Tíska og hönnun

Birta Björns hannar frá Barcelona

Birta Björns hefur loksins opnað vefverslun.
Birta Björns hefur loksins opnað vefverslun.
Hönnuðurinn Birta Björnsdóttir sem fluttist til Barcelona fyrr á árinu ásamt fjölskyldu sinni, færði viðskiptavinum sínar þær gleðifregnir í gær að hún væri búin að opna vefbúðina, juniformshop.com.

Hafa margir beðið spenntir eftir nýjungum frá Birtu en hún lokaði verslun sinni þegar hún fluttist út. Hefur söngkonan Hera Björk þó verið með til sölu nokkrar flíkur eftir Birtu undanfarið í versluninni Púkó og Smart á Laugavegi.

„Eins og er eigum við fá eintök afhverri flík en við erum að bæta á lagerinn í hverri viku, svo eru einnig væntanlegar fleiri nýjar vörur fyrir jólin. Ég mun svo reglulega setja inn nýjar myndir á næstu vikum," sagði Birta í tilkynningu sinni.

Spennandi verður að sjá hvort búsetan í Barcelona veiti Birtu nýjan innblástur.

Juniformshop.com

Birta í nýjustu hönnun sinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.