Úkraínuforseti skorar á Vesturlönd að hætta orkuinnflutningi frá Rússlandi Zelenskyy Úkraínuforseti segir Evrópu verða að hætta öllum gas- og olíuinnfluttningi frá Rússlandi en Rússar noti ágóðann bæði í stríðinu í Úkraínu og til að sundra Evrópu. Nítján óbreyttir borgarar, þar af eitt barn, féllu í tveimur eldflaugaárásum Rússa á bæ nálægt hafnarborginni Odessa í Úkraínu í gærkvöldi. 1.7.2022 13:43
Rússar hafa nánast lagt Luhansk hérað undir sig Rússar eru við það að ná fullum yfirráðum yfir síðustu borginni í Luhansk héraði eftir harða bardaga undanfarnar vikur. Utanríkisráðherra Bretlands segir Vesturlönd verða að útvega Úkraínumönnum þau vopn sem dugi til að þeir vinni stríðið í Úkraínu. 30.6.2022 21:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá því að vaxtabyrði óverðtryggðra lána hefur hækkað verulega vegna vaxtahækkana að undanförnu. Þannig greiðir lántaki á 40 milljón króna láni hundrað þúsund krónum meira á mánuði í vexti nú en þegar vextirnir voru lægstir. 30.6.2022 18:08
Putin segir sókn Rússa stöðuga og samkvæmt áætlun Putin Rússlandsforseti þvertekur fyrir að ráðist sé á borgaraleg skotmörk í Úkraínu. Sókn rússneskra hersveita væri stöðug og gengi samkvæmt áætlun. Utanríkisráðherra Bretlands segir Vesturlönd verða að auka stuðning sinn við Úkraínumenn og sjá til þess að þeir gersigri rússneska innrásarliðið. 30.6.2022 11:53
NATO skilgreinir Rússland sem helstu öryggisógn Evrópu Rússland er helsta ógnin við öryggi Evrópu samkvæmt nýrri hernaðarstefnu sem leiðtogar Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag. Forsætisráðherra segir óviðeigandi að Tyrkir hafi blandað málefnum Kúrda inn í aðildarviðræður Svía og Finna að bandalaginu. 29.6.2022 19:21
Gagnrýnin á framgöngu Tyrkja Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það hafi verið óviðeigandi af hálfu Tyrkja að setja óskyld mál á dagskrá í aðdraganda aðildarumsóknar Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Hún segir það skipta máli að fá tvær Norðurlandaþjóðir inn í bandalagið. 29.6.2022 14:37
Aðildarumsókn Svía og Finna afgreidd á methraða Aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir Svía og Finna fá aðild að bandalaginu með met hraða. Putin Rússlandsforseti sé nú að uppskera stærra NATO með innrás sinni í Úkraínu, þvert á það sem hann stefndi að. Forsætisráðherra fagnar aðild Finna og Svía að NATO. 29.6.2022 13:19
Vaxandi þensla og barátta um vinnuafl Vaxandi þensla er í efnahagslífinu eftir að kórónuveirufaraldrinum lauk. Ferðaþjónustan er komin á fullan skrið og aukinn þrýstingur er ábyggingaframkvæmdir. Seðlabankastjóri segir þetta geta leitt til þess að atvinnugreinar fari að bítast um starfsfólk. 28.6.2022 19:31
Tyrkir samþykkja aðild Svía og Finna að NATO Tyrkir hafa samþykkt aðildarumsókn Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Einn sögulegasti leiðtogafundur í sögu NATO hófst formlega í Madríd í dag þar sem meðal annars verður samþykkt að auka umsvif bandalagsins í austur Evrópu. 28.6.2022 18:53
Sögulegur leiðtogafundur NATO hefst í dag Þriggja daga leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í Madrid á Spáni í dag þar sem reiknað er með tíðindum varðandi aðildarumsókn Svía og Finna að bandalaginu og frekari stuðningi við Úkraínu. Forsætisráðherra sækir fundinn fyrir Íslands hönd. 28.6.2022 13:55