Færeyskt rokk og ról Bætt hefur verið við einum tónleikum með færeysku rokksveitinni Tý hér á landi og mun hún því koma fjórum sinnum fram á næstu dögum. Tónleikastaðurinn Paddy"s í Keflavík hefur bæst við og verða þeir tónleikar í kvöld. Tónlist 2. október 2008 04:15
Cynic Guru spilar í Bretlandi „Við spilum í London og Guildford og endum í gamalli kirkju í Manchester á sunnudagskvöldið,“ segir Roland Hartwell um tónleikaferðalg hljómsveitar sinnar, Cynic Guru, sem hélt af stað til Bretlands í gær. Tónlist 2. október 2008 04:00
Klassík í hádeginu Íslenskir tónlistarunnendur hafa nóg við að vera nú í haust og vetur, en um þessar mundir er að hefjast fjöldi tónleikaraða sem munu ylja landsmönnum um hjartarætur í svartasta skammdeginu. Ein slík tónleikaröð hefst á morgun; Klassík í hádeginu nefnist hún og er sprottin af samstarfi SÁÁ, menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Nínu Margrétar Grímsdóttur píanóleikara, en hún er listrænn stjórnandi raðarinnar. Tónlist 1. október 2008 04:00
Ekki í tónleikaferð Söngvarinn Robert Plant hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að hann ætli ekki í tónleikaferð með Led Zeppelin. Orðrómur var uppi um að sveitin ætlaði á túr á næsta ári með Plant innanborðs en ekkert verður af því. Tónlist 1. október 2008 04:00
Amiina með nýtt lag Hljómsveitin Amiina hefur tekið upp eigin útgáfu af lagi bandaríska sveitasöngvarans Lee Hazlewood, Leather and Lace. Síðasta lagið sem Hazlewood tók upp áður en hann lést í fyrra var einmitt Hilli (At the Top of the World) með Amiinu. Tónlist 30. september 2008 06:00
Sápukúlur í myndbandi Listahópurinn The Weird Girls Project leitar nú að kalltæki og tæki sem framleiðir sápukúlur vegna nýs myndbands sem hann ætlar að gera fyrir Emilíönu Torrini. Tónlist 30. september 2008 05:00
Bruce spilar á Super Bowl „Stjórinn" Bruce Springsteen og hljómsveit hans, The E Street Band, mun spila í hálfleik á Super Bowl-úrslitaleik bandaríska ruðningsins í febrúar á næsta ári. Um frábæra kynningu er að ræða fyrir Springsteen enda horfðu rúmlega 148 milljónir Bandaríkjamanna á Tom Petty and the Heartbreakers spila í fyrra. Tónlist 30. september 2008 05:00
Tóku upp tónleika Hljómsveitin South River Band hélt tvenna tónleika á Grand Rokk á dögunum þar sem stemningin var einkar góð. Tónleikarnir voru teknir upp og til stendur að gefa þá út á DVD-mynddiski, sem verður sá fyrsti frá sveitinni. South River Band hefur gefið út fjórar plötur á ferli sínum og kom sú síðasta, Allar stúlkurnar, út í fyrra. Tónlist 28. september 2008 06:00
Tíu ára plötugerð á enda Tónlistarmaðurinn Bob Justman, sem heitir réttu nafni Kristinn Gunnar Blöndal, hefur sent frá sér hið hugljúfa lag Most of All sem verður að finna á fyrstu sólóplötu hans, Happiness & Woe. Tónlist 26. september 2008 07:15
Þrefaldur Rúnar Júl Meistari Rúnar Júl hefur frá árinu 1965 gefið út plötur með nýju efni. Í ár verður breyting á. Í stað hefðbundins nýmetis kemur út þrefaldi safndiskurinn Sögur um lífið. Tónlist 26. september 2008 06:00
Iceland Airwaves í útrás Góður rómur var gerður að London Airwaves-hátíðinni sem haldin var um síðustu helgi. Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr. Örlygs, segir að hátíðin verði haldin aftur á næsta ári og verið sé að skoða hvort Airwaves verði haldin í fleiri löndum í framtíðinni. Tónlist 26. september 2008 04:15
Brant Bjork til Íslands Bandaríska rokksveitin Brant Bjork & The Bros heldur tvenna tónleika á Íslandi í kvöld og annað kvöld. Forsprakki sveitarinnar er Brant Bjork, fyrrverandi meðlimur hljómsveitanna Fu Manchu og Kyuss, sem hafði á að skipa Josh Homme og Nick Oliveri úr Queens of the Stone Age. Tónlist 26. september 2008 02:30
32C kemur rappinu á kortið Félagarnir Dabbi T, Emmsjé Gauti og Nagmús hafa stofnað rappsveitina 32C og er fyrsta lag hennar, É É É É, á leið í útvarpsspilun. Tónlist 26. september 2008 02:00
Alíslensk tónleikadagskrá Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur fram á heldur sérstökum tónleikum í kvöld, en á þeim verður einungis flutt tónlist eftir íslensk tónskáld. Ástæðan fyrir verkavalinu er sú að hljómsveitin heldur utan í næsta mánuði og kemur fram á tónleikum í Japan. Af því tilefni var sett saman þessi tónleikadagskrá þar sem kynnt er tónlist eftir nokkur af helstu tónskáldum íslensku þjóðarinnar. Tónlist 26. september 2008 01:00
Thiago í gítarkeppni á netinu Brasilíski gítarleikarinn Thiago Trinsi, sem býr á Ólafsfirði, er á meðal þátttakenda í alþjóðlegu gítarkeppninni Dean Guitar Shredder Contest USA sem fer fram á netinu. Tónlist 24. september 2008 05:00
Nýtt lag frá Lay Low Önnur plata Lay Low nefnist Farewell Good Night"s Sleep og fer fyrsta lagið af henni, By and By, í spilun í dag. Platan kemur út sextánda október á vegum Cod Music og um kvöldið mun Lay Low halda útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Hún verður einnig á meðal þeirra sem spila á Iceland Airwaves-hátíðinni skömmu síðar. Tónlist 23. september 2008 07:00
Eini lagaraðari landsins „Já, Þröstur Leó gefur sig út fyrir það að vera eini maðurinn á Íslandi sem er svokallaður lagaraðari. Og starfar við þetta í hjáverkum. Við heyrðum af þessu og ákváðum að treysta honum fyrir því að raða lögunum upp. En þetta hefur verið atvinnuleyndarmál svipað og samplið hans Charlie Watts á plötu Herberts,“ segir Björn Jörundur. Tónlist 21. september 2008 08:00
Nuddari með styrktartónleika Fjöldi tónlistarmanna kemur fram á styrktartónleikum fyrir samtökin Umhyggju á Nordica hóteli 28. september. Tónlist 21. september 2008 07:00
Fjölmenni á íslenskri tónlistarhátíð Íslenska tónlistarhátíðin London Airwaves var haldin á átta skemmtistöðum í Shoreditch-hverfinu í London á föstudagskvöld. Hátíðin þótti heppnast ágætlega og var vel sótt. Íslensku hljómsveitirnar FM Belfast og Steed Lord komu fram. Íslensku listamönnunum var vel fagnað af samlöndum þeirra sem sóttu hátíðina. Talið er að um tvö þúsund manns hafi sótt London Airwaves. Tónlist 21. september 2008 05:00
Tegundirnar krufnar Tónlistarpælarinn og uppflettiritið Kristinn Pálsson byrjar í kvöld með útvarpsþátt sinn, Uppruni tegundanna, á Rás 2, þriðja árið í röð. Í þáttunum er fjallað um afmarkaðar stefnur, afbrigði, senur eða stíla sem hafa skotið upp kollinum í rokk- og dægurtónlistarsögunni. Tónlist 18. september 2008 06:00
Tónleikum Soweto aflýst „Það er mjög leiðinlegt að geta ekki boðið landanum upp á þetta," segir Birgir Nielsen hjá 2B Company um tónleika suður-afríska gospelkórsins Soweto sem hefur verið aflýst vegna dræmrar miðasölu. Tónlist 18. september 2008 06:00
Tónlistarhátíð á Tunglinu Unglingar flykktust á tónlistarhátíðina Iceland Music Festival 2008 sem haldin var á Tunglinu um helgina, en hún var sérstaklega fyrir fólk á aldrinum 13-16. Meðal sveitanna sem tróðu upp um helgina voru Sometime, Mammút, Bloodgroup og Dikta, við afar góðar undirtektir gesta. Tónlist 16. september 2008 04:00
Taka upp nýja plötu Hljómsveitin Hot Chip, sem spilaði á Iceland Airwaves hér um árið, hefur upptökur á sinni fjórðu plötu í nóvember. Síðasta plata sveitarinnar, Made in the Dark, kom út í febrúar síðastliðnum og því skammt stórra högga á milli þar á bæ. Tónlist 11. september 2008 04:00
Elbow fékk Mercury-verðlaun Rokksveitin Elbow hlaut Mercury-verðlaunin í ár fyrir bestu plötu ársins á Bretlandi, The Seldom Seen Kid. Platan er sú fjórða frá sveitinni, sem var stofnuð fyrir sautján árum. Tónlist 11. september 2008 04:00
Emilíana fær frábæra dóma Emilíana Torrini hefur fengið hreint út sagt frábæra dóma í Bretlandi fyrir nýjustu plötu sína Me And Armini. Svo virðist sem hún hafi endanlega slegið í gegn þar í landi með fallegri rödd sinni og ekki síðri lagasmíðum. Platan fær fjórar stjörnur í tímaritunum Q og Uncut, auk þess sem dagblaðið The Sun gefur henni fjóra og hálfa stjörnu og segir tíma Emilíönu runninn upp. Tónlist 11. september 2008 03:00
Rokkabillybandið 20 ára 20 ára afmæli Rokkabillybandsins er fagnað með langþráðri plötu. „Það var alltaf pæling að gefa út plötu og við ákváðum loksins að kýla á það,“ segir Tómas Tómasson, söng- og gítarleikari Rokkabillybands Reykjavíkur, um nýútkomna plötu sveitarinnar, Reykjavík, en sveitin fagnar jafnframt tuttugu ára starfsafmæli sínu um þessar mundir. Tónlist 10. september 2008 06:00
Indí-fólk hefur lítið sjálfsálit Aðdáendur indí-tónlistar hafa lítið sjálfsálit og eru stefnulausir í lífinu en líta samt á sjálfa sig sem skapandi einstaklinga. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var af Heriott Watt-háskólanum í Edinborg og tónlistarsíðunni Peopleintomusic.com. Tónlist 9. september 2008 06:00
Troðið á Mammút í Iðnó Hljómsveitin Mammút fagnaði útgáfu nýrrar plötu, Karkara, á föstudagskvöldið með tónleikum í Iðnó. Eins og sjá má á þessum myndum var sveitinni vel tekið, mikið af fólki var í húsinu og eru gagnrýnendur, hvað þá áhorfendur, sammála um að nýjasta afsprengi sveitarinnar sé með endemum gott. Tónlist 9. september 2008 05:00
Heimstónlistin ómar Hljómsveitin Bardukha kemur fram á tónleikum á Café Rósenberg við Klapparstíg kl. 21 á fimmtudagskvöld. Bardukha leikur margvíslega heimstónlist, en sú tónlistarstefna er sífellt að sækja í sig veðrið hér á landi. Tónlist 9. september 2008 05:00
Allir gefa út fyrir Airwaves Fjölmargar áhugaverðar plötur eru á leiðinni á næstu vikum frá íslenskum hljómsveitum sem kalla mætti „Airwaves-bönd“. Allir stefna á að gefa út fyrir tónlistarhátíðina sem að þessu sinni fer fram helgina 15.-19. október. Næstu vikur verða því „djúsí“ fyrir tónlistargeggjara. Tónlist 8. september 2008 06:00