Flóð á eftir eldum í Grikklandi Eftir langvarandi þurrka og umfangsmikla gróður- og skógarelda er rigningin nú að leika Grikki grátt. Minnst einn er látinn vegna mikilla rigninga og hefur flætt víða um vestanvert og mitt Grikkland. Þá er eins manns saknað en hann mun hafa orðið fyrir skyndiflóði. 5.9.2023 10:10
GameTíví: Strákarnir snúa aftur og lofa sigrum Strákarnir í GameTíví snúa aftur úr sumarfrí í kvöld. Margt hefur gerst í Warzone frá því strákarnir fóru í frí en þeir heita þremur sigrum í kvöld. 4.9.2023 19:30
Samkeppni, útlendingamál, Borgarlína og hvalveiðar Fyrsti gestur Kristján Kristjánssonar á Sprengisandi í dag verður Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Hann ætlar að rökstyðja ákvörðun eftirlitsins að sekta Samskip um 4,3 milljarða króna vegna brota á samkeppnislögum. 3.9.2023 09:30
Var látinn þegar náðist til hans Gangnamaður sem slasaðist í Eyjafirði í gær var látinn þegar björgunarsveitarfólk komst að honum hátt í hlíðum Hagárdals, inn í Eyjafirði. Erfiðlega gekk að komast til mannsins og var ekki hægt að nota þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna sviptivinda. 3.9.2023 08:17
Tugir þúsunda hátíðargesta fastir í eyðimörkinni vegna rigningar Gestum Burning man hátíðarinnar í eyðimörk Nevada í Bandaríkjunum var sagt í gær að spara matvæli, vatn og eldsneyti þar sem þúsundir sitja fastir á hátíðarsvæðinu vegna mikilla rigninga. Hátíðarsvæðið og nærliggjandi umhverfi er þakið þykkri leðju eftir rigningarnar. 3.9.2023 08:07
Fannst rænulítill við hlið rafhlaupahjóls Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um mann sem lá með skerta meðvitund við hlið rafhlaupahjóls í miðbænum. Sá var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Alls voru 82 mál skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt en í dagbók lögreglunnar segir að þar hafi mest verið um að ræða aðstoðarbeiðnir, tilkynningar um fólk í annarlegu ástandi og hávaðakvartanir. 3.9.2023 07:30
Senda Abrams og umdeild skot úr rýrðu úrani til Úkraínu Ríkisstjórn Bandaríkjanna mun í fyrsta skipti senda Úkraínumönnum umdeild skotfæri fyrir skriðdreka sem inniheldur rýrt úran. Skotin eru hönnuð til að fara í gegnum brynvörn annara skrið- og bryndreka og eru þau ætluð Abrams skriðdrekum sem einnig verða sendir til Úkraínu á næstu vikum. 2.9.2023 21:36
Hætta við að bjóða Rússum, Írönum og Hvít-Rússum Forsvarsmenn Nóbelsverðlaunanna hafa dregið boð til sendiherra Rússlands, Írans og Belarús (eða Hvíta-Rússlands) á afhendingu verðlaunanna í Stokkhólmi i ár til baka. Það er eftir að upprunaleg ákvörðun þeirra var harðlega gagnrýnd víða um heim og í Svíþjóð. 2.9.2023 13:44
Ók móti umferð og á aðra bíla Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að maður sem ók á móti umferð á Reykjanesbrautinni ók utan í tvo bíla. Engan sakaði alvarlega en maðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. 2.9.2023 11:03
Minnst einn látinn vegna Saola Fellibylurinn Saola olli töluverðum skemmdum á Hong Kong en þó minni en óttast var, þar sem hann veiktist á leið að eyjunum. Tré rifnuðu upp og brotnuðu víða og minnst einn hefur látið lífið eftir að fellibylurinn fór nærri Hong Kong og Macau í Kína. 2.9.2023 10:05