Ein skærasta frjálsíþróttastjarna Kenía myrt af eiginmanni sínum Keníska frjálsíþróttastjarnan Agnes Tirop fannst látin á heimili sínu í gær. Í yfirlýsingu frá keníska frjálsíþróttasambandinu segir að eiginmaður hennar hafi stungið hana til bana. 13.10.2021 12:54
„Óneitanlega svolítið sérstakt að byrja gegn Real Madrid“ Ásmundur Arnarsson, nýr þjálfari kvennaliðs Breiðabliks, viðurkennir að það sé nokkuð sérstakt að stýra liðinu í fyrsta sinn gegn stórliði Real Madrid í Meistaradeild Evrópu. 13.10.2021 11:31
Hannes: „Heimir vill ekki hafa mig hjá félaginu“ Hannes Þór Halldórsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, segir að Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, vilji ekki hafa hann lengur hjá félaginu. 13.10.2021 09:28
Danir geta tryggt sér farseðilinn til Katar í kvöld Danir geta orðið annað liðið til að tryggja sér sæti á heimsmeistaramótinu í Katar 2022 í kvöld. 12.10.2021 14:31
Svara fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni og ofbeldi innan ástralska landsliðsins Sam Kerr og stöllur hennar í ástralska fótboltalandsliðinu hafa svarað fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni og einelti innan liðsins. 12.10.2021 13:00
Hættur eftir að hafa kallað Bandaríkjaforseta stressaða heimska tussu og forseta NFL hommatitt Jon Gruden, hefur sagt af sér sem þjálfari Las Vegas Raiders í NFL-deildinni, eftir að New York Times komst yfir og fjallaði um tölvupósta hans sem innihalda meðal annars rasísk og hómófóbísk ummæli. 12.10.2021 12:01
Umfjöllun: Ísland - Liechtenstein 4-0 | Lyklabörnin léku sér að Liechtenstein Ísland vann eins auðveldan og þægilegan sigur og hugsast getur í alþjóðlegum nútímafótbolta þegar liðið lagði Liechtenstein að velli, 4-0, í síðasta heimaleik sínum í undankeppni HM karla í Katar. 11.10.2021 21:15
Mendy enn í steininum eftir að þriðju beiðninni um lausn gegn tryggingu var hafnað Benjamin Mendy, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, situr enn í steininum eftir að beiðni hans um að losna gegn tryggingu var hafnað í þriðja sinn. 11.10.2021 16:00
Fær vasapening frá eiginkonunni eftir að hann tapaði húsinu þeirra í veðmálum Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, fær vasapening frá eiginkonu sinni, Kate, eftir að hann tapaði húsi þeirra í veðmálum. 11.10.2021 14:01
„Geggjað að skora fyrsta markið sitt fyrir framan nítján þúsund manns“ Berglind Björg Þorvaldsdóttir segir að það hafi verið einstök upplifun að spila fyrir framan tæplega nítján þúsund manns þegar lið hennar, Hammarby, vann AIK, 4-1, í Stokkhólmsslag í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Berglind skoraði eitt mark og lagði upp annað í leiknum. 11.10.2021 13:01