Gröf Vivienne Westwood vanhelguð Gröf hinnar goðsagnakenndu Vivienne Westwood, sem lést á síðasta ári, var vanhelguð þegar stóru blómakeri, sem skreytti grafreit hennar, var stolið. Fjöldi fólks hefur lýst yfir hneykslan sinni vegna þjófnaðarins. Erlent 29. maí 2023 14:53
„Lífið er of stutt fyrir óþægileg föt“ Athafnakonan og áhrifavaldurinn Camilla Rut elskar tísku og segir mestu máli skipta að líða vel í flíkunum sem við klæðumst. Hún segir lífið einfaldlega of stutt fyrir óþægileg föt og er hætt að reyna að elta trend sem hún veit að eru ekki fyrir sig. Camilla Rut er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 27. maí 2023 11:30
Hristir upp í hefðbundnum heimilisstíl „Mér finnst alltaf áhugavert að sjá hvað við setjum inn til okkar. Við flytjum inn í einhvern hvítan kassa og svo formum við hann og mótum og breytum öllu. Og mig langaði að koma með innleg inn á heimilið, mér fannst það mjög spennandi,“ segir hönnuðurinn og listakonan Hanna Dís Whitehead, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Menning 24. maí 2023 07:00
Hönnunarstúdíó Oddsson og Miami gjaldþrota Hönnunarstúdíóið Döðlur Studio hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Döðlur studio vakti mikla athygli við hönnun á Miami Bar á Hverfisgötu og Oddsson Hotel sem rekið var í JL-húsinu. Viðskiptablaðið greindi fyrst frá. Viðskipti innlent 23. maí 2023 13:01
Fór loksins að taka pláss: „Andstæðan við það sem feitum konum er sagt að gera“ „Fyrir nokkrum árum fór mér að vera alveg sama um þessar reglur og fór að klæða mig eins og ég raunverulega vil,“ segir þroskaþjálfinn Íris Svava Pálmadóttir, sem er jafnframt talskona jákvæðrar líkamsímyndar. Hún hélt lengi að hún þyrfti að fela sig með klæðaburði en með aldrinum fór hún að verða óhræddari við að fylgja sínu og skína skært. Íris Svava er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 20. maí 2023 11:31
Haf hjónin selja sögufræga miðbæjarperlu Hjónin og eigendur hönnunarstúdíósins Haf studio, Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson hafa sett sögufræga séreign við Laufásveg til sölu. Lífið 19. maí 2023 11:59
Sviðshöfundur Loreen segist ekki hafa stolið af Sæmundi Lotta Furebäck, einn sviðshöfunda atriðis Loreen í Eurovisison, segist ekki hafa séð kvikmynd íslenska listamannsins Sæmundar Þórs Helgasonar en þótti útlit söngkonunnar í keppnini ansi líkt útliti aðalpersónu úr stuttmynd Sæmundar. Líkindin séu einungis tilviljun. Lífið 18. maí 2023 14:25
Heitustu sumartrendin í ár Sumarið er komið, svona á það að vera og sólin leikur stundum um mann, misjafnlega beran. Hér á Íslandi er sumartíðin gengin í garð óháð fjölbreyttu veðurfari en á sumrin þróast hin ýmsu skemmtilegu trend á ólíkum sviðum. Blaðamaður fékk til sín fjölbreyttan hóp álitsgjafa til að reyna að komast að því hver heitustu trend sumarsins verða. Lífið 18. maí 2023 07:01
Útlit Loreen sláandi líkt persónu Sæmundar Þórs Listamaðurinn Sæmundur Þór Helgason klórar sér nú í kollinum því eins og Loreen birtist á Eurovision-sviðinu í Liverpool var hún útlits nánast eins og persóna hans. Sæmundur Þór skoðar nú réttarstöðu sína. Lífið 15. maí 2023 13:25
„Í lok dags er fatnaður líka bara rassagardínur“ Dansarinn, fyrirsætan og lífskúnstnerinn Karítas Lotta býr yfir einstökum persónulegum stíl, leikur sér með hann og er óhrædd við að þróa hann. Lotta, eins og hún er gjarnan kölluð, er ekki hrifin af boðum og bönnum og segir það alls ekki sitt að dæma hvernig aðrir tjá sig í gegnum tískuna, þess þá heldur eigi að fagna fjölbreytileikanum. Lotta er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 13. maí 2023 11:31
Fyrsta fathöllin neitar að láta nota sig sem mátunarklefa Stofnendur Nebraska við Barónsstíg vilja blanda saman veitingastarfsemi og fataverslun og gera það af einstakri smekkvísi. Í Íslandi í dag er kíkt í heimsókn og litið á vandaða innréttingu og ýmsar forvitnilegar flíkur. Innlent 13. maí 2023 09:00
Öllum er boðið í garðveislu Múmínálfanna! Í sumar verður veisla og öll eru velkomin! Sumarlínan 2023 „Garðveisla“ er full af óvæntum kynnum og töfrum vináttunnar. Myndskreytingarnar eru innblásnar af myndasögu Tove Jansson „Moominvalley Turns Jungle“. Lífið samstarf 9. maí 2023 10:49
Hélt villt sumarpartý í rigningu Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman bauð í sannkallað sumarpartý um helgina en hún er ein af þeim fjöldamörgu listamönnum sem tóku þátt í HönnunarMars. Lífið 8. maí 2023 21:02
Segir sjálfsöryggið smita út frá sér Fatahönnuðurinn Rubina Singh segir sjálfsöryggi og gleði vera það allra mikilvægasta þegar það kemur að tískunni. Rubina er alin upp á Akureyri en flutti í höfuðborgina fyrir nokkrum árum og segist hafa týnt sínum persónulega stíl um tíma, sem hún hefur þó blessunarlega endurheimt. Rubina er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 6. maí 2023 11:32
HönnunarMars í dag: Örari hjartsláttur í Reykjavíkurborg HönnunarMars stendur nú sem hæst og óhætt að segja miðborgina iða af lífi. Lífið á Vísi tók púlsinn á dagskránni í dag, laugardag, en af nægu er að taka. Lífið 6. maí 2023 08:00
Bein útsending: Íslensk hönnun á tískusýningu í Listasafni Reykjavíkur Tískusýning Farmers Market og Kormáks & Skjaldar í Listasafni Reykjavíkur í kvöld er einn af hápunktum Hönnunarmars. Sýningin verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Lífið 5. maí 2023 19:00
HönnunarMars í dag: Miðborgin iðar af lífi og tískusýning í beinni HönnunarMars stendur nú sem hæst og óhætt að segja miðborgina iða af lífi. Lífið á Vísi tók púlsinn á dagskránni í dag, föstudag, en af nægu er að taka. Lífið 5. maí 2023 08:00
María tekur við af Birni Sveinbjörns hjá NTC María Greta Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fataverslunarinnar NTC. Hún tekur við af Birni Sveinbjörnssyni sem verður fjármálastjóri NTC. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri félagsins síðan 2007. Viðskipti innlent 4. maí 2023 12:58
HönnunarMars í dag: Kvikmyndahátíð, stafræn listaverk og keppni í sjómann Reykjavíkurborg iðar af menningu þessa dagana í tilefni af HönnunarMars. Í dag, fimmtudag, felur dagskráin meðal annars í sér leiðsögn um íslenska hönnun og arkítektúr með Loga Pedro, opnun á kvikmyndahátíð Hönnunardeildar LHÍ, sjómanns keppni og tískupartý. Tíska og hönnun 4. maí 2023 08:00
Hanna kynlífstæki úr íslenskum jarðefnum: „Horfum á náttúruna sem elskhuga“ „Með gerð kynlífsleikfanga úr íslenskum leir og postulíni vörpum við fram róttækum leiðum til að endurtengjast umhverfi okkar,“ segja listakonurnar Antonía Berg og Elín Margot. Þær standa að verkefninu Fró(u)n þar sem þær skapa fyrstu kynlífstækin sem búin eru til úr íslenskum jarðefnum. Sýningin er partur af HönnunarMars. Menning 3. maí 2023 12:30
Til skoðunar að breyta nafni Hönnunarmars Stærsta hönnunarhátíð landsins, Hönnunarmars hefst í dag. Boðið verður upp á yfir hundrað sýningar víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Til greina kemur að breyta nafninu, enda hefur hátíðin ekki verið haldin í mars síðustu þrjú árin. Menning 3. maí 2023 11:50
HönnunarMars í dag: DesignTalks, kynlífsleikföng og pítsustund HönnunarMars hefst með pomp og prakt í dag við hátíðlega athöfn í Hörpu. Það verður ýmislegt listrænt og lifandi í boði næstu daga í tengslum við hátíðina en Lífið á Vísi fer fer hér í grófum dráttum yfir dagskrána fyrir daginn í dag. Menning 3. maí 2023 08:01
HönnunarMars hefst á morgun: 100 sýningar og 400 þátttakendur Opnunarhóf HönnunarMars fer fram á morgun, miðvikudaginn 3. maí, í Hörpu klukkan 17:00. Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs setja hátíðina með formlegum hætti og eru öll velkomin. Menning 2. maí 2023 14:00
Kisur, brúðarkjólar og glimmeraðir þvengir á Met Gala Stórstjörnur heimsins sameinuðust á listasafninu The Met í gærkvöldi, fyrsta mánudag maí mánaðar, í tilefni af Met Gala. Er um að ræða árlegan góðgerðarviðburð sem hefur fyrir löngu skráð sig í sögubækurnar sem einn stærsti og glæsilegasti tískuviðburður ársins. Tíska og hönnun 2. maí 2023 11:16
The House of Beauty fagnar fimm ára afmæli - glæsileg afmælistilboð The House of Beauty, ein vinsælasta heilsu- og líkamsmeðferðarstofa landsins, fagnar í dag fimm ára afmæli sínu í dag með glæsibrag. Stofan, sem hefur sinnt landsmönnum með hágæða þjónustu í hálfan áratug, fagnar þessum tímamótum með opnu húsi í dag frá kl. 13-16 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og glæsileg tilboð fyrir gesti og gangandi. Lífið samstarf 1. maí 2023 09:17
Svona var tískusýning útskriftarnema LHÍ Í kvöld fór fram útskriftarsýning fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands (LHÍ). Þar sýndu þeir níu nemendur sem útskrifast í vor þann klæðnað sem þeir hafa hannað á skólaárinu. Tíska og hönnun 29. apríl 2023 17:00
„Þú passar ekki endilega í gallabuxurnar þínar en þú passar alltaf í skóna þína“ Lífskúnstnerinn og menntaskólaneminn Sverrir Ingibergsson hefur gríðarlegan áhuga á tísku og elskar hvað hún getur verið breytileg. Hann hefur farið í gegnum ýmis tískutímabil, er óhræddur við að skera sig úr og er alls ekki hrifinn af kvartbuxum. Sverrir er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 29. apríl 2023 11:31
Virðist vera á leiðinni á Met Gala eftir allt saman Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kim Kardashian virðist vera á leiðinni á Met Gala á mánudaginn, þrátt fyrir háværar sögusagnir um að henni yrði ekki boðið á viðburðinn í ár. Lífið 28. apríl 2023 15:35
Hvað er í tísku í sumar? HÉR ER er lífsstíls- og tískuvefsíða sem er orðin partur af okkar daglega net-rúnti. Þar er auðvelt að fá innblástur, hugmyndir og ráð um allt sem tengist tísku, fegurð, hönnun og lífsstíl. Stílisti HÉR ER tók saman stærstu trendin í sumar, hér er brot af því besta. samstarf 28. apríl 2023 15:15
Breyta reynslu, minningum og tilfinningum í föt Útskriftarsýning Fatahönnunardeildar Listaháskóla Ísland 2023 fer fram í Norðulrjósasal Hörpu á morgun, laugardag, klukkan 18. Vísir verður í beinni útsendingu frá viðburðinum sem er einn stærsti tískuviðburður ársins. Lífið 28. apríl 2023 12:03