„Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Einar Guðnason, þjálfari Víkings, deildi út hrósi í allar áttir eftir sigur liðsins gegn Grindavík/Njarðvík í 17. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta í dag. Fótbolti 29.8.2026 16:20
Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bergdís Sveinsdóttir skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Víkingur lagði Grindavík/Njarðvík að velli, 3-0, í 17. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Heimavelli hamingjunnar í Fossvoginum í dag. Þetta var annar sigur Víkings í röð í deildinni sem kemur liðinu upp úr botnsæti. Íslenski boltinn 29.8.2026 13:16
Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Gísli Steinar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi og hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild félagsins. Handbolti 27.8.2026 22:16
Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Eftirvænting var fyrir fyrsta leik Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfari KA, fyrsti leikur í erfiðari kantinum gegn KR. Topplið Víkings Reykjavíkur tók þá á móti Val í Reykjavíkurslag. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér í fréttinni. Íslenski boltinn 24. ágúst 2026 09:02
Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Víkingur vann öruggan 2-0 sigur á Val í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Sigurinn þýðir að Víkingur er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Valur gæti hreinlega sogast niður í fallbaráttuna. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 21:45
Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Gunnar Vatnhamar lék sinn síðasta heimaleik fyrir Víking þegar liðið lagði Val, 2-0, í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Færeyingurinn átti erfitt með að lýsa tilfinningum sínum í leikslok. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 21:40
Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Þrír leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í gær og óvænt úrslit komu upp úr þeim öllum. Mörkin úr leikjunum má sjá hér fyrir neðan. Íslenski boltinn 22. ágúst 2026 12:01
„Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ „Mér fannst við alveg verðskulda þennan sigur,“ sagði Telma Ívarsdóttir, markvörður Víkinga, eftir glæstan 0-1 sigur gegn FH í Kaplakrika í kvöld. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 20:34
Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Víkingar unnu í kvöld gífurlega mikilvægan sigur gegn FH í Kaplakrika, en liðið er í harðri fallbaráttu. Fyrsti sigur Víkinga síðan í lok maí og FH að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 17:15
Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Víkingur tapaði 1-3 gegn Borac Banja Luka í fyrri leik Sambandsdeildarumspilsins. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Fótbolti 21. ágúst 2026 11:35
„Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ „Ég er aðallega svekktur með hvernig við spiluðum sem lið í fyrri hálfleik,“ sagði Sölvi Geir Ottesen eftir 1-3 tap Víkings gegn Borac Banja Luka í umspili Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 20. ágúst 2026 20:45
Víkingur - Borac 1-3 | Slæm byrjun í slag um Sambandsdeild og hundruð milljóna Víkingur er 3-1 undir gegn Borac Banja Luka eftir fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildarinnar. Gestirnir frá Bosníu og Hersegóvínu tóku tveggja marka forystu snemma og breikkuðu síðan bilið aftur undir lok leiks eftir vítaspyrnumark Gylfa Þórs Sigurðssonar. Fótbolti 20. ágúst 2026 17:17
„Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Í kvöld tekur Víkingur á móti Borac Banja Luka frá Bosníu og Hersegóvínu í úrslitaviðureign í umspili Sambandsdeildar Evrópu. Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkings er klár í slaginn gegn sterku bosnísku liði. Íslenski boltinn 20. ágúst 2026 11:33
„Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Baldur Sigurðsson gat ekki orða bundist eftir frammistöðu Gylfa Þórs Sigurðssonar með Víkingi um helgina í 4-2 sigrinum gegn FH í Kaplakrika. Gylfi skoraði þar frábært mark eftir góðan sprett, eftir gríðarlegt leikjaálag að undanförnu. Íslenski boltinn 18. ágúst 2026 09:29
Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Glæsileg mörk litu dagsins ljós í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, þegar þrír leikir fóru fram í 19. umferðinni, og má sjá þau á Vísi. Íslenski boltinn 17. ágúst 2026 08:30
Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Mér fannst þetta verðskuldaður sigur,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir 4-2 útisigur liðsins gegn FH í Bestu-deildinni í kvöld. Íslenski boltinn 16. ágúst 2026 20:59
„Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, hrósaði Víkingum fyrir frammistöðu sína eftir að Íslandsmeistararnir unnu 4-2 útisigur gegn lærisveinum hans í Kaplakrika í kvöld. Íslenski boltinn 16. ágúst 2026 20:44
Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta mark Víkings er liðið vann sterkan 4-2 útisigur gegn FH og náði átta stiga forskoti í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Íslenski boltinn 16. ágúst 2026 20:28
Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Íslandsmeistarar Víkings unnu sterkan 2-4 sigur er liðið heimsótti FH í 19. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Með sigrinum bundu þeir enda á níu leikja taplausa hrinu FH-inga, sem höfðu ekki tapað í Bestu-deildinni síðan 29. maí síðastliðinn. Íslenski boltinn 16. ágúst 2026 19:58
„Þegar það rignir þá hellirignir“ Einar Guðnason, þjálfari Víkings, var jákvæður og upplitsdjarfur þrátt fyrir tap liðsins gegn Þór/KA í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld og slæma stöðu liðsins í deildinni. „“ Fótbolti 14. ágúst 2026 20:53
Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Þór/KA sótti sterkan sigur þegar liðið sótti Víking heim á Heimavöll hamingjunnar í Fossvoginum í 15. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Sigurinn fjarlægir Þór/KA frá fallsvæðinu en Víkingur er í vondum málum á botninum. Íslenski boltinn 14. ágúst 2026 19:48
Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Eftir fjóra leiki í röð án sigurs vann Víkingur sterkan 3-2 sigur á svissnesku meisturunum í Thun í Víkinni í gær. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórglæsilegt mark. Íslenski boltinn 14. ágúst 2026 11:26
Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Sveinn Aron Guðjohnsen er genginn í raðir Víkings eftir átta ár erlendis. Hann segist þurfa smá tíma til að koma sér í betra form en er spenntur fyrir nýrri áskorun. Íslenski boltinn 14. ágúst 2026 09:30
„Ánægður með það hvernig strákarnir héldu áfram að trúa“ Víkingar höfðu betur gegn Thun í Víkinni í dag og fögnuðu súrum 3-2 sigri eftir góða frammistöðu. Það reyndist þó ekki nóg til að vinna upp forskot svissnesku meistaranna úr FC Thun frá fyrri leiknum en Thun vann einvígið 5-3 samanlagt og tryggði sér með því sæti í umspili Evrópudeildarinnar. Fótbolti 13. ágúst 2026 21:49