Fréttir Tryggvi Þór Herbertsson ráðinn bankastjóri Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur verið ráðinn bankastjóri nýs fjárfestingabanka sem taka mun til starfa í byrjun næsta árs. Að bankanum standa meðal annars Sjóvá fjárfestingar, fasteignafélagið AVP og Ráðgjöf og efnahagsspá. Viðskipti innlent 24.11.2006 16:54 Sigurður Óli verður aðstoðarforstjóri Actavis Sigurður Óli Ólafsson tekur við af Svöfu Grönfeldt sem aðstoðarforstjóri Actavis en Svafa var í dag kynnt sem næsti rektor Háskólans í Reykjavík. Fram kemur í tilkynngu frá Actavis að Sigurður Óli hafi verið framkvæmdastjóri félagsins í Bandaríkjunum og muni nú einnig gegna stöðu aðstoðarforstjóra félagsins frá 1.desember 2006. Innlent 24.11.2006 16:52 Vogunarsjóðir gegn Stork Vogunarsjóðirnir Centaurus og Paulson, sem eiga samanlagt um 32% hlutafjár í hollensku fyrirtækjasamstæðunni Stork, hafa sett fram kröfu um að haldinn verði sérstakur hluthafafundur til að taka fyrir vantrausttillögu á stjórn félagsins. Viðskipti erlent 24.11.2006 16:51 Skautasvell á Ingólfstorgi í desember Skautasvell verður opnað á Ingólfstorgi þann 7. desember og verður opið til mánaðarloka. Það er Tryggingamiðstöðin, sem er með höfuðstöðvar sínar við Aðalstræti, sem setur svellið upp í samvinnu við borgina og er það gert vegna 50 ára afmælis félagsins sem einmitt verður haldið hátíðlegt þann 7. desember næstkomandi. Innlent 24.11.2006 16:37 Slíta stjórnmálasambandi við Frakkland Rúanda hefur slitið stjórnmálasambandi við Frakkland og gefið franska sendiherranum tuttugu og fjóra tíma til þess að koma sér úr landi. Erlent 24.11.2006 16:37 Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi Karlmaður var í dag sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot í Héraðsdómi Norðurlands eystra í tengslum við alvarlegt umferðarslys á Hringveginum sunnan við Syðri Bægisá í Hörgárbyggð í maí fyrra. Innlent 24.11.2006 16:24 Brenndu sex menn lifandi Vopnaðir sjía múslimar, í Írak, réðust í dag á sex súnní múslima sem voru að koma frá bænahaldi, og brenndu þá lifandi. Þetta er talið vera hefnd fyrir mannskæða sprengjuárás, í gær, sem kostaði yfir 200 manns lífið, í hverfi sjía múslima í Bagdad. Erlent 24.11.2006 16:23 Viðræður við Norðmenn um öryggissamstarf ákveðnar Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ákváðu í dag að hefja þegar í næsta mánuði formlegar viðræður milli Íslands og Noregs um eftirlit í Norðurhöfum og framtíðarsamstarf landanna á sviði öryggis- og varnarmála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Innlent 24.11.2006 15:50 Myrtur með geislavirkum ísótópum Erlent 24.11.2006 15:46
300 301 302 303 304 305 306 307 308 … 334 ›
Tryggvi Þór Herbertsson ráðinn bankastjóri Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur verið ráðinn bankastjóri nýs fjárfestingabanka sem taka mun til starfa í byrjun næsta árs. Að bankanum standa meðal annars Sjóvá fjárfestingar, fasteignafélagið AVP og Ráðgjöf og efnahagsspá. Viðskipti innlent 24.11.2006 16:54
Sigurður Óli verður aðstoðarforstjóri Actavis Sigurður Óli Ólafsson tekur við af Svöfu Grönfeldt sem aðstoðarforstjóri Actavis en Svafa var í dag kynnt sem næsti rektor Háskólans í Reykjavík. Fram kemur í tilkynngu frá Actavis að Sigurður Óli hafi verið framkvæmdastjóri félagsins í Bandaríkjunum og muni nú einnig gegna stöðu aðstoðarforstjóra félagsins frá 1.desember 2006. Innlent 24.11.2006 16:52
Vogunarsjóðir gegn Stork Vogunarsjóðirnir Centaurus og Paulson, sem eiga samanlagt um 32% hlutafjár í hollensku fyrirtækjasamstæðunni Stork, hafa sett fram kröfu um að haldinn verði sérstakur hluthafafundur til að taka fyrir vantrausttillögu á stjórn félagsins. Viðskipti erlent 24.11.2006 16:51
Skautasvell á Ingólfstorgi í desember Skautasvell verður opnað á Ingólfstorgi þann 7. desember og verður opið til mánaðarloka. Það er Tryggingamiðstöðin, sem er með höfuðstöðvar sínar við Aðalstræti, sem setur svellið upp í samvinnu við borgina og er það gert vegna 50 ára afmælis félagsins sem einmitt verður haldið hátíðlegt þann 7. desember næstkomandi. Innlent 24.11.2006 16:37
Slíta stjórnmálasambandi við Frakkland Rúanda hefur slitið stjórnmálasambandi við Frakkland og gefið franska sendiherranum tuttugu og fjóra tíma til þess að koma sér úr landi. Erlent 24.11.2006 16:37
Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi Karlmaður var í dag sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot í Héraðsdómi Norðurlands eystra í tengslum við alvarlegt umferðarslys á Hringveginum sunnan við Syðri Bægisá í Hörgárbyggð í maí fyrra. Innlent 24.11.2006 16:24
Brenndu sex menn lifandi Vopnaðir sjía múslimar, í Írak, réðust í dag á sex súnní múslima sem voru að koma frá bænahaldi, og brenndu þá lifandi. Þetta er talið vera hefnd fyrir mannskæða sprengjuárás, í gær, sem kostaði yfir 200 manns lífið, í hverfi sjía múslima í Bagdad. Erlent 24.11.2006 16:23
Viðræður við Norðmenn um öryggissamstarf ákveðnar Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ákváðu í dag að hefja þegar í næsta mánuði formlegar viðræður milli Íslands og Noregs um eftirlit í Norðurhöfum og framtíðarsamstarf landanna á sviði öryggis- og varnarmála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Innlent 24.11.2006 15:50
Scania fellir tilboð MAN Stjórn sænska vörubílaframleiðandans Scania hefur fellt óvinveitt yfirtökutilboð þýska samkeppnisaðilans MAN í félagið. Tilboðið hljóðaði upp á 10,2 milljarða evrur eða um 942 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 24.11.2006 15:44
Nasistastytta afhjúpuð í Noregi Stytta af lögreglustjóra Oslóarborgar, á stríðsárunum, hefur verið afhjúpuð í dag. Knut Röd vann sér það helst til frægðar að senda um 850 norska Gyðinga í útrýmingarbúðir nasista. Aðeins ellefu þeirra áttu afturkvæmt. Erlent 24.11.2006 15:34
Varað við svifryki í borginni Umhverfissvið Reykjavíkurborgar varar við því að svifryk mælist nú yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík. Búist er við áframhaldandi stilltu veðri fram á kvöld og því er útlit fyrir að magn svifryks í andrúmslofti verði áfram yfir heilsuverndarmörkum. Innlent 24.11.2006 15:31
Landsvirkjun tvöfaldar styrk sinn við Ómar Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að tvöfalda stuðning sinn við Ómar Ragnarsson fréttamann úr fjórum milljónum í átta vegna kvikmyndar sem hann vinnur að um fyllingu Hálslóns við Kárahnjúka. Ákvörðunin var tekin á fundi stjórnarinnar í morgun. Innlent 24.11.2006 15:13
Íslendingar í samstarf við Bollywood? Íslendingar munu leita eftir nánara samstarfi við Indverja á sviði kvikmynda og reyna að lokka framleiðendur Bollywood-mynda til landsins. Frá þessu er greint á indverska fréttavefnum newkerala.com. Innlent 24.11.2006 15:04
IKEA, þú sem ert á himnum Ný könnun sýnir að Svíar setja mublurisann IKEA mikilu hærra en kirkjuna, þegar trú og traust er annarsvegar. Erlent 24.11.2006 15:03
Telja hvalaskoðunarbáta ógna lífi hvalanna Sameiginlegar rannsóknir breskra og kanadiskra vísindamanna benda til þess að hvalaskoðunarbátar trufli svo hvalina, að lífi þeirra geti stafað hætta af. Bátarnir trufli hvalina við fæðuöflun og hreki þá jafnvel frá góðum matar- og hvíldarsvæðum. Erlent 24.11.2006 14:40
Umferðaröryggi á Íslandi meðal þess besta í Evrópu Íslendingar eru í fremstu röð Evrópuþjóða hvað varðar umferðaröryggi að mati doktors Günters Breyers, aðstoðarvegamálastjóra Austurríkis og forstöðumanns tækni- og umferðaröryggissviðs samgönguráðuneytis landsins. Innlent 24.11.2006 14:37
Enn ein fjöldagröfin í Bosníu Enn ein fjöldagröfin er fundin í Bosníu og er talið að hún sé frá fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995. Samtals fundust jarðneskar leifar 156 fórnarlamba. Þar af voru níutíu heil lík og svo líkamshlutar af sextíu og sex mönnum. Erlent 24.11.2006 14:29
Hrakningar Wilke halda áfram Hrakningum flutningaskipsins Wilke hér við land virðist ekki ætla að linna því í gær sigldi skipið á fiskiskipið Brynjólf í höfninni í Vestmannaeyjum. Engin slys urðu á fólki en töluverðar skemmdir urðu á Brynjólfi. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta. Innlent 24.11.2006 14:26
Enski boltinn aftur á Sýn 365 hafði betur í keppni við Skjásport í baráttu um sýningarrétt frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu tímabilinu 2007 til 2010. Ari Edwald, forstjóri 365, staðfesti þetta við fréttastofu NFS. Skjár einn og Skjásport hafa haft réttinn síðastliðin þrjú ár en þar áður hafði Sýn sýningarréttinn. Innlent 24.11.2006 14:20
Raðsælkeri dæmdur í eins árs fangelsi Karlmaður var í dag dæmdur í eins árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjársvik, með því að hafa á tímabilinu frá mars til nóvember í ár pantað og neytt veitinga á veitingahúsum í Reykjavík fyrir samtals rúmlega sextíu þúsund krónur án þess að geta greitt fyrir þær. Innlent 24.11.2006 13:48
Vonar að Pólverjarnir snúi sem fyrst heim á ný Utanríkisráðherra Póllands kveðst vona að pólskir verka- og iðnaðarmenn snúi heim aftur sem fyrst, enda á landið í nokkrum vandræðum vegna atgervisflótta. Erlent 24.11.2006 13:45
Le Pen vinsælli en nokkru sinni Hægri öfgamaðurinn Jean-Marie Le er nú vinsælli en nokkrusinni, í Frakklandi, og gerir sér góðar vonir um að fara með sigur af hólmi í forsetakosningunum sem haldnar verða eftir sex mánuði. Erlent 24.11.2006 13:26
15 mánuðir fyrir rán í apóteki Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir rán í apóteki í Kópavogi í febrúar síðastliðnum. Maðurinn réðst inn í lyfjaverslunina Apótekarann að Smiðjuvegi vopnaður hnífi og með andlit sitt hulið, fór inn fyrir afgreiðsluborðið og ógnaði starfsmönnunum. Innlent 24.11.2006 12:58
Fermingarbörn söfnuðu sjö milljónum fyrir vatnsverkefni Fermingarbörn söfnuðu sjö milljónum króna í vatnsverkefni Hjálparstofnunar kirkjunnar með því að ganga í hús um allt land. Er þar um að ræða metupphæð en í fyrra söfnuðust 6,8 milljónir Innlent 24.11.2006 12:41
Volvo innkallar 360.000 bíla í Bandaríkjunum Bandaríska umferðaöryggisstofnunin (NHTSA) hefur skikkað bílaframleiðandann Volvo, dótturfyrirtæki Ford, til að innkalla 360.000 bíla í Bandaríkjunum vegna galla í rafeindastýrðri eldsneytisgjöf bílanna. Viðskipti erlent 24.11.2006 12:56
Aðeins ljósmyndarar mega taka myndir í vegabréf Ljósmyndarar með iðnréttindi og nemar í ljósmyndun mega einir taka ljósmyndir í vegabréf samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í dag. Innlent 24.11.2006 12:45
Vanefndir af hálfu ríkisstjórnar ef vaxtabótafrumvarp fer óbreytt í gegn Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að ef tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á vaxtabótum, sem nú eru til umfjöllunar á Alþingi, verði samþykktar óbreyttar sé um vanefndir að ræða af hálfu ríkisstjórnarinnar. Innlent 24.11.2006 12:28
Nærri tíunda hvert heimili án reykskynjara Enginn reykskynjari er á nærri einu af hverjum tíu heimilum á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt nýrri könnun Capacent fyrir Landssamband sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna. Innlent 24.11.2006 12:19
Styrkir til ættleiðingar erlendis frá Nýtt frumvarp um styrki frá ríkinu til foreldra sem ættleiða barn erlendis frá verður lagt fram í næstu viku. Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan hálf fjögur þar sem hann ætlar að kynna frumvarpið. Styrkirnir nema tæpri hálfri milljón króna en allir sem uppfylla skilyrði laga um ættleiðingar eiga rétt á styrknum. Innlent 24.11.2006 12:25