

Tíska og hönnun
Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.

Kisan kveður Laugaveg
Hjónin Olivier Brémond og Þórunn Anspach hyggjast loka versluninni Kisan við Laugaveg í desember. Ætla á móti að leggja meiri rækt við verslunarrekstur í New York og opna þar aðra búð á næstu árum.

Í samstarf við tískurisa
Íslenska fyrirtækið Kron by Kronkron er komið í samstarf við franska tískurisann Mariu Luisu um hönnun, framleiðslu og sölu á skóm. Opnar margar dyr segir annar eigendanna, Magni Þorsteinsson.

Svakalegir síðkjólar
Naeem Khan vorlínu fyrir árið 2012 má skoða hér...

Hönnun Lindu eftirsótt
Scintilla hönnun Lindu Bjargar Árnadóttur fagstjóra fatahönnunardeildar LHÍ, hefur ekki aðeins vakið athygli á Íslandi heldur einnig úti í hinum stóra heimi...

Steyptar borðplötur vinsælar núna
Steypan hefur verið vinsæl undanfarið. Steypan er ekki bara flott, heldur er hún ódýr og umhverfisvæn líka...

Selja eigin hönnun fyrir námsferð
Við vissum að það væri dýrt að fara út í starfsnám og ákváðum því að taka höndum saman og hanna töskur og boli til að selja og reyna þannig að fjármagna ferðina okkar út,“ segir Áslaug Sigurðardóttir, nemandi á fyrsta ári í fatahönnun í Listaháskóla Íslands. Áslaug og bekkjarsystur hennar munu selja vörurnar á opnum degi í skólanum á morgun.

Meðal fremstu hönnuða
"Ég er búin að vera inni í eina og hálfa viku, en þau höfðu samband við mig í haust,“ segir Sigrún Halla Unnarsdóttir fatahönnuður, en danska heimasíðan, www.muuse.com hefur valið útskriftarlínu Sigrúnar frá Kolding school of design til framleiðslu og dreifingu í Evrópu.

Skrautleg tíska í Peking
Tískuvikunni í Peking fyrir vor og sumar 2012 er nýlokið. Mercedes-Benz China Fashion Week, eins og hún heitir, stóð frá 24. október til 1. nóvember og kenndi þar ýmissa grasa. Fimmtíu tískufyrirtæki, rúmlega fjörutíu hönnuðir og 180 útskriftarnemar úr fatahönnun tóku þátt í vikunni.

Vorlína Prabal Gurung
Meðfylgandi má sjá Prabal Gurung vor og sumarlínuna 2012...

Sumarlína Paul Smith
Breski hönnuðurinn Paul Smith er þekktur fyrir sígild snið og litrík munstur...

E-Label snýr aftur á markað
Fyrirtækið hefur legið í dvala í smá tíma og við ákváðum þess vegna að selja það og gefa því nýtt líf,“ segir Heba Hallgrímsdóttir, fyrrverandi eigandi fatamerkisins E Label sem flestir tískusinnaðir Íslendingar ættu að kannast við.

Hús í London sem leynir á sér
Um er að ræða fjögurra hæða heimili í Notting Hill í London. Jarðhæð og þrjár hæðir. Látlaust húsið leynir svo sannarlega á sér séð utan frá...

Flökraði við þæfðri ull
Auður Karitas Ásgeirsdóttir, fatahönnuður og stílisti hjá ljósmyndastúdíóinu Magg, var ekkert hrifin af ull sem hráefni þegar hún var við nám. Gömul Álafossflík breytti því þó og nú er hún höfundurinn á bak við ullarflíkurnar í Geysi á Skólavörðustíg.

Hannar skó á hunda
Hinn litríki hönnuður Jeremy Scott hefur hannað skólínu fyrir Adidas og inniheldur hún meðal annars sérhannaða strigaskó fyrir hunda. Strigaskórnir eru hlébarðamunstraðir og reimaðir. Að auki inniheldur skólínan górillustrigaskó og hlébarðastrigaskó á okkur mannfólkið og eru þeir með litlu skotti að aftan. Hundaeigendur geta því von bráðar klæðst eins skóm og besti vinurinn. Það er annað mál hvort eitthvað af skópörunum muni seljast.

Veggfóður vinsælt
Vinsældir veggfóðurs hafa aukist undanfarin ár. Nú er samkeppnin orðin mikil og fólk óhrætt við að prófa nýjungar....

Bebe sumar 2012
Hvítur litur er allsráðandi í vor- og sumarlínu Bebe 2012 sem er létt og kvenleg eins og sjá má í myndasafni...

Ýkt flott og hræódýrt
Frystihúsaflísar, sundlaugaflísar eða hvað sem þið viljið kalla þær, þá eru þær komnar aftur inn. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndaalbúmi...

Brúðarkjólar Badgley Mischka
Meðfylgjandi myndir voru teknar baksviðs af vor- og sumarlínu brúðarkjóla Badgley Mischka fyrir næsta ár...

Tíminn í víðum skilningi
Vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir sýnir í hinu virta Triennale hönnunarsafni í Mílanó á Ítalíu. Þar tekur hún, ásamt fjölda þekktra listamanna, þátt í samsýningunni O‘Clock þar sem tíminn er leiðarstefið.

Heimili Donnu Karan
Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að íbúðin er stílhrein þar sem svart mætir hvítu. Hönnuðurinn er andlega þenkjandi með vellíðan og innra jafnvægi að leiðarljósi og þar kemur nuddbekkurinn, sem sjá má í myndasafni, eflaust að góðum notum...

Donna Karan vorlína 2012
Donna Karan fer nýjar leiðir í vor- og sumarlínu fyrir árið 2012 eins og sjá má í myndasafni.

Nett viðbót
Hugmyndin á bak við þessa nettu viðbót eftir X Architekten sem var hönnuð sem hluti af húsi í Austurríki gengur út á það að skapa nánari samskipti íbúa við náttúruna...

Svört snilld sem kostar lítið
Það er ótrúlegt hvað það breytir miklu að mála einn vegg svartan. Svarti veggurinn býr til ákveðna dramatík sem var kannski ekki fyrir, þegar allir veggir voru hvítir...

Vorlína Valentino 2012
Blúndur, margbrotinn útsaumur og vandaður saumaskapur var áberandi á sýningu Valentino fyrir vor/sumar 2012...

Vorlína Fendi 2012
Karl Lagerfeld sem stýrir tískuhúsinu Fendi sýndi nýju vor- og sumarlínuna í París á dögunum sem skoða má í myndasafni...

Svona gerir þú ofninn fallegri
Ofnar geta verið ansi leiðinleg fyrirbæri og ekki erum við öll svo heppin að hafa hita í gólfinu hjá okkur. En við þurfum nú samt á þeim að halda, sérstaklega á okkar yndislega landi þar sem getur orðið ansi kalt á vetrarkvöldum...

Hausttískan: Þykkt, loðið og hlýtt
Haustvörurnar flæða nú inn í tískuverslanir um allt land. Á tískupöllunum síðasta vetur mátti sjá mikið af fallegum, þykkum peysum, stórum úlpum og settlegum handtöskum. Föstudagur fór á stúfana og fann nokkrar fallegar flíkur fyrir haustið.

Uppáhaldsskórnir eru þægilegir og þykkbotna
Fatahönnuðurinn Sigríður María Sigurjónsdóttir, eða Sigga Mæja eins og hún er oftast kölluð, hefur skemmtilegan og persónulegan fatastíl.

Húsdýrin á hanka
Hani, krummi, hundur, svín er heiti nýrra snaga úr áli eftir þau Ólaf Þór Erlendsson og Silvíu Kristjánsdóttur. Snagana kynntu þau á HönnunarMars í Epal í vor og nú eru fyrstu eintökin komin í framleiðslu. Form sitt og nafn draga snagarnir af gamalli íslenskri þjóðvísu, en Ólafur og Sylvía vinna saman undir heitinu Hár úr hala.

Raf Simons slær aftur í gegn
Aðalhönnuður Jil Sander-tískuhússins, Raf Simons, hefur slegið í gegn enn og aftur með fallegri og tímalausri hönnun með vorlínunni 2012. Simons gæti þó verið á förum frá Jil Sander því sá orðrómur hefur heyrst að hann taki við af Stefano Pilati hjá Yves Saint Laurent.