Partístemning á Faktorý 12. apríl 2013 07:00 Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir mun stíga á svið á Faktorý ásamt FM Belfast og fleiri hljómsveitum. Tónleikarnir eru til styrktar Regnbogabörnum. Fréttablaðið/Vilhelm „
Okkur finnst þetta gott málefni og vildum endilega taka þátt. Við reynum að leggja okkar af mörkum þegar við höfum tíma og getu til. Manni finnst stundum eins og það sé ekki hægt að gera neitt til að hjálpa, en svo er hægt að gera fullt,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar FM Belfast, sem kemur fram á styrktartónleikum fyrir Regnbogabörn í kvöld. Fram koma sveitirnar Kjurr, Vök, Prins Póló, FM Belfast og Úlfur Úlfur. Lóa Hlín kveðst vel stemmd fyrir tónleikana en á enn eftir að finna pössun fyrir son sinn og Árna Rúnars Hlöðverssonar, sem einnig er í hljómsveitinni. „Við munum að öllum líkindum spila nýtt efni í bland við gamalt, það er vaninn, og reyna að byggja upp partístemningu. Svo á ég eftir að finna pössun.“ Hljómsveitin kom síðast fram á tónleikum í Istanbúl í Tyrklandi og var það í þriðja sinn sem FM Belfast kemur fram í borginni. „Þetta er exótískasta borg sem ég hef spilað í. Við höfum spilað þrisvar sinnum á sama klúbbnum í Istanbúl og það er alltaf jafn gaman.“ Ferðin til Tyrklands gekk þó ekki vandræðalaust fyrir sig því einn meðlimur sveitarinnar gleymdi vegabréfi sínu heima. „Allt hefði farið í klúður ef mágkona mín hefði ekki verið með, hún hugsar alltaf skýrt í krísum og þess vegna reddaðist þetta fyrir horn með hjálp íslenska sendiráðsins í Danmörku sem reddaði okkur neyðarvegabréfi.“ Lóa og Árni höfðu átta mánaða gamlan son sinn með sér til Tyrklands og vakti sá stutti mikla athygli meðal heimamanna. „Honum leið örugglega eins og litlum prins. Fólk var alltaf að kyssa hann og kjassa og veita honum athygli.“ Tónleikarnir á Faktorý hefjast klukkan 20.30 og er miðaverð 1.500 krónur.
Tónlist Mest lesið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira