Veður

Veður


Fréttamynd

Sex skriðuviðvaranir í gildi

Skriðuviðvaranir hafa nú verið gefnar út fyrir sex svæði vegna úrkomu. Þær ná til norðanverðra Vestfjarða, Stranda og vestanverðs Húnaflóa, sunnanverðra Austfjarða, Suðausturlands, Suðurlands og innsveita Suðurlands og miðhálendisins.

Innlent
Fréttamynd

Þakplötur og trampólín á flugi

Björgunarsveitir sinna nú útkalli á Stokkseyri þar sem þakplötur eru að fjúka af bóndabæ. Að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, er óttast að þakið kunni að fara af í heild sinni. Björgunarsveitir frá Eyrarbakka og Árborg eru á staðnum.

Innlent
Fréttamynd

Rigning og vindur

Í dag er vaxandi austanátt, víða 13 til tuttugu metrar á sekúndu með morgninum en átján til 25 metrar á sekúndu sunnanlands fram að hádegi. Rigning um allt land og talsverð eða mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum fram á kvöld. 

Veður
Fréttamynd

„Að mínu mati fyrsta al­vöru haustlægðin“

Siggi stormur segir að nú fari hver að verða síðastur til þess að binda niður trampolínið í garðinum en að hans sögn er von á fyrstu alvöru haustlægðinni á morgun. Gular veðurviðvaranir verða í gildi á morgun á Suðurlandi, Vestfjörðum, Austfjörðum, Miðhálendi og á Suðausturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Gular við­varanir á morgun

Í fyrramálið taka gular viðvaranir gildi á Suður- og Austurlandi vegna austan storms og mikillar rigningar. Vindhviður gætu náð 35 metrum á sekúndu. 

Veður
Fréttamynd

Rigning, rigning, rigning

Það gengur í suðvestan tíu til átján metra á sekúndu í dag. Víða skúrir, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands. Dregur úr vindi í kvöld. 

Veður
Fréttamynd

Tafir á Kefla­víkur­flug­velli

Nokkrar tafir hafa orðið á Keflavíkurflugvelli í morgun vegna veðurs en gul viðvörun var í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa frá klukkan fimm í morgun og til níu.

Innlent
Fréttamynd

Hvessir all­veru­lega á morgun

Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands vekja athygli á því að snemma á morgun gangi í austan hvassviðri syðst á landinu sem geti verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Veður
Fréttamynd

Bjart framan af en skúrir síð­degis

Í dag er spáð norðlægri átt, 3-8 m/s, og rigningu eða súld með köflum, einkum á norðaustanverðu landinu. Bjart með köflum sunnan- og suðvestanlands framan af degi, en skúrir síðdegis. Hiti 7 til 13 stig.

Veður
Fréttamynd

Út­lit fyrir úrkomubakka og þoku­loft

Útlit er fyrir að úrkomubakki komi inn á sunnanvert landið í dag en nái þó ekki langt inn. Á meðan er þokuloft með norður- og austurströndinni. Í dag verður fremur hægur vindur víðast hvar.

Innlent
Fréttamynd

Skýjað og dá­lítil væta víðast hvar

Í dag er spáð norðvestan 5-13 metrum á sekúndu, hvassast við suðvestur- og vesturströndina, en hægari breytileg átt austantil. Þá á að vera skýjað með köflum á Suðaustur- og Austurlandi, annars skýjað og dálítil væta. Hiti verður á bilinu sjö til 14 stig, svalast fyrir norðan.

Veður
Fréttamynd

Rigning og víða hvasst um nær allt land

Í dag er spáð suðaustan 10-18 m/s og rigningu, hvassast suðvestantil. Sums staðar talsverð rigning um tíma, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst í sunnan og suðvestan 3-8 metra á sekúndu er líður á daginn og þá á að draga og dregur úr vætu á sunnan- og vestanverðu landinu.

Veður
Fréttamynd

Vara við hvössum vindum í nótt

Ökumenn eru varaðir við hvössum vindum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi og við Eyjafjöll í nótt. Von er á 35 m/s vindhviðum fram til hádegis á morgun. 

Veður
Fréttamynd

Haustið mætir á mið­viku­daginn

Landsmenn ættu að nýta daginn í dag og morgundaginn í að spóka sig úti og hoppa á trampólínum áður en haustveðrið mætir í ótímabærri innkomu á miðvikudag. Veðurfræðingur segir von á talsverðri rigningu og hvössum vindum. 

Veður
Fréttamynd

Nætur­frost norðaustantil

Það frysti víða norðaustantil á landinu í nótt, en nú nálgast lægð úr suðvestri og hún beinir til okkar mildara lofti. Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar.

Veður
Fréttamynd

Esjan er hvít en ekki lengi

Það hefur líklega ekki farið framhjá höfuðborgarbúum að Esjan er nú hvít, í fyrsta sinn í haust. Veðurfræðingur segir þó litlar líkur á að snjóinn muni festa, það stefni í hlýindi í næstu viku og þá verði hann á bak og burt.

Innlent
Fréttamynd

Vætu­samt veður í kortunum

Breytilegar áttir og vætusamt veður eru í kortunum samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Hitinn í dag verður á milli sex og þrettán stig.

Veður
Fréttamynd

Á­fram rigning og lægðagangur

Lægðagangur verður umhverfis landið næstu daga og gera spár ráð fyrir breytilegum vindum og vætusömu veðri samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Veður
Fréttamynd

Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu

Meðalhitastigið í ágúst var það hæsta sem mælst hefur, jafn hátt og í júlí 2023, samkvæmt loftslagsþjónustu Evrópusambandsins. Nýafstaðið sumar var það hlýjasta í Vestur-Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Bætir í úr­komu síð­degis

Lægð nálgast landið í dag úr suðvestri og verður dálítil rigning eða súld en bætir í úrkomuna síðdegis. Hlýjast verður á Norðaustur- og Austurlandi þar sem hitinn gæti farið upp í sextán stig.

Veður
Fréttamynd

Gul við­vörun vegna hvass­viðris á Suð­austur­landi

Veðurfræðingar vara við hvassviðri á Suðausturlandi seint í kvöld og nótt með hviðum sem geta náð allt að 36 metrum á sekúndu. Eru vegfarendur hvattir til að aka varlega og þá sérstaklega þeir sem eru á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind, svo sem ferðavagnar.

Veður