Tíska og hönnun

Í smekkbuxum við verðlaunaafhendingu

Þótti ósmekklegur í smekkbuxum.
Þótti ósmekklegur í smekkbuxum.
Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber vakti upp misjöfn viðbrögð er hann mætti í smekkbuxum að hitta forsætisráðherra Kanada, Stephen Harper, við formlega athöfn. Mörgum þótti ekki við hæfi að tónlistarmaðurinn mætti svona hverdagslega klæddur að hitta einn helsta ráðamann heimalands síns en Bieber bar fyrir sig að hann væri að fara beint upp á svið eftir athöfnina.

Undanfarið hefur Bieber verið að færa sig upp á skaftið í frumlegu fatavali en á amerísku tónlistarverðlaunin fyrr í mánuðinum vakti Bieber athygli í rauðum gaddaskóm og buxum með síðu klofi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.