Fréttir
294 295 296 297 298 299 300 301 302 … 334 ›
Tap HB Granda ríflega milljarður á fyrstu níu mánuðum ársins Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækisins HB Granda nam rúm einum og hálfum milljarði króna á þriðja ársfjórðungi ársins samkvæmt uppgjöri. Er það nærri milljarði meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Hins vegar er tap fyrirtækisins á fyrstu níu mánuðum ársins rúmlega milljarður en ríflega 900 milljóna króna hagnaður varð af rekstri fyrirtækisins á sama tíma í fyrra. Innlent 28.11.2006 16:17
Abbas gefst upp á stjórnarmyndun með Hamas Forseti Palestínu hefur tilkynnt konungi Jórdaníu að viðræðurnar við Hamas, um þjóðstjórn, hafi farið út um þúfur og hann munu nú leita annarra leiða til að mynda ríkisstjórn. Reuters fréttastofan hefur þetta eftir hátt settum palestinskum embættismanni. Erlent 28.11.2006 16:03
Rafmagn fór af í Reykhólasveit í slæmu veðri Rafmagn er nú komið á á flestum stöðum í Reykhólasveit á Vestfjörðum en rafmagn fór þar af fyrr í dag. Að sögn Þorsteins Sigfússonar, svæðisstjóra Orkubús Vestfjarða á Hólmavík, var slæmu veðri líklega um að kenna og er dísilrafstöð nú notuð til rafmagsframleiðslu að Reykhólum. Innlent 28.11.2006 16:00
Evrópa laug um fangaflutninga og leynifangelsi Evrópuríki lugu og reyndu að hindra rannsókn á leynifangelsum CIA fyrir meinta hryðjuverkamenn, að því er segir í frumskýrslu rannsóknarnefndar Evrópuþingsins um málið. Bæði ríkisstjórnir og nafngreindir, hátt settir embættismenn, fá harða gagnrýni í skýrslunni. Erlent 28.11.2006 15:56
Keyrði ítrekað á annan bíl Lögreglan í Reykjavík fékkst í gær við heldur óvenjulegt mál tengt umferðinni. Þannig ók maður bíl sínum ítrekað og vísvitandi á annan bíl sem var mannlaus og kyrrstæður á bílastæði og hlutust af því nokkrar skemmdir. Innlent 28.11.2006 15:46
SVÞ gagnrýnir að verkefni séu færð frá einkafyrirtækjum til sýslumanns Samtök verslunar og þjónustu mótmæla harðlega þeirri ákvörðun utanríkisráðuneytisins að fela sýslumannsembættinu á Keflavíkurflugvelli að taka við vopnaleit og öryggiseftirliti með farþegum á vellinum í stað Securitas og Öryggismiðstöðvar Íslands. Innlent 28.11.2006 15:40
Hvítglóandi af reiði yfir brottför útvarpsstjóra Útvarpsstjóri BBC, Michael Grade, hefur flutt sig yfir til hinnar einkareknu sjónvarpsstöðvar ITV, sem er sagt mikið áfall fyrir BBC og fjöður í hatt keppinautarins. Erlent 28.11.2006 15:15
Lögregla leitar manns sem áreitti unga stúlku Lögreglan í Reykjavík leitar nú karlmanns á miðjum aldri sem áreitti unga framhaldsskólastúlku kynferðislega við strætóskýli nálægt Laugalækjarskóla í morgun. Að sögn lögreglu átti atvikið sér stað á milli klukkan níu og tíu og er talið að maðurinn hafi berað á sér kynfærin fyrir framan stúlkuna. Innlent 28.11.2006 15:05
Innbrotum fækkar í Reykjavík Innbrotum í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík hefur fækkað nokkuð frá árinu 2003 samkvæmt nýjum tölum sem birtar eru á vef lögreglunnar. Innlent 28.11.2006 14:49
NATO-ríki vilja ekki láta hermenn sína berjast Nokkur evrópsk aðildarríki NATO hafa verið gagnrýnd fyrir að halda hermönnum sínum fjarri öllum bardögum í Afganistan. Breskir, kanadiskir og hollenskir hermenn hafa borið hitann og þungann af bardögum undanfarin misseri. Erlent 28.11.2006 14:48
Tap OR 1,4 milljarðar á fyrstu níu mánuðum ársins Tap Orkuveitu Reykjavíkur nam rúmum 1,4 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins samkvæmt uppgjöri sem birt er á heimasíðu Kauphallar Íslands. Til samanburðar var hagnaður fyrirtækisins rúmir 3,5 milljarðar króna á sama tímabili í fyrra. Innlent 28.11.2006 14:39
Gæsluvarðhald enn framlengt í Danmörku Gæsluvarðhald yfir fimm múslimum, sem voru handteknir í Danmörku í september síðastliðnum, hefur verið framlengt til nítjánda desember. Mennirnir eru sakaðir um að hafa safnað að sér sprengiefni til þess að vinna hryðjuverk í Danmörku. Erlent 28.11.2006 14:08
Guðni tekur undir orð Jóns Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, tekur undir orð Jóns Sigurðssonar, formanns flokksins, um að það hafi verið mistök að styðja innrásina í Írak fyrir rúmum þremur árum. Þá segir hann nýjan stjórnunarstíl hafa fylgt nýjum forystumönnum ríkisstjórnarflokkanna, þeim Geir H. Haarde og Jóni Sigurðssyni. Innlent 28.11.2006 13:58
Franskir hermenn berjast í Mið-Afríku Lýðveldinu Franskar hersveitir hafa aðstoðað stjórnarher Mið-Afríku Lýðveldisins við að endurheimta borgina Birao úr höndum skæruliða sem hertóku hana um síðustu mánaðamót. Stjórnarherinn er þegar búinn að ná flugvelli borgarinnar á sitt vald. Erlent 28.11.2006 13:55
Ekið á gangandi vegfaranda í Reykjanesbæ Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Vesturgötu og Hringbrautar í Reykjanesbæ nú skömmu eftir hádegið. Lögregla hefur eftir vitnum að slysinu að ungur maður hafi hlaupið yfir götu og orðið þá fyrir bíl sem kom akandi en þó ekki á miklum hraða. Innlent 28.11.2006 13:55
Segjast til í viðræður Norður-Kóreumenn segjast nú reiðubúnir til viðræðna um kjarnorkumál sökum þess að staða þeirra hefur vænkast verulega með tilraunasprengingum þeirra. Erlent 28.11.2006 13:47
Helgi Magnús tekur við efnahagsbrotadeildinni Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari hjá ríkissaksóknara, tekur við embætti saksóknara efnahagsbrota og yfirmanns efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra í tenglsum við umfangsmiklar skipulagsbreytingar á löggæslumálum. Innlent 28.11.2006 13:12
Fitch stafestir lánshæfiseinkunnir Landsbankans Lánshæfimatsfyrirtækið Fitch staðfesti í kjölfar árlegrar skoðunar í dag óbreyttar lánshæfimatseinkunir Landsbankans. Lánshæfimatseinkun fyrir langtímaskuldbindingar er A, skammtímaeinkun er F1, Stuðningur 2 og fjárhagslegur styrkur er B/C. Horfur lánshæfimatsins eru stöðugar, samkvæmt Fitch. Viðskipti innlent 28.11.2006 13:03
Páfi kominn til Tyrklands Heimsókn Benedikts páfa sextánda til Tyrklands hófst í morgun en búist er við háværum mótmælum vegna hennar. Þetta er í fyrsta sinn sem Benedikt heimsækir ríki sem er að mestu byggt múslimum frá því að hann tók við páfadómi. Erlent 28.11.2006 12:14
Íslenska ríkið sýknað af kröfum Ásatrúarfélagsins Íslenska ríkið hefur verið sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Ásatrúarfélagsins um sambærilegar greiðslu sambærilegra gjalda félagsmanna og greidd eru í kirkjumálasjóð og Jöfnunarsjóð sókna. Allsherjargoði telur þó að um áfangasigur sé að ræða. Innlent 28.11.2006 12:13
Óveður undir Hafnarfjalli Vegagerðin varar við óveðri undir Hafnarfjalli. Þá er stórhríð í Reykhólasveit á Vestfjörðum og ófært um Klettsháls, Kleifaheiði, Hrafnseyrarheiði og um Eyrarfjall. Þá er hálka og stórhríð á Steingrímsfjarðarheiði. Innlent 28.11.2006 12:28
Íslendingar meti varnarþörf sína Varnarmálaráðherra Noregs segir eigið mat Íslendinga á varnarþörf þeirra og sanngjarna skiptingu kostnaðar forsendu varnarsamstarfs ríkjanna. Óformlegar viðræður um varnir Íslands fara að öllum líkindum fram á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hófst í dag í Lettlandi. Innlent 28.11.2006 12:08
Dregur úr væntingum neytenda Dregið hefur úr tiltrú neytenda síðustu vikurnar ef marka má Væntingavísitölu Gallup fyrir nóvember sem birt var í morgun. Almennt eru neytendur mjög jákvæðir gagnvart efnahagslífinu, en þó eru þeir aðeins fleiri um þessar mundir sem telja að ástandið muni versna en hinir sem telja að það muni batna. Viðskipti innlent 28.11.2006 12:00
Vaxtarverkir í skattkerfinu Skattalögum þarf að breyta svo að fyrirtæki standi klár á því hver beri ábyrgð á sköttum og lífeyrissjóðsgreiðslum erlendra starfsmanna, segir forstöðumaður skatta- og lögfræðisviðs Deloitte. Hann segir vaxtaverki í skattkerfinu. Innlent 28.11.2006 11:42
Sigrún tekur líklega við stöðu bæjarstjóra Gengið verður frá bæjarstjóraskiptum á Akureyri á morgun. Samfylkingin, samstarfsflokkur sjálfstæðismanna í meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar styður Sigrúnu Björk til starfans. Innlent 28.11.2006 11:39
Steingrímur og Þuríður efst í forvali VG í NA-kjördæmi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, leiðir lista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingksningar en hann varð efstur í forvali flokksins í kjördæminum sem fram fór nú í nóvember. Hinn þingmaður Vinstri - grænna í kjördæminu, Þuríður Backman, er í öðru sæti listans og Björn Valur Gíslason, sjómaður á Ólafsfirði, í því þriðja. Innlent 28.11.2006 11:28
Ekki hærri skatta, hikk Tékkland hefur neitað að fallast á áætlun Evrópusambandsins um að hækka skatta á uppáhaldsdrykk landsmanna, bjórnum. Til þess að leggja áherslu á málstaðinn mættu fulltrúar Tékklands með tvo bjórkúta á fundinn þar sem þeir tilkynntu að þeir myndu beita neitunarvaldi. Erlent 28.11.2006 11:25
Fá umönnunarbætur áfram í fæðingarorlofi Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp Magnús Stefánssonar, félagsmálaráðherra, um breytingu á lögum um fæðingarorlof. Frumvarpið felur það í sér að umönnunarbætur falla ekki niður á meðan að einstaklingar eru í fæðingarorlofi. Innlent 28.11.2006 11:17
Alvarlegt ástand í Blóðbankanum Alvarlegt ástand er í Blóðbankanum og mikill skortur á blóði og því eru blóðgjafar hvattir til að leggja sitt af mörkum næstu daga. Að sögn Sveins Guðmundssonar, yfirlæknis í Blóðbankanum, hefur mikið verið notað af blóði síðustu vikuna, þó sérstaklega um helgina, sem veldur því að öryggisbirgðir í Blóðbankanum eru komnar niður fyrir æskileg mörk Innlent 28.11.2006 11:17
Í gæsluvarðhaldi vegna morðs á njósnara Ítalinn Mario Scaramella, sem hitti rússneska njósnarann Alexander Litvinenko, daginn sem hann veiktist af geislaeitrun, er kominn til Lundúna og er undir vernd bresku lögreglunnar. Hann mun undirgangast rannsóknir til þess að kanna hvort hann hafi einnig orðið fyrir eitrun. Erlent 28.11.2006 11:10