„Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Thomas Frank, knattspyrnustjóri Tottenham, var ekki sáttur við dómarann John Brooks eftir leikinn gegn Liverpool. Hann sagði að Cristian Romero hefði ekki verið rekinn út af ef Brooks hefði sinnt starfi sínu almennilega. Enski boltinn 21. desember 2025 10:01
Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Sænskir framherjar reimuðu á sig markaskóna í ensku úrvalsdeildinni í gær þar sem að breyting varð á toppi deildarinnar, en ekki lengi. Liverpool heldur áfram á sigurbraut, Wolves eru enn versta lið deildarinnar og Haaland heldur áfram að raða inn mörkum. Enski boltinn 21. desember 2025 09:03
Gleði og sorg í sigri Liverpool Liverpool vann góðan 2-1 sigur á Tottenham í 17.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þar sem að tvö rauð spjöld fóru á loft. Stuðningsmenn Liverpool geta leyft sér að gleðjast yfir sigrinum en sorg gerir þó einnig vart um sig. Alexander Isak skoraði fyrsta mark liðsins en þurfti í kjölfarið að fara meiddur af velli. Enski boltinn 20. desember 2025 19:32
Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Fár stuðningmaður Tottenham hefur gleymt eina marki Svíans Eriks Edman fyrir klúbbinn þegar hann negldi boltann af 45 metrunum yfir Jerzy Dudek í marki Liverpool fyrir 20 árum síðan. Það er eitt af fjölmörgum mörkum sem skoruð hafa verið í viðureignum liðanna í gegnum tíðina. Enski boltinn 20. desember 2025 11:32
Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Í lok Sunnudagsmessunnar voru þeir Kjartan Henry Finnbogason og Bjarni Guðjónsson beðnir um að velja leikmenn fyrir þrjú lið í ensku úrvalsdeildinni; Chelsea, Manchester United og Tottenham. Enski boltinn 16. desember 2025 12:32
Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær. Gott gengi Aston Villa og Manchester City hélt áfram, Tottenham missteig sig í Nottingham og Sunderland er með montréttinn í norðrinu eftir sigur á erkifjendunum í Newcastle United. Enski boltinn 15. desember 2025 09:01
Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Nottingham Forest gerði sér lítið fyrir og lagði Tottenham að velli með 3-0 sigri í 16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Callum Hudson-Odoi og Ibrahima Sangaré voru allt í öllu. Enski boltinn 14. desember 2025 13:33