Tottenham leitar að rót meiðslavandans Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. maí 2026 10:01 Wilson Odobert er einn af mörgum leikmönnum Tottenham sem kláraði tímabilið snemma. Catherine Ivill - AMA/Getty Images Ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni missti jafn marga leikmenn í meiðsli á þessu tímabili og Tottenham Hotspur. Félagið var næstum því fallið í leiðinni og hefur nú lagt af stað í leit að rót vandans.
Öllum tiltækum ráðum verður beitt til að komast að því hvers vegna leikmenn Tottenham meiddust mun meira en leikmenn annarra liða. Meðal annars verður inndraganlegur völlur félagsins rannsakaður en samskonar völlur hefur valdið Real Madrid meiðslavandræðum. Tottenham hefur samt spilað á sama velli í sjö ár en ekki lent í svona miklum meiðslavandræðum fyrr en núna síðustu tvö tímabil. Samanlagt misstu meiddir leikmenn Tottenham af 370 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili. Meiðslin voru fleiri núna en Tottenham var einnig á toppi meiðslalistans á síðasta tímabili. Lykilmenn á borð við Dejan Kulusevski, James Maddison og Radu Dragusin lentu í alvarlegum hnémeiðslum. Ben Davies ökklabrotnaði og Wilson Odobert sleit krossband. Mohammed Kudus er enn að glíma við meiðsli í lærvöðva og nýlegast lentu Cristian Romero, Destiny Udogie og Xavi Simons í meiðslum sem enduðu tímabil þeirra snemma. Simons var settur á fætur og látinn prófa að skokka með slitið krossband. Lewis Storey - Danehouse/Getty Images Læknateymi Tottenham var gagnrýnt fyrir meðhöndlun sína á Xavi Simons. Hann sleit krossband í leik gegn Wolves en fékk kælisprey og var látinn hlaupa á hliðarlínunni, áður en hann var fluttur af velli í sjúkrabörum. Stjórnarmaður Tottenham, Peter Charrington, skrifaði stuðningsmönnum opið bréf þar sem hann lofaði því að miklu púðri yrði eytt í umbætur á öllu sem tengist meiðslum. Sky Sports greinir frá því að nýi þjálfarinn Roberto De Zerbi vilji ólmur, og eðlilega, leita lausna við þessu vandamáli. Hann hefur óskað eftir fleiri aðilum í lækna- og sjúkrateymi sitt.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Sjá meira