Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. júlí 2026 13:00 Luka Vuskovic í leik Englands og Króatíu í riðlakeppninni á HM 2026. getty/Matthew Visinsky Enska úrvalsdeildarliðið Brighton hefur keypt króatíska miðvörðinn Luka Vuskovic frá Tottenham. Brighton pungaði út 46 milljónum punda fyrir Vuskovic sem er dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Vuskovic gekk í raðir Tottenham frá Hajduk Split í fyrra en var strax lánaður til Hamburg í Þýskalandi. Hann lék þrjátíu leiki í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og skoraði sex mörk. Vuskovic er ætlað að fylla skarð Jean Paul van Hecke hjá Brighton en hann gekk einmitt í raðir Tottenham. We are delighted to confirm the signing of defender Luka Vuskovic from Tottenham Hotspur! 🤝— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) July 14, 2026 Hinn nítján ára Vuskovic lék með króatíska landsliðinu á HM. Króatar féllu úr leik fyrir Portúgölum, 2-1, í 32-liða úrslitum. Vuskovic er yngsti leikmaður sem hefur spilað fyrir króatíska landsliðið á heimsmeistaramóti. Vuskovic var aðeins sextán ára og tveggja daga gamall þegar hann þreytti frumraun sína með aðalliði Hajduk Split. Hann er yngsti leikmaðurinn sem hefur spilað í króatísku úrvalsdeildinni. Vuskovic var lánaður til Radomiak Radom í Póllandi og Westerlo í Belgíu áður en Tottenham keypti hann frá Hajduk Split. Brighton endaði í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og vann sér þátttökurétt í Sambandsdeild Evrópu.
Enski boltinn Brighton & Hove Albion Tottenham Hotspur Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti „Það rignir ekkert inn peningum“ Handbolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Fleiri fréttir Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Sjá meira