Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Kjartan Kjartansson skrifar 9. október 2026 14:34 Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, sem vill láta meta áhættu af El niño á Íslandi. Vísir/Anton Brink Óvenjusterkur El niño-atburður í Kyrrahafi er líklegur til þess að hafa óbeinar afleðingar á Íslandi. Loftslagsráðherra vill láta greina möguleg áhrif veðurfyrirbrigðisins á aðfangakeðjur og afhendaröryggi Íslands.
Gert er ráð fyrir einstaklega miklum veðuröfgum fram á næsta ár vegna fordæmalauss El niño í Kyrrahafi sem leggst ofan á hnattræna hlýnun sem menn valda með losun sinni á gróðurhúsalofttegundum. Frávik í sjávarhita í Kyrrahafi sem er notað sem mælikvarði á El niño-atburði hefur aldrei mælst eins mikið og í þessum mánuði. Náttúruhamfarir á borð við flóð, þurrka og gróðurelda eru taldar líklegar til þess að hafa veruleg efnahagsleg áhrif, til dæmis í formi uppskerubresta og truflana á framleiðslu og flutningsleiðir. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, lagði fram minnisblað um möguleg áhrif El niño á Ísland á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í því segir að beinar afleiðingar verði litlar en líklegt sé að óbeinna afleiðinga verði vart hér, bæði á samfélag og efnahagslíf. „En umfang þeirra og birtingarmyndir eru enn háð[ar] verulegri óvissu,“ segir í minnisblaðinu. Vill meta áhættu fyrir verðlag og afhendingu vara Ísland sé berskjaldað gagnvart áföllum í aðfangakeðjum og gæti auk þess fundið fyrir röskunum á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Erfitt sé þó að afla upplýsinga um upprunalönd innfluttra aðfanga á Íslandi og því sé erfiðara að greina hættu sem steðji að henni vegna El niño hér en víða annars staðar. Því lagði ráðherrann til við ríkisstjórn að kallað yrði eftir fyrirliggjandi upplýsingum um aðfangakeðjur til Ísland sem kynnu að vera sérstaklega útsettar fyrir raski af völdum El niño. Hann vill einnig kanna hvort raunhæft sé að meta áhættu fyrir verðlag og afhendingaröryggi á grundvelli sviðsmynda um áhrif veðurfyrirbrigðisins. „Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið munu því á næstunni óska eftir slíkum upplýsingum frá Veðurstofu Íslands og Skattinum og verða stofnanirnar beðnar um að meta stöðu þekkingar á áhættu fyrir aðfangakeðjur í samstarfi við viðeigandi sérfræðinga,“ segir í minnisblaðinu.
Loftslagsmál Veður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Sjá meira