Fréttir
239 240 241 242 243 244 245 246 247 … 334 ›
Árásir gerðar á Mogadishu Klasasprengjum og eldflaugum var skotið á hluta Mogadishu, höfuðborgar Sómalíu, í dag. Að minnsta kosti þrennt lét lífið í árásinni, eitt barn, ein kona og karlmaður. Ekki er vitað hverjir stóðu að baki henni. Erlent 1.2.2007 20:35
Skattur lagður á nagladekk? Umhverfisráðuneytið og Akureyrarbær boðuðu til blaðamannafundar á Akureyri í dag þar sem kynnt var ný skýrsla um svifryksmengun á Íslandi og leiðir til úrbóta. Þar kom fram að svifryksmengun horfir í að verða alvarlegt vandamál og boðar umhverfisráðherra aðgerðir sem byggðar eru á tillögu starfshóps. Þar verður þeim sem aka um á nagladekkjum refsað með því að greiða hærri tolla en þeir sem nota ónegld dekk. Innlent 1.2.2007 20:17
Forseti Kína til Súdan á morgun Forseti Kína, Hu Jintao, fer í sína fyrstu heimsókn til Súdan á morgun og ætlar sér eingöngu að skrifa undir viðskiptasamninga og heimsækja olíuhreinsunarstöð sem Kínverjar byggðu þar í landi. Vestræn stjórnvöld og mannréttindasamtök voru að vonast eftir því að Jintao myndi setja þrýsting á yfirvöld í Súdan vegna ástandsins í Darfur-héraði. Erlent 1.2.2007 20:09
Notar bleyjur fyrir sex mánaða börn Hann Antonio Vasconcelos, sem fæddist í Cancun í Mexíkó á mánudag, er enginn venjulegur strákur. Hann vó 27 merkur við fæðingu og mældist 55 sentimetrar á lengd. Erlent 1.2.2007 19:10
Frönsk stjórnvöld styrkja tölvuleikjaframleiðendur Á sama tíma og íslenskar fjölskyldur lenda í vandræðum vegna barna og unglinga sem hafa ánetjast tölvuleikjum hafa frönsk stjórnvöld ákveðið að styrkja þarlenda tölvuleikjaframleiðendur. Franska þingið samþykkti í dag að veita fyrirtækjum sem þróa „menningarlega tengda“ tölvuleiki skattaafslátt. Erlent 1.2.2007 19:35
Kefluðu ungabörn Starfsfólk sjúkrahúss í Jekaterinburg í Rússlandi var staðið að því að kefla ungabörn á spítalanum til að koma í veg fyrir að grátur þeirra heyrðist. Erlent 1.2.2007 19:08
Hafnar misréttinu Jóannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, segir það eitt af sínum helstu verkefnum sem stjórnmálamanns að koma í veg fyrir að samkynhneigðir séu beittir misrétti í eyjunum. Erlent 1.2.2007 19:04
Hefur ekkert með morðið á Litvinenko að gera Valdimir Pútín Rússlandsforseti þvertekur fyrir að Rússar noti olíu- og gaslindir sínar til að kúga önnur ríki. Hann segir ennfremur af og frá að rússnesk stjórnvöld hafi staðið á bak við morðið á njósnaranum Alexander Litvinenko. Erlent 1.2.2007 18:58
35 létu lífið í átökum í Kongó Fleiri en 35 manns létu lífið í Kongó í dag á átökum á milli stuðningsmanna Jean-Pierre Bemba og öryggissveita ríkisstjórnarinnar. Bemba tapaði forsetakosningum fyrir Joseph Kabila á síðasta ári. Stuðningsmenn Bemba voru hins vegar að mótmæla úrslitum fylkistjórakosninga í Kongó, sem fram fóru í janúar, en fylgismenn Kabila unnu stórsigur í nær öllum fylkjum landsins. Erlent 1.2.2007 18:58
Tölvuleikjafíkn vaxandi vandamál Unglingur í Hafnarfirði gekk berseksgang á heimilinu sínu í gærkvöldi af því að foreldrar hans sögðu upp nettengingu og hann gat ekki spilað uppáhalds tölvuleikinn sinn. Lögreglan var kölluð á staðinn og segir að tilfellum af þessu tagi fara fjölgandi. Engin sérstök úrræði eru fyrir tölvuleikjafíkla hér á landi og viðfangsefnið er órannsakað. Ólafur Guðmundsson yfirlæknir á barna og unglingageðdeild landsspítalans telur þörf á rannsóknum en segir um hegðunarvanda að ræða. Innlent 1.2.2007 18:53
Ruglingur að matarverð lækki um 16% Ríkisstjórnin hefur horfið frá fullyrðingu sinni um tæplega sextán prósenta lækkun matarverðs. Búist er við að matarverð lækki um níu til ellefu prósent. Samræmdar aðgerðir ýmissa aðila eiga að sjá til þess að lækkun matarverðs nái fram að ganga. Innlent 1.2.2007 17:06
Tap fyrir Rússum Íslenska landsliðið tapaði í kvöld fyrir Rússum 28-25 og leika því um 7. sætið á HM í handbolta. Rússar höfðu yfir í leikhléi 16-14, en íslenska liðið komst í fyrsta sinn yfir um miðjan síðari hálfleik. Eftir það tóku Rússar öll völd og tryggðu sér sigurinn með því að breyta stöðunni úr 22-24 í 27-22 sér í hag. Innlent 1.2.2007 18:25
Evrópuþingið vill alþjóðlegt bann við dauðarefsingum Evrópuþingið studdi í dag tillögu Sameinuðu þjóðanna um að banna dauðarefsingar um allan heim. Á sama tíma fordæmdi það aftöku Saddams Hússein, fyrrum einræðisherra í Írak. Tillagan var samþykkt með 591 atkvæði gegn 45. Í henni sagði að farsælast væri ef Sameinuðu þjóðirnar beittu sér fyrir því að koma á alþjóðlegu banni við dauðarefsingum. Erlent 1.2.2007 18:17
Fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun. Hann nauðgaði konu í heimahúsi í Reykjavík sl haust og hafði hún nokkra áverka af. Maðurinn, sem er með hreinan sakaferil, neitaði allri sök, en framburður konunnar og vitna þótti hins vegar trúverðugur. Innlent 1.2.2007 17:37
3 mánaða fangelsi vegna umferðarlagabrota Ung kona var í dag dæmd í Hæstarétti í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa tívegis ekið án ökuréttinda. Í annað skiptið var hún undir áhrifum áfengis. Þyngd dómsins er tilkomin vegna fyrri dóma um ölvunarakstur og akstur án ökuréttinda. Innlent 1.2.2007 17:15
Óbreyttir stýrivextir í Bandaríkjunum Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,25 prósentum. Stýrivextir hafa verið óbreyttir vestanhafs síðan í júní í fyrra eftir viðvarandi hækkanaskeið. Fréttaveitan Bloomberg segir líkur á að seðlabankinn muni ákveða að halda stýrivöxtunum óbreyttum áfram á næsta vaxtaákvörðunardegi í lok mars. Viðskipti erlent 1.2.2007 16:29
Vara Írana við afskiptum Bandarísk stjórnvöld hafa varað Írana við að aðstoða íraska uppreisnarmenn í baráttu þeirra gegn erlenda setuliðinu. Landamærum Íraks að Sýrlandi og Íran var lokað í morgun. Erlent 1.2.2007 13:05
Capacent kaupir Epinion Capacent í Danmörku hefur gengið frá kaupum á danska fyrirtækinu Epinion, einu stærsta fyrirtæki Danmerkur á sviði markaðsrannsókna. Epinion mun fyrst um sinn starfa áfram undir eigin nafni, en gert er ráð fyrir að starfsemin verði flutt í húsnæði Capacent í Hellerup á vormánuðum. Viðskipti innlent 1.2.2007 12:28
Dell snýr aftur til Dell Gengi hlutabréfa í bandaríska tölvurisanum Dell hefur hækkað um 5 prósent á hlutabréfamörkuðum vestanhafs í kjölfar frétta þess efnis að Michael Dell, stofnandi fyrirtækisins, hygðist setjast í forstjórastólinn á nýjan leik. Dell stofnaði fyrirtækið á háskólaárum sínum árið 1984 og var forstjóri fyrirtækisins til 2004 þegar hann gerðist stjórnarformaður. Viðskipti erlent 1.2.2007 11:27
Met slegið í erlendum verðbréfakaupum Árið 2006 var metár í kaupum á erlendum verðbréfum. Þetta kemur fram í gögnum frá Seðlabankanum og segir frá í Morgunkorni Glitnis. Á árinu voru erlend verðbréf keypt fyrir um 146 milljarða króna. Fyrra met féll árið 2005 þegar kaupin námu 123,5 milljörðum króna. Viðskipti innlent 1.2.2007 10:48
Metár hjá Shell í fyrra Olíurísinn Shell skilaði 25,36 milljarða bandaríkjadala hagnaði á síðasta ári. Þetta jafngildir 1.738 milljörðum íslenskra króna sem er methagnaður í sögu olíufélagsins. Afkoman svarar til þess að Shell hafi hagnast um 201 milljón krónur á hverri klukkustund í fyrra. Viðskipti erlent 1.2.2007 10:46
Metár hjá OMX-samstæðunni Norræna kauphallarsamstæðan OMX skilaði 911 milljónum sænskra króna í hagnað á síðasta ári. Þetta jafngildir rúmum 8,9 milljörðum íslenskra króna. Tilsamanburðar nam hagnaðurinn árið 2005 543 milljónum sænskra króna, eða rúmum 5,3 milljörðum íslenskra króna. Forstjóri samstæðunnar segir síðasta ár hafa verið að mörgu leyti metár. Samstæðan keypti meðal annars Kauphöll Íslands í fyrra. Viðskipti erlent 1.2.2007 10:16
Svifryksmengun í Reykjaneshöll óviðunandi Svifryksmengun í íþróttahöll Reykjanesbæjar er langt yfir heilsuverndarmörkum samkvæmt niðurstöðum mælinga Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Þetta kemur fram í Víkurfréttum í dag en þar segir einnig að heilbrigðisyfirvöld hafi ítrekað veitt bæjaryfirvöldum frest til að skila úrbótaáætlun. Síðasti fresturinn rann út í gær en ljóst er að skipta þarf um gervigras. Innlent 1.2.2007 09:55
Engisprettufaraldur í Mexíkó Í héruðunum Tabasco og Campenche í Mexíkó geisar nú engisprettufaraldur en gríðarstórir hópar engisprettna hafa undanfarna daga sett uppskeru, búfénað og fólk úr skorðum í héruðunum. Þúsundir hektara af ræktarlandi eru í hættu vegna faraldursins. Á síðasta ári skemmdust hundruð hektara í svipuðum faraldri en umhverfissérfræðingar segja skordýrin koma til svæðisins til að fjölga sér. Erlent 1.2.2007 07:17
Komst upp úr djúpum pytti Ungri konu tókst með miklu harðfylgi að komast út úr bíl sínum og ofan úr djúpum pytti, sem bíllinn hafði hafnað ofan í, við Arnarnesveg á ellefta tímanum í gærkvöldi. Talsvert vatn var í pyttinum, sem bíllinn fór ofan í, og verður reynt að ná honum upp í birtingu. Innlent 1.2.2007 07:24
Lýst eftir 16 ára stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 16 ára stúlku, Sigríði Hugrúnu Sigurðardóttur. Ekkert er vitað um ferðir hennar síðan á laugardag. Þá er ekki vitað hvaða fatnaði Sigríður klæðist. Lögregla biður þá, sem kynnu að vita eitthvað um ferðir hennar, að láta vita. Innlent 1.2.2007 07:09
Ríkisstjórn fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins í 4 ár Ríkisstjórninni var fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins vorið 2003. Síðan þá hefur stjórnin veitt Byrginu á annað hundrað milljónir króna. Fjölmargar viðvörunarbjöllur hafa klingt á síðustu fjórum árum án þess að við þeim hafi verið brugðist. Málið er klúður frá upphafi til enda, segir Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingar. Innlent 31.1.2007 17:57
Tilnefningar Hagþenkis kynntar Á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í ReykjavíkurAkademíunni var verið að kynna lista 10 framúrskarandi fræðirita sem til greina koma við veitingu Viðurkenningar Hagþenkis árið 2006. Hagþenkir eru félag höfunda fræðirita og kennslugagna og viðurkenningarnar eru: Innlent 31.1.2007 16:54
Bryndís Schram og Sigur Rós stöðva framkvæmdir í Mosó Framkvæmdir við tengibraut um Álafosskvos í Mosfellsbæ voru stöðvaðar í dag í kjölfar mótmæla íbúa á svæðinu. Meðal þeirra sem tóku þátt í mótmælunum var Bryndís Shcram fjölmiðlakona sem tók sig til og settist fyrir framan vinnuvélar og stöðvaði þannig vinnu þeirra. Innlent 31.1.2007 15:57
Mengun verður langt undir mörkum Verði af stækkun álvers Alcan í Straumsvík verða loftgæði með tilliti til heilsu fólks og mengunar gróðurs og jarðvegs undir öllum mörkum sem sett eru innan sem utan lóðamarka álversins. Þetta kom fram á fundi Samtaka Atvinnulífsins um atvinnulíf og umhverfi sem fram fór í morgun. Innlent 31.1.2007 15:51