Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir að einhverjar vikur geti verið í næsta eldgos á Reykjanesi. Kvika haldi áfram að safnast saman í Svartsengi en reynslan síni að sífellt meiri þrýsting þurfi til að koma af stað öðru kvikuhlaupi. 10.5.2024 20:09
Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Fjöldi leyfa til fjölskyldusameiningar hefur meira en tvöfaldast síðasta rúma áratuginn. Langflest leyfin voru vegna aðstandenda Íslendinga. Rétt rúmlega fimm prósent leyfanna frá 2013 voru vegna flóttamanna og mannúðarleyfishafa. 10.5.2024 19:04
Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Fulltrúi Íslands greiddi atkvæði með aukinni þátttöku Palestínu í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í atkvæðagreiðslu þar í dag. Tillagan var samþykkt en Bandaríkin voru eitt níu ríkja sem greiddi atkvæði gegn henni. 10.5.2024 17:53
Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Tillaga um sölu á húsnæði íslensk-rússneska félagsins MÍR verður lögð fram á nýjum aðalfundi sem boðað hefur verið til í lok mánaðar. Fyrri aðalfundur og ákvörðun um söluna var ógilt af dómstól fyrr á þessu ári. 9.5.2024 07:01
Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Fjarreikistjarna sem James Webb-geimsjónaukinn hefur fylgst með gæti verið fyrsta bergreikistjarnan utan sólkerfisins okkar með lofthjúp sem menn finna. Engar líkur eru á að reikistjarnan gæti hýst líf, að minnsta kosti ekki í þeirri mynd sem við þekkjum það. 8.5.2024 15:54
Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Bandarískir saksóknarar rannsaka nú hvort að rafbílaframleiðandinn Tesla kunni að hafa gerst sekur um svik með því að blekkja bæði neytendur og fjárfesta um sjálfstýribúnað bílanna. Fyrirtækið og eigandi þess hafa haldið því fram að bílarnir geti ekið sér sjálfir. 8.5.2024 14:14
Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Lyfjafyrirtækið AstraZeneca hefur ákveðið að innkalla bóluefni sitt gegn Covid-19 vegna dvínandi eftirspurnar á heimsvísu. Fyrirtækið var áður hætt að framleiða og dreifa bóluefninu sem var eitt það fyrsta sem var þróað gegn veirunni skæðu. 8.5.2024 11:20
Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Ráðist var á hátt settan félaga í stjórnarflokki Olafs Scholz, kanslara Þýskalands, í Berlín í gær. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að annar flokksmaður þurfti að gangast undir aðgerð eftir að menn réðust á hann með spörkum og barsmíðum. Hrina árása á stjórnmálamenn hefur verið tengd við uppgang öfgahægrihyggju. 8.5.2024 10:09
Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Björgunarbátar af suðvesturhorninu drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna á Faxaflóa til hafnar í gærkvöldi. Þokkalegt veður var og ekkert amaði að áhöfn bátsins. 8.5.2024 09:03
Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Bandarísku lögregluna grunar að sá sem sendi falska tilkynningu um morð á heimili vitnis í sakamáli á hendur Donald Trump hafi með henni reynt að siga vopnuðum sérsveitarmönnum á vitnið. Tilkynningin barst daginn sem vitnið kom fyrir dóm í New York. 7.5.2024 12:06