Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Eiður Þór Árnason skrifar 3. október 2026 08:30 Rigning í Skerjafirði. Vísir/vilhelm Það er blautur laugardagur í vændum og lægð sendir regnsvæði sitt yfir allt landið, að sögn veðurfræðings. Spáð er suðaustan og sunnan átta til þrettán metrum á sekúndu með rigningu í dag og gert ráð fyrir talsverðri úrkomu á Suður- og Vesturlandi fram undir kvöld. Hiti á bilinu sjö til tólf stig.
Í kvöld er síðan útlit fyrir að miðja lægðarinnar verði yfir landinu og þá dragi nokkuð víða úr vindi en áfram verði blautt. Svo hljóðar núgildandi spá Veðurstofunnar.Lægðin er sögð halda áfram leið sinni til norðausturs í kjölfarið og í fyrramálið eigi miðjan að vera komin norðaustur af Langanesi. Þá má búast við vestan og norðvestan átta til þrettán metrum á sekúndu en það gæti orðið hvassara í vindstrengjum syðst á landinu, til að mynda undir Mýrdals- og Öræfajökli. Spáð er vætu nokkuð víða en það ætti að hanga þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum. Þegar líður á morgundaginn fjarlægist lægðin og annað kvöld verður fremur hæg norðanátt á landinu með súld norðantil en þurrt að kalla í öðrum landshlutum. Þá kólnar smám saman í veðri á morgun að sögn Veðurstofunnar og þá einkum fyrir norðan. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Norðan 3-10 m/s, hvassast við austurströndina. Dálítil rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi framan af degi, en rofar síðan til. Skýjað með köflum, en þurrt að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast syðst. Birtir víða til um kvöldið og frystir allvíða.Á þriðjudag: Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða bjartviðri, en líkur á dálitlum skúrum við vesturströndina. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn.Á miðvikudag: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en sums staðar lítilsháttar skúrir eða slydduél. Hiti breytist lítið.Á fimmtudag: Stíf suðaustanátt með rigningu, en dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið og hlýnar dálítið.Á föstudag: Útlit fyrir norðanátt með rigningu víða um land, jafnvel slyddu norðanlands, en þurrviðri austanlands og kólnandi veður.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Sjá meira