Telur ástæðu til að virkja siðanefnd Alþingis vegna Klaustursupptakanna Klaustursupptökurnar gefa fullt tilefni til þess að virkja siðanefnd Alþingis í fyrsta sinn að mati prófessors sem leiddi starfshóp um leiðir til að auka traust á stjórnmálum. Hann telur nokkuð ljóst að siðareglur hafi verið brotnar. 1.12.2018 20:22
Beinin brotna við lítið álag Hin sex mánaða gamla Sandra Lind er einungis þriðji Íslendingurinn sem hefur greinst með sjaldgæfan beinsjúkdóm sem veldur því að beinin stækka ekki eðlilega og brotna gjarnan. Hún þarf að fara í beinmergsskipti í Svíþjóð á næstunni og við tekur margra ára endurhæfing. 26.11.2018 19:30
Sættist ekki eftir uppspuna með klækjum Forstjóri Samherja telur að það hafi aldrei hvarflað að seðlabankastjóra að leita sátta við fyrirtækið enda hafi sakirnar verið búnar til með klækjum. 26.11.2018 12:22
Hvorki sú fyrsta né síðasta á salerninu Níutíu og tveggja ára kona sem varði nóttinni í sjúkrarúmi á salerni Landspítalans er hvorki fyrsti né verður hún síðasti sjúklingurinn sem þarf að liggja þar inni, að sögn framkvæmdastjóra flæðissviðs spítalans. Hún segir skort á sjúkrarýmum geta ógnað öryggi sjúklinga. 22.11.2018 19:30
Dæmi um nauðungarhjónabönd á Íslandi Nauðungarhjónabönd, félagsleg einangrun og ofbeldi eru birtingarmyndir heiðurstengdra átaka á Íslandi. Félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg leggur til að Íslendingar horfi til nágrannalanda og komi sér upp sérhæfðu teymi til þess að taka á þessum viðkvæmu málum. 21.11.2018 20:00
Þeir sem eru í vanskilum með smálán íhugi rétt sinn Formaður starfshóps sem er að skoða umhverfi smálánafyrirtækja á Íslandi telur smálán hugsanlega vera ólögleg. Þeir sem hafi lent í vanskilum með smálán ættu að íhuga að kanna rétt sinn 16.11.2018 19:30
Yfir helmingur í skuldavanda vegna skyndilána Ung kona sem sótti nýverið um greiðsluaðlögun safnaði 2,7 milljóna króna skuldum vegna skyndilána á einungis fimm mánuðum. Umboðsmaður skuldara segir þetta vera sorglega algengt og mikið áhyggjuefni en meirihluti þeirra sem hafa leitað til embættisins á árinu hafa gert það vegna skyndilána. 14.11.2018 19:30
Aukin hætta á gróðureldum á Íslandi Búast má við tíðari skógareldum í Kaliforníu vegna loftlagsbreytinga og veðurfræðingur telur það geta haft áhrif á búsetu á svæðinu. Áhættan er einnig til staðar á Íslandi þar sem hlýnun síðustu áratuga hefur fjölgað grænum svæðum. 13.11.2018 20:30
Skilyrði um skírlífi umhugsunarvert Heilbrigðisráðherra segir mögulegt skilyrði um að samkynhneigðir karlmenn þurfi að hafa verið skírlífir í sex mánuði fyrir blóðgjöf vera umhugunarvert og nauðsynlegt að skoða með tilliti til mannréttindasjónarmiða. Breytingar á reglum um blóðgjöf eru í umsagnarferli hjá ráðuneytinu. 6.11.2018 12:30
Líklega sjór í vélarúminu "Því miður hefur veður farið versnandi og þá er erfiðara að vinna í framhaldinu. Eftir því sem lengri tími líður eru meiri líkur á að farmur eða eldsneyti fari að leka úr því," segir Otti Rafn Sigmarsson, hjá björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík og björgunarstjóri í aðgerðunum í Helguvík. 3.11.2018 09:10