Slökkti á Starlink fyrir árás Úkraínumanna Elon Musk, auðugasti maður heims, skipaði starfsmönnum sínum að slökkva á netþjónustu Starlink undan ströndum Krímskaga í fyrra. Það gerði hann til að stöðva leyniárás Úkraínumanna á rússneska flotann, þar sem notast var við dróna sem stýrt var með nettengingu í gegnum Starlink. 7.9.2023 14:56
Fundu vel varðveitt rómversk sverð í helli Fornleifafræðinar í Ísrael tilkynntu í gær að fjögur 1.900 ára gömul rómversk sverð hefðu fundist í helli nærri Dauðahafinu. Sverðin þykja merkilega vel varðveitt eftir veruna í hellinum en auk þeirra fannst spjótsoddur, sem Rómverjar kölluðu pilum. 7.9.2023 11:21
Framkvæmdastjóri VG fer til Landverndar Björg Eva Erlendsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Landverndar. Hún starfar nú sem framkvæmdastjóri Vinstri grænna en hefur störf hjá Landvernd í október. 6.9.2023 15:30
Sextán borgarar féllu í árás Rússa Að minnsta kosti sextán borgarar létu lífið og 31 særðist þegar eldflaug lenti á markaði í borginni Kostiantynivka í austurhluta Úkraínu í dag. Ráðamenn í Úkraínu segja Rússa hafa skotið eldflauginni en sprengingin náðist á myndband. 6.9.2023 15:13
Segir að Kim muni gjalda fyrir vopnasendingar Jake Sullivan, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og ríkið allt muni gjalda fyrir mögulega vopnasendingar til Rússlands. Hann segir að sendi Kóreumenn vopn til Rússlands sem notuð yrði í Úkraínu, kæmi það niður á Norður-Kóreu á alþjóðasviðinu. 6.9.2023 14:27
Notkun klasasprengja nær nýjum hæðum Úkraína var í fyrra það ríki þar sem flestir dóu vegna notkunar klasasprengja. Það var í fyrsta sinn í rúman áratug sem Sýrland var ekki efst á þessum lista en talið er að rúmlega þrjú hundruð manns hafi dáið vegna klasasprengja í Úkraínu í fyrra og rúmlega sex hundruð hafi særst. 6.9.2023 12:13
Flugmaður dó eftir brotlendingu í kynjaveislu Flugmaður lét lífið í Mexíkó á sunnudaginn þegar annar vængur flugvéla hans rifnaði af. Þá var flugmaðurinn að taka þátt í kynjaveislu og notaði hann flugvélina til að dreifa bleikum reyk yfir veislugesti, til marks um það að parið sem hélt veisluna var að eignast stúlkubarn. 6.9.2023 10:43
Rýnt í gagnsóknina: Enginn endir í sjónmáli Þrír mánuðir eru liðnir frá upphafi gagnsóknar Úkraínumanna í suðurhluta Úkraínu, auk þess sem þeir hafa sótt fram í austri, nærri Bakhmut. Gagnsóknin hefur gengið hægar en Úkraínumenn og bakhjarlar þeirra vonuðust til og er það að mestu rakið til umfangsmikilla varna Rússa. 6.9.2023 08:01
Keppa við Evrópubúa í iðn- og verkgreinum Ellefu Íslendingar taka nú þátt í Euroskills, sem er Evrópumót iðn-, verk- og tæknigreina sem fer fram í Gdansk í Póllandi þessa dagana. Mótið er haldið annað hvert ár en aldrei hafa fleiri Íslendingar tekið þátt. 5.9.2023 16:03
Fengu loks leyfi til að fara úr eyðimörkinni Hátíðargestir Burning Man í eyðimörkinni í Nevada í Bandaríkjunum fengu í gær loksins leyfi til að fara frá hátíðarsvæðinu eftir að hafa setið þar fastir vegna rigninga. Eyðimörkin breyttist í leðju vegna rigningarinnar og var ómögulegt að keyra venjulegum bílum af hátíðarsvæðinu. 5.9.2023 11:10