Fréttir
228 229 230 231 232 233 234 235 236 … 334 ›
Útilokar ekki frekari frávísun Arngrímur Ísberg dómari í Baugsmálinu útilokaði ekki frekari frávísun ákæruliða þegar Gestur Jónsson lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar krafðist útskýringa á ákæruatriði. Arngrímur taldi skýrleika lykilinn að því að fækka vitnum á vitnalistanum sem telur rúmlega eitt hundrað manns. Innlent 13.2.2007 11:40
Jóni Gerald vísað úr dómssal Jóni Gerald Sullenberger var vísað úr dómssal í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar Gestur Jónsson verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fór þess á leit við dómarann. Lögmaður Jóns Geralds, Brynjar Níelsson, mótmælti því, en Arngrímur Ísberg dómari sagði: “Það verður ekki deilt við dómarann, Jón Gerald verður að víkja úr sal.” Innlent 13.2.2007 09:43
Metverðbólga í Zimbabve Verðbólgan í Afríkuríkinu Zimbabve rauk í methæðir í síðasta mánuði þegar hún mældist 1.593,6 stig á ársgrundvelli. Sé litið til hækkunar á milli mánaða jókst verðbólgan um 45,4 prósent frá því í desember. Að sögn hagstofu Zimbabve munar mestu um hækkun á rafmagns-, gas- og öðru orkuverði á milli mánaða. Viðskipti erlent 13.2.2007 00:57
Tölva sem byggir á skammtafræði afhjúpuð á morgun Kanadíska fyrirtækið D-Wave hefur greint frá því að á morgun muni það sýna fyrstu tölvuna sem byggir á skammtafræði. Tölvur í dag byggjast upp á því að í örgjörvum þeirra eru send merki sem annað hvort tákna 1 eða 0. Tölvur sem byggja á lögmálum skammtafræði senda hins vegar merki sem geta verið 1 og 0 á sama tíma. Það gerir tölvunni kleift að sjá um allt að 64 þúsund útreikninga í einu sem er margfalt meira en tölvur gera í dag. Erlent 12.2.2007 23:44
Sprenging við heimili lögreglumanns upplýst Lögreglan á Blönduósi hefur upplýst um tildrög sprengingar sem varð við heimili lögreglumanns á Skagaströnd í fyrrinótt. Í dag voru handteknir 2 menn á tvítugsaldri vegna gruns um aðild að sprengingunni. Við yfirheyrslur viðurkenndu þeir verknaðinn. Innlent 12.2.2007 23:04
FBI týndi 160 fartölvum 160 fartölvur, þar af tíu sem innihéldu leynileg gögn, týndust í meðförum starfsmanna Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) frá febrúar 2002 til september 2005. Ein af tölvunum innihélt upplýsingar sem gæti hjálpað fólki að bera kennsl á leyniþjónustumenn. Á sama tíma týndust 160 vopn. FBI gat ennfremur ekki sagt með vissu hvort að 51 af þeim fartölvum sem týndust hefðu innihaldið leynileg gögn. Erlent 12.2.2007 22:58
Tekinn fyrir of hraðan akstur í reynsluakstri Einn bílstjóri var tekinn fyrir of hraðan akstur við gatnamót Vesturlandsvegs og Suðurlandsvegs klukkan sex í kvöld. Hann var að reynsluaka nýjum Volvo C30 og svo virðist sem hann hafi gleymt sér aðeins. Lögregla mældi hann á 135 kílómetra hraða á klukkustund en hámarkshraði þar sem hann var tekinn var 80 kílómetra hraði. Ökumaðurinn má búast við hárri sekt og hugsanlegri tímabundinni sviptingu ökuleyfis. Innlent 12.2.2007 22:37
Ban Ki-moon reynir að stilla til friðar Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hringdi í dag í leiðtoga Ísraela, Palestínu og Sádi-Arabíu til þess að hvetja alla aðila að sættast á þjóðstjórn Palestínu og viðurkenna Ísrael. Ban lýsti líka áhyggjum sínum yfir þeim atburðum sem nú eiga sér stað við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem en ísraelsk yfirvöld eru nú að vinna að endurbótum á svæðinu. Erlent 12.2.2007 22:13
Grunur um að al-Kaída hafi verið að verki Tvær sprengingar urðu í dag við herstöð Bandaríkjamanna rétt fyrir utan Tókíó í Japan. Enginn meiddist í þeim en þeir sem rannsaka málið líta svo á að um hugsanlega hryðjuverkaárás hafi verið um að ræða. Erlent 12.2.2007 21:51
Af hverju er himinninn blár? Margir velta fyrir sér spurningun eins og þessari og svör við þeim er víða að finna. Nú fást þau líka á visir.is, sem hóf í dag samstarf við Vísindavef Háskóla Íslands um birtingu á völdum svörum við margvíslegum spurningum á sviði vísinda og fræða. Innlent 12.2.2007 21:13
Haniyeh biður alþjóðasamfélagið um stuðning Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, sagði í dag að Bandaríkin og önnur lönd sem eru að reyna að miðla málum í Mið-Austurlöndum ættu að hefja aðstoð við Palestínu að nýju. Hann sagði að alþjóðasamfélagið ætti að styðja við bakið á hinni nýmynduðu þjóðstjórn og virða þannig vilja palestínsku þjóðarinnar. Erlent 12.2.2007 20:53
Stúlkan sem lýst var eftir fundin Kolbrún Sara Runólfsdóttir, stúlkan sem lögregla lét lýsa eftir fyrr í kvöld, er komin fram heil á höldnu. Hún fannst eftir að eftirtektarsamur vegfarandi sem hafði fylgst með fjölmiðlum sá hana. Hún hafði ekki sést í tvo daga. Lögregla vill þakka öllum sem að komu fyrir skjót og góð viðbrögð. Innlent 12.2.2007 20:39
Herlögum lýst yfir í Gíneu Forseti Gíneu, Lansana Conte, lýsti yfir herlögum í landinu í dag til þess að reyna að binda endi á þá ofbeldisöldu sem hefur heltekið landið undanfarna daga. Stéttarfélög hafa staðið fyrir mótmælum gegn Conte í tæpan mánuð. Erlent 12.2.2007 20:35
Sexveldin ná bráðabirgðasamningum Sexveldin svokölluðu komust að bráðabirgðasamkomulagi nú í kvöld. Þeim tókst að leysa helstu ágreiningsefni samningsins og lítur nú út fyrir að Norður-Kórea fari brátt að hætta við kjarnorkuáætlun sína. Norður-Kórea og Bandaríkin höfðu deilt um hversu mikla orkuaðstoð Norður-Kórea fengi í stað þess að hætta við kjarnorkuáætlun sína. Erlent 12.2.2007 20:15
Sýndi mikinn kjark og frumkvæði Skyndihjálparmaður ársins 2006 sýndi mikinn kjark og frumkvæði þegar hann bjargaði lífi móður sinnar í fyrrasumar. Almennt er þó mælt með að börn leiti fyrst aðstoðar og aðhafist svo eftir að neyð ber að höndum. Innlent 12.2.2007 19:48
Rifist um ábyrgð á alþingi Eignir ríkisins að Efri brú í Grímsnesi verða líklega seldar, að sögn forsætisráðherra, en meðferðarstarf þar verður lagt af. Skipað verður sérstakt áfallateymi til að aðstoða fyrrverandi skjólstæðinga Byrgisins og geðdeild Landspítalans stendur þeim opin. Stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar rifust á alþingi í dag um hver bæri mesta ábyrgð í Byrgismálinu. Innlent 12.2.2007 19:32
Fjöldi öryrkja kominn á atvinnumarkað Fjöldi öryrkja á Norðurlandi er kominn á atvinnumarkað eftir þátttöku í tilraunaverkefni. Fyrrum óvinnufær einstaklingur þakkaði þetta nýrri nálgun sem vakið hefur athygli fyrir utan landsteinana. Innlent 12.2.2007 19:37
Svartbjörn fastur upp í tré Það er ekki oft sem nærri 200 kílóa birnir festast upp í trjám, en það gerðist í New Jersey í Bandaríkjunum í gær. Lögreglu brá heldur en ekki í brún þegar tilkynning barst um að svartbjörn sæti fastur í rúmlega 15 metra hæð. Fjölmargir íbúar söfnuðust saman undir trénu til að fylgjast með. Erlent 12.2.2007 17:16
Fórnarlömb forstöðumanns Byrgisins fá enga hjálp Aðstandendur stúlknanna úr Byrginu hrópa á hjálp. Móðir einnar þeirra segir tvær í bráðri sjálfsvígshættu en þrjár munu hafa lent í neyslu á nýjan leik. Í gær var einni stúlkunni neitað um áfallahjálp á Landspítalanum með þeim rökum að fórnarlömb forstöðumanns Byrgisins fengju hjálp annars staðar. Sú hjálp hefur þó enn ekki borist. Innlent 12.2.2007 19:28
Írak: Mikið mannfall í sprengjuárásum Minnst 80 týndu lífi og 150 særðust í þremur sprengjuárásum í miðborg Bagdad í Írak í dag. Árásirnar voru gerðar um leið og Írakar minntust þess að í dag er ár frá árásum á guðshús sjía-múslima í hinni helgu borg Samarra. Árásin þá varð kveikjan að blóðugum átökum trúarbrota í landinu sem engan enda virðast ætla að taka og hafa kostað þúsundir mannslífa í hverjum mánuði. Erlent 12.2.2007 17:11
Lögreglan lýsir eftir stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 16 ára gamalli stúlku, Kolbrúnu Söru Runólfsdóttur. Kolbrún er 168 sentímetrar að hæð, dökkhærð, stuttklippt og þéttvaxin. Kolbrún fór að heiman síðla dags, laugardaginn 10. febrúar og hefur ekkert til hennar spurst eftir þann tíma. Þeir sem gætu gefið upplýsingar um ferðir Kolbrúnar Söru eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1100. Innlent 12.2.2007 19:10
Kosningalykt af samgönguáætlun Eitthundrað og fimm milljörðum verður varið til vegamála á næstu fjórum árum, þar af verður tæpum tólf milljörðum ráðstafað til tveggja jarðganga, Óshlíðarganga og Héðinsfjarðarganga. Til samanburðar var varið áttatíu milljörðum til vegamála á árunum 2003 til 2006. Innlent 12.2.2007 19:00
Þýskur hryðjuverkamaður fær reynslulausn Þýskur dómstóll hefur ákveðið að láta Birgitte Mohnhaupt, einn forsprakka Rauðu herdeilda Baader-Meinhof, lausa úr fangelsi þar sem hún hefur mátt dúsa í nær aldarfjórðung. Ákvörðunin hefur þegar vakið deilur enda var Monhaupt á sínum tíma lýst sem hættulegustu konu Þýskalands. Erlent 12.2.2007 17:01
Samið við áhöfn Castor Star Samningar hafa tekist á milli áhafnar og eigenda flutningaskipsins Castor Star, sem hefur legið við bryggju á Grundartanga síðan á miðvikudaginn. Skipverjar fá laun sem þeir eiga inni og nýja samninga sem tvöfalda kjör þeirra. Erlent 12.2.2007 17:52
Þjóðarsátt um nýtingu og verndun náttúru Þjóðarsátt, til framtíðar um nýtingu og verndun auðlinda í jörðu, verður tilbúin eftir þrjú ár, segja ráðherrar iðnaðar- og umhverfis. Blekking, segir formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, sem telur að stjórnvöld séu að slá ryki í augu almennings nú rétt fyrir kosningar. Innlent 12.2.2007 18:25
Sakaður um ólöglega lántöku Sérstakur ríkissaksóknari reynir að sanna, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hafi m.a. staðið að ólöglegum lánveitingum frá Baugi til Gaums á tímabilinu 1999 - 2002, þegar Baugur var almenningshlutafélag. Þriggja daga yfirheyrslur hófust yfir Jóni Ásgeiri í héraðsdómi í morgun. Innlent 12.2.2007 17:57
Páfinn gagnrýnir nútímavæðingu samfélagsins Páfinn hefur gagnrýndi í dag lög sem hann sagði ógna fjölskyldunni og samfélaginu. Þar átti hann við lög um fóstureyðingar og líknarmorð. „Engin mannleg lög geta komið í stað þeirra sem skaparinn skrifaði án þess að samfélagið verði valt á fótum sínum.“ sagði Benedikt páfi á ráðstefnu um náttúrulög, eða lög guðs. Kaþólska kirkjan telur þau vera bindandi. Erlent 12.2.2007 18:18
Kosningar í Túrkmenistan fóru vel fram Kosningar fóru fram í Túrkmenistan í gær og virðist sem þær hafi farið vel fram. Þó vantaði mikið upp á, samkvæmt vestrænum stöðlum, til þess að þær gætu talist frjálsar. Búist er við því að Kurbanguly Berdymukhamedov beri sigur úr býtum. Hann hefur verið forseti til bráðabirgða frá láti Saparmurat Niyazov, fyrrum einræðisherra landsins. Erlent 12.2.2007 17:55
Flóðin ekki haft áhrif á starfsemi ÞSSÍ Um eitt hundrað manns hafa farist í flóðum í Mósambík á síðustu dögum en hermenn og hjálparstarfsmenn á þyrlum og bátum hafa flutt á brott um sextíu þúsund íbúa. Flóðin hafa enn sem komið er ekki haft nein áhrif á verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Mósambík, að sögn Jóhanns Pálssonar umdæmisstjóra ÞSSÍ í Mapútó. Erlent 12.2.2007 17:36
Sól á Suðurnesjum funda vegna Helguvíkur Samtökin Sól á Suðurnesjum ætla annað kvöld að efna til opins fundar í Saltfisksetrinu í Grindavík til þess að ræða um fyrirhugað álver í Helguvík og tengdar framkvæmdir. Samtökin vilja meina að framkvæmdir vegna álversins muni setja mark sitt á dýrmætar náttúruperlur Grindvíkinga. Innlent 12.2.2007 17:27