Valur

Valur

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Val frá Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Betra liðið tapaði”

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var afar svekktur eftir að lið hans tapaði 0-1 fyrir Þrótti á Hlíðarenda í kvöld. Þrátt fyrir tapið taldi hann að Valskonur hefðu átt meira skilið úr leiknum.

Fótbolti
Fréttamynd

Styttan af Séra Frið­riki fer upp, bara ekki strax

Tvennum sögum fer af atkvæðagreiðslu sem fram fór á aðalfundi knattspyrnufélagsins Vals í gær, um hvort reisa ætti á ný styttu af stofnanda Vals, séra Friðriki Friðrikssyni. Margir töldu að á aðalfundinum hefði verið felld tillaga þess efnis en það var hreint ekki það sem verið var að greiða atkvæði um að sögn Theódórs S. Halldórssonar. Tillagan snerist eingöngu um hvenær, ekki hvort.

Innlent
Fréttamynd

Séra Frið­rik fær ekki að rísa strax

Tillaga um að reisa á ný styttu af séra Friðriki Friðrikssyni í sumar var í kvöld felld á aðalfundi knattspyrnufélagsins Vals. Á sama fundi var Arnar Þór Sævarsson kjörinn formaður félagsins en hann er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Innlent
Fréttamynd

„Restin var bara ekki með“

„Ég er bara grútfúll, sérstaklega með frammistöðuna í fyrri hálfleik,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, eftir 3-1 tap liðsins gegn KR í Bestu-deild karla í kvöld.

Fótbolti