Fréttir
237 238 239 240 241 242 243 244 245 … 334 ›
Kraftlyftingamaður handtekinn vegna sterasmygls Frammámaður innan Kraftlyftingasambandsins var handtekinn í gær vegna innflutnings á þrjátíu þúsund skömmtum af sterum. Á aðalfundi sambandsins í gærkvöld hætti hann í félaginu. Fíkniefnalögreglan hefur aldrei áður lagt hald á jafn mikið magn af sterum en innflutningur þeirra varðar ekki við fíkniefnalöggjöf heldur lyfjalög. Innlent 3.2.2007 18:47
Alþjóðleg umhverfislögregla Jacques Chirac, Frakklandsforseti, skorar á þjóðir heims að setja umhverfismál í forgang á alþjóðavettvangi. Fjörutíu og sex ríki styðja tillögu Chiracs um nýja umhverfisstofnun sem gæti jafnvel knúið ríki til að framfylgja alþjóðasáttmálum um loftslagsmál. Erlent 3.2.2007 18:41
Forseti skuldar ekki Alþingi skýringar Forsetinn skuldar Alþingi engar skýringar vegna setu sinnar í Þróunarráði Indlands að mati Þorsteins Pálssonar, ritstjóra Fréttablaðsins. Segir hann að þau indversku stórfyrirtæki sem annist rekstur Þróunarráðs Indlands fylgi öll metnaðarfullri stefnu í umhverfismálum og standast þau fyllilega samanburð við stefnu Alcoa í Reyðarfirði Innlent 3.2.2007 12:10
Rottweilerinn sér um lömbin Þó svo að rottweiler hundar hafi á sér slæmt orðspor er einn þeirra að sýna fram á að þeir séu ekki svo slæmir. Hann hefur nefnilega tekið að sér að ala upp tvö lömb. Erlent 2.2.2007 23:27
Sérsveitir indíána elta uppi eiturlyfjasala Sérsveit bandarískra indíána hefur verið valin til þess að vakta landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Índíánarnir nota til þess tækni sem forfeður þeirra fullkomnuðu og foreldrar þeirra kenndu þeim síðan. Þeir eiga að rekja spor í eyðimerkurlandslaginu við landamæri ríkjanna tveggja til þess að hafa uppi á eiturlyfjasölum og smyglurum. Erlent 2.2.2007 23:07
Hamas fordæma friðarumleitarnir fjórveldanna Palestínska heimastjórnin, sem lýtur forystu Hamas samtakanna, fordæmdi í kvöld aðilana fjóra, eða fjórveldin, sem eru að reyna að miðla málum á svæðinu um þessar mundir. Það eru Bandaríkin, Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar og Rússland. Palestínumenn sögðu að Bandaríkin stjórnuðu þar öllu og að stefnan væri að refsa Palestínu. Erlent 2.2.2007 22:34
K-Fed boðið að vinna á Taco Bell Hjónaband hans endaði með skilnaði, enginn keypti plötuna hans og nú leikur hann sjálfan sig í sjónvarpsauglýsingum að vinna á hamborgarastað. Til þess að taka af allan vafa um hvort frægðarsól Kevin Federline sé að hníga til viðar bauð skyndibitakeðjan Taco Bell honum að vinna í klukkutíma á einum veitingastað þeirra. Erlent 2.2.2007 22:14
Viacom hótar YouTube Viacom Inc. krafðist þess í dag að vefsíðan YouTube fjarlægði fleiri en 100.000 myndbönd af vefþjónum sínum eftir að viðræður um dreifingu á efninu mistókust. Viacom á meðal annars í MTV og BET en samkvæmt tölum óháðs matmanns hefur verið horft á myndbönd með efni frá fyrirtækjum í eigu Viacom oftar en þúsund milljón sinnum. Erlent 2.2.2007 21:52
Öllum leikjum helgarinnar á Ítalíu frestað Ítalska knattspyrnusambandið skýrði frá því í kvöld að það hefði ákveðið að fresta öllum leikjum helgarinn í ítalska boltanum. Ástæðan er að lögreglumaður var myrtur í átökum milli áhangenda tveggja knattspyrnuliða í kvöld. Átökin áttu sér stað í leik Catania og Palermo en þau leika bæði í Serie A sem er efsta deild ítölsku deildakeppninnar í fótbolta. Erlent 2.2.2007 21:40
Ætlaði að selja leynilegar upplýsingar Kóka Kóla Bandarískur dómstóll dæmdi í dag fyrrum háttsettan starfskraft innan Kóka Kóla fyrirtækisins sekan fyrir að hafa ætlað að stela leyndarmálum frá Kóka Kóla og selja þau síðan Pepsí. Joya Williams, fyrrum aðstoðarkona yfirmanns alþjóðlegu deildar Kóka Kóla, gæti fengið tíu ára fangelsisdóm fyrir vikið. Hún sýndi engar tilfinningar þegar dómurinn var kveðinn upp. Erlent 2.2.2007 21:29
Bresk börn að læra um gróðurhúsaáhrif Börnin munu berjast í fremstu víglínu í baráttunni við gróðurhúsaáhrifin samkvæmt áætlunum sem bresk stjórnvöld ætla að birta á mánudaginn kemur. Hún inniheldur breytingar á námsskrá grunnskólabarna á aldrinum 11 til 14 ára og á að miða að því að mennta þau um gróðurhúsaáhrif og ábyrgð þeirra sem neytenda í því samhengi. Erlent 2.2.2007 20:53
Líkamsræktarstöð fyrir nakið fólk Hollendingar munu brátt geta lyft lóðum án íþyngjandi leikfimisklæðnaðar en í bænum Heteren í Hollandi mun líkamsræktarstöð fyrir nakið fólk opna á sunnudaginn kemur. Erlent 2.2.2007 20:22
Syndir upp Amasón-fljótið Slóveni á sextugsaldri ætlar að reyna óvanalegt uppátæki. Hann ætlar fyrstur manna að synda upp eftir öllu Amasón-fljótinu, 5400 kílómetra. Maðurinn, sem heitir Martin Strel, hóf ferðina í fyrradag og ætlar að vera kominn á leiðarenda eftir 70 daga. Erlent 2.2.2007 20:01
Bush mun biðja um 100 milljarða George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, mun biðja bandaríska þingið um 100 milljarða dollara aukafjárveitingu til þess að sjá um kostnað vegna veru hersins í Afganistan og Írak. Talsmenn ríkisstjórnar Bush sögðu síðar í dag að á næsta ári yrði upphæðin enn hærri, eða um 141 milljarður dollara. Erlent 2.2.2007 19:57
14 létu lífið í aftakaveðri í Flórída Fjórtán manns létu lífið og tugir slösuðust í aftakaveðri sem gekk yfir miðbik Flórída í Bandaríkjunum í dag. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í fjórum sýslum í ríkinu, en hundruð heimila gjöreyðilögðust í þrumuveðri og skýstrókum. Erlent 2.2.2007 19:44
Sextán milljóna króna skuld ógreidd Byrgið fékk aukafjárveitingu árið 2002 til að greiða upp í tæplega sextán milljóna króna skuld við Hitaveitu Suðurnesja. Hitaveitan sá ekki krónu af þeim peningum. Innlent 2.2.2007 19:27
Spennandi að skoða ókeypis strætó Stjórnarformaður Strætó telur spennandi að prófa að hafa ókeypis í almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu en telur óvíst að notkunin aukist við það. Álitlegra sé að fjölga sérakreinum fyrir strætó til að gera kostinn vænni í umferðarþunganum. Innlent 2.2.2007 19:25
Svört framtíðarsýn Sjávarborð hækkar um allt að 58 sentímetra og hitastig um 6,4 gráður, fari sem horfir. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðlegrar sérfræðinefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem birt var í dag. Erlent 2.2.2007 19:17
Misskilja eðli Þróunarráðs Indlands Loftslagsskýrslan, sem boðuð var í dag, boðar ógnvænleg tíðindi að mati Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Hann segir að samkvæmt henni geta áhrifin orðið verri en af báðum heimstyrjöldum síðustu aldar. Hann telur að gagnrýni á setu hans í Þróunarráði Indlands sé að hluta byggð á misskilningi og skorti á þekkingu á eðli ráðsins. Innlent 2.2.2007 18:56
Loforð um fjölgun hjúkrunarrýma svikin Hraustir makar veikra eldri borgara ættu að geta keypt þjónustu á hjúkrunarheimili. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingar. Hún segir loforð um fjölgun hjúkrunarrýma ekki hafa verið efnd. Innlent 2.2.2007 18:23
240 íslenskar þjónustuíbúðir á Spáni Tvöhundruð og fjörutíu þjónustuíbúðir fyrir íslenska eldri borgara verða byggðar á Spáni á næstunni. Ellilífeyririnn margfaldast á Spáni, segir forstjóri Gloria Casa. Innlent 2.2.2007 18:31
Sauðfjárbóndi fær yfir níu milljónir frá ríkinu Tugir sauðfjárbænda fá yfir fjórar milljónir króna úr ríkissjóði á hverju ári, en sá sem mest hefur, fær árlega rúmar níu milljónir króna í sinn hlut. Bróðurpartur þeirra fær þó miklu minna en sex af hverjum tíu sauðfjárbænum nær ekki milljón í opinbera styrki. Innlent 2.2.2007 18:24
Vann 550 milljónir í spilakassa John Bromley, 71 árs, setti 100 dollara í spilakassa í spilavíti í Nevada í Bandaríkjunum og áttaði sig ekki á því að hann hafði unnið tæpar átta milljónir dollara, eða tæplega 550 milljónir íslenskra króna, fyrr en sá sem sat við hlið hans sagði honum frá því. Erlent 2.2.2007 18:19
Átök innan Framtíðarlandsins Átök eru innan stjórnar Framtíðarlandsins um hvort ráðist verður í framboð á vegum félagsins fyrir alþingiskosningar í vor. Félagsmenn koma væntanlega saman á fundi á þriðjudagskvöldið til að ræða framboðsmálin. Á þriðja þúsund félagar eru í Framtíðarlandinu. Innlent 2.2.2007 18:06
Framkvæmdastjóri Strætó bs. lætur af störfum Ásgeir Eiríksson hefur ákveðið í samráði við stjórn byggðasamlagsins að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Strætó bs. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Strætó bs. sendi frá sér í dag. Innlent 2.2.2007 18:03
Sienna svaf hjá Hayden Sögusagnir um að Sienna Miller og Hayden Christensen hafi notið ásta fyrir framan myndavélarnar í myndinni „Factory Girl“ virðast vera sannar. Dagblaðið New York Daily News sagði frá þessu á vefsíðu sinni í dag. Lífið 2.2.2007 17:43
Olíufyrirtæki reyna að sverta loftslagsskýrslu Samtök sem eru styrkt af bandaríska olíufyrirtækinu Exxon Mobil buðu vísindamönnum og hagfræðingum háar greiðslur til þess að gagnrýna skýrslu sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna um ástandið í loftslagsmálum í heiminum. Skýrslan kom út í París í dag. Erlent 2.2.2007 17:18
Punxsutawney Phil sá ekki skuggann sinn Múrmeldýrið Punxsutawney Phil sá ekki skuggann sinn þegar það var tekið úr búri sínu í bænum Punxsutawney í Pennsylvaníu ríki í Bandaríkjunum í dag. Það táknar að vorið eigi eftir að koma snemma. Erlent 2.2.2007 16:49
Jesúbúningar til sölu Embættismenn í Vatikaninu er sagðir fullir viðbjóðs eftir að sala á Jesúbúningum hófst á ítalíu. Búningurinn kostar tæpar 12 hundruð krónur og með honum fylgir þyrnikóróna úr plasti og gerviskegg. Faðir Vittorino Gorss prestur í Vatikaninu sagði að sala búninganna væri guðlast og móðgun við milljónir kristinna manna. Verslunareigandi sem selur búningana fyrir páskaföstuna sagðist ekki sjá vandamálið. "Þetta er bara hárkolla og gerviskegg." Erlent 2.2.2007 16:23
Nýr sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar Ragnar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts hefur verið ráðinn sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar. Borgarráð samþykkti ráðninguna samhljóða á fundi í gær. Ragnar er með MA próf í stjórnun með sérstakri áherslu á mannauðsstjórnun frá Viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Hann er einnig menntaður kennari í grunn- og framhaldsskóla frá KHÍ og með BS próf í landafræði og jarðfræði frá HÍ. Innlent 2.2.2007 16:13