvöllur að breytast Keflavíkurflugvöllur er að breytast og stækka til muna. Margir veitingastaðir og verslanir eru að hverfa og nýtt kemur inn. Lífið 31.5.2023 10:10
Saka kínverskan flugmann um „óþarflega ágenga“ hegðun Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna í Indlands- og Kyrrahafi sökuðu kínverskan flugmann í dag um „óþarflega ágenga“ hegðun yfir Suður-Kínahafi. Kínverskur flugmaður flaug herþotu af gerðinni J-16 í veg bandarískrar eftirlitsvélar af gerðinni RC-135. Erlent 30.5.2023 22:35
Vigta farþega áður en þeir stíga um borð Flugfélag Nýja-Sjálands hyggst vigta alla farþega sem stíga um borð í flugvélar félagsins í júlímánuði. Er það gert til að finna út meðalþyngd farþega. Erlent 30.5.2023 19:49
Fyrsta áætlunarflug kínverskrar farþegaþotu Farþegaþota smíðuð af kínverskum flugvélaframleiðenda flaug fyrsta áætlunarflug sitt frá Sjanghæ til Peking á sunnudag. Kínverjar hyggjast veita risum á borð við Boeing og Airbus samkeppni á flugvélamarkaði með vélinni. Erlent 28.5.2023 11:41
Opnaði dyr farþegaþotu á flugi Lögreglan í Suður-Kóreu handtók mann í morgun sem hafði opnað dyr farþegaþotu þegar vélin var að koma inn til lendingar á Daegu alþjóðaflugvellinum. Erlent 26.5.2023 08:54
Flugfélagið Atlanta fær Boeing 777-breiðþotur Air Atlanta hefur fyrst íslenskra flugfélaga tekið Boeing 777-breiðþotuna í notkun. Hún er stærsta farþegaflugvél heims sem er í framleiðslu um þessar mundir. Viðskipti innlent 25.5.2023 21:42
Bjóða upp á flug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar Icelandair ætlar að bjóða upp á flug á milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar í tengslum við millilandaflug sitt frá 15. október til 30. nóvember. Flogið verður þrisvar í viku. Viðskipti innlent 25.5.2023 14:21
EasyJet flýgur frá Akureyri til London í vetur Opnað hefur verið fyrir bókanir í flugferðir með easyJet á milli London og Akureyrar í vetur. Fyrsta flugferðin verður 31. október en flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum, út mars 2024. Viðskipti innlent 25.5.2023 11:31
Frakkar banna stutt flug Frakkland hefur nú bannað stutt innanlandsflug ef sambærileg lestarferð er til staðar. Þetta er gert til að sporna við losun kolefnis þar sem lestarferðirnar eru töluvert umhverfisvænni. Það eru þó ekki jafn margar flugleiðir sem verða fyrir barði bannsins og upphaflega var gert ráð fyrir. Erlent 23.5.2023 23:58
Sátu eftir á Alicante eftir að fluginu var flýtt Íslenskt par varð eftir á Alicante á Spáni í dag eftir að flugi þeirra með flugfélaginu Play var flýtt um fimm klukkustundir vegna óveðurs. Þau sakna þess að hafa fengið tilkynningu frá flugfélaginu. Flugfélagið segir slíkt því miður geta komið fyrir þegar flugmiðar séu bókaðir í gegnum þriðja aðila. Komið verði til móts við fólkið og því boðin frí breyting á flugi. Neytendur 23.5.2023 21:05
„Þetta er óvanalegt en þetta er Ísland“ Flugumferð fór úr skorðum í dag vegna hvassviðris en gular viðvaranir eru í gildi á nær öllu landinu. Öllu innanlandsflugi var aflýst og þrettán brottförum frá Keflavík. Ekki var hægt að nota landganga á Keflavíkurflugvelli vegna vindhraða og þeim flugferðum sem ekki var aflýst var frestað fram á kvöld. Innlent 23.5.2023 19:30