UMF Grindavík

UMF Grindavík

Fréttir af Ungmennafélaginu Grindavík frá Grindavík.

Fréttamynd

„Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði að botninn hefði dottið úr leik hans manna undir lokin gegn Grindavík. Hann vill sjá sína lykilmenn spila betur í fjórða leiknum á mánudaginn en þeir gerðu í kvöld.

Körfubolti
Fréttamynd

„Þetta er smá spooky“

Kristófer Acox segir söknuð vera af Frank Aron Booker innan vallar er Valur sækir Grindavík heim í leik þrjú í undanúrslitaeinvígi liðanna í Bónus deild karla. Kristófer þekkir til meiðsla hans og segir að Frank Aron verði liðinu andlegur styrkur á hliðarlínunni.

Körfubolti
Fréttamynd

Hné­skel Franks Arons brotnaði

Tímabili Frank Arons Booker, leikmanns Vals í körfubolta, er lokið. Hann hnéskeljarbrotnaði í 79-72 sigri Vals á Grindavík í undanúrslitum Bónus deildar karla á Hlíðarenda í gærkvöld.

Körfubolti
Fréttamynd

Pargo: Þurfum að vinna tvo leiki í við­bót

Jeremy Pargo skoraði sigurkörfu Grindvíkinga í sigri þeirra á Val í fyrsta leik undanúrslita einvígis Grindavíku og Vals í Grindavík í kvöld. Lokastaðan 82-81 en Valur leiddi nánast allan leikinn en Grindavík var yfir þegar það skipti máli.

Körfubolti
Fréttamynd

Grinda­vík sópaði Val í sumar­frí

Grindavík vann 72-90 sigur gegn Val og þar með 3-0 sigur í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna. Grindvíkingar halda áfram í undanúrslit en Valskonur eru komnar í sumarfrí.

Körfubolti
Fréttamynd

Nokkrir tæpir í Grinda­vík sem „tala skít“

Njarðvík og Grindavík mætast í leik tvö í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í Icemar-höllinni í Njarðvík í kvöld. Þjálfari Njarðvík vonast til að sínir menn haldi haus og endurtekning verði ekki á slagsmálum líkt og sáust í fyrsta leik.

Körfubolti
Fréttamynd

Enginn í bann en fullt af sektum

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur komist að niðurstöðu eftir uppákomuna í fyrsta leik Grindavíkur og Njarðvíkur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Enginn leikmaður var úrskurðaður í bann en félögin, og þá sérstaklega Grindavík, þurfa að greiða vænar sektir.

Körfubolti