Títan var hvorki hannaður né smíðaður nógu vel Samúel Karl Ólason skrifar 16. október 2025 10:31 Brak úr Títan flutt í land á Nýfundnalandi. AP/Paul Daly Kafbáturinn Títan var hvorki hannaður né smíðaður nægilega vel. Þá voru ekki framkvæmdar nægilegar tilraunir á kafbátnum, sem fórst með fimm innanborðs nærri flaki Titanic í júní 2023.
Títan hafði orðið fyrir skemmdum nokkru áður en hann fórst og tóku forsvarsmenn fyrirtækisins OceanGate, sem gerði kafbátinn út, ekki eftir því. Stockton Ruh, forstjóri fyrirtækisins, fórst með kafbátnum, auk þeirra Hamish Harding, Paul Nargeolet og feðganna Shahzada og Suleman Dawood. Kafbáturinn féll saman á um 3.63 metra dýpi en flak Titanic er á um 3.880 metra dýpi. Stóðst ekki kröfur um styrk Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum hefur birt skýrslu um rannsókn nefndarinnar á slysinu. Þar kemur fram að hönnun og smíði kafbátsins Títans hafi ekki verið viðunandi. Í skýrslunni segir að þó nokkur frávik hafi fundist á skrokki kafbátsins og að skrokkurinn hafi ekki staðist nauðsynlegar kröfur um styrk og álagsþol. Rannsakendur segja að forsvarsmenn OceanGate hafi ekki framkvæmt nægilega ítarlegar tilraunir á Títan. Því hafi þeir ekki verið meðvitaðir um raunverulegan styrk og álagsþol kafbátsins og það hafi líklega verið mun minna en þeir töldu. Þar að auki hafi þeir ekki áttað sig á þeim skaða sem búið var að valda á kafbátnum með flutningum á honum og togi. Enn fremur segir í skýrslunni að eftirlitsbúnaður kafbátsins hafi verið gallaður og þess vegna hafi enginn áttað sig á því að hann hafi verið skemmdur þegar honum var kafað í síðasta sinn. Sjá einnig: Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Í skýrslunni er slegið á svipaða strengi og rannsakendur Strandgæslu Bandaríkjanna gerðu fyrr á árinu. Vilja breyttar reglur Rannsóknarnefndin segir einnig í skýrslunni að ef starfsmenn OceanGate hefðu fylgt reglum og viðmiðum hefði flak Títans líklega fundist fyrr, þó ómögulegt hefði verið að bjarga lífum þeirra sem voru um borð. Nefndin leggur til að mynduð verði sérfræðinganefnd til að fara yfir reglur varðandi rekstur kafbáta eins og Títans. Þeirri nefnd verði gert að finna ný öryggisviðmið og reglur og í leiðinni verði reynt að fá Alþjóðasiglingamálastofnunina til að samræma reglur um kafbáta á heimsvísu.
Bandaríkin Kanada Titanic Hafið Tengdar fréttir Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Starfsmaður fyrirtækisins sem átti kafbátinn sem fórst nærri flaki Títanik í fyrra segir að hægt hefði verið að komast hjá slysinu ef hlustað hefði verið á varnarorð hans. Ein síðustu skilaboðin sem bárust frá áhöfninn voru „allt í góðu hér“. 18. september 2024 09:29 Fjölþjóðleg rannsókn á kafbátaslysinu í fullum gangi Rannsakendur safna nú vísbendingum um um afdrif kafbátsins Títans sem fórst í Norður-Atlantshafi við flak Títanik saman á Nýfundnalandi. Fimm stofnanir frá fjórum löndum taka þátt í rannsókninni en ekki er ljóst hve langan tíma hún gæti tekið. 26. júní 2023 09:18 Áhafnar kafbátarins minnst um allan heim Mannanna fimm sem létust um borð í kafbátnum Títan hefur verið minnst um allan heim undanfarinn sólarhring. Fjölskyldur þeirra hafa birt yfirlýsingar þar sem þær lýsa mikilli sorg vegna örlaga þeirra og segja þá munu lifa áfram í minningum þeirra. 23. júní 2023 11:06 Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Sjá meira
Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Starfsmaður fyrirtækisins sem átti kafbátinn sem fórst nærri flaki Títanik í fyrra segir að hægt hefði verið að komast hjá slysinu ef hlustað hefði verið á varnarorð hans. Ein síðustu skilaboðin sem bárust frá áhöfninn voru „allt í góðu hér“. 18. september 2024 09:29
Fjölþjóðleg rannsókn á kafbátaslysinu í fullum gangi Rannsakendur safna nú vísbendingum um um afdrif kafbátsins Títans sem fórst í Norður-Atlantshafi við flak Títanik saman á Nýfundnalandi. Fimm stofnanir frá fjórum löndum taka þátt í rannsókninni en ekki er ljóst hve langan tíma hún gæti tekið. 26. júní 2023 09:18
Áhafnar kafbátarins minnst um allan heim Mannanna fimm sem létust um borð í kafbátnum Títan hefur verið minnst um allan heim undanfarinn sólarhring. Fjölskyldur þeirra hafa birt yfirlýsingar þar sem þær lýsa mikilli sorg vegna örlaga þeirra og segja þá munu lifa áfram í minningum þeirra. 23. júní 2023 11:06