Stórleikur í vesturbænum í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta með fjórum leikjum. Stórleikur kvöldsins verður án efa viðureign KR og Skallagríms í DHL höllinni. Njarðvík tekur á móti Hamri í Njarðvík, Haukar mæta Snæfelli og Þór Þorlákshöfn fær Grindavík í heimsókn. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og fylgst verður með gangi mála hér á Vísi. Körfubolti 26. október 2006 17:07
Mikil spenna í fyrstu umferðunum Það er óhætt að segja að fyrstu tvær umferðirnar í úrvalsdeild karla í körfubolta lofi góðu um framhaldið í vetur, því aldrei áður hefur verið eins mikil spenna á jafnmörgum vígstöðvum eftir tvær umferðir á miðað við núverandi keppnisfyrirkomulag. Körfubolti 26. október 2006 15:58
Öruggur sigur hjá KR-ingum KR-ingar gerðu góða ferð í Reykjanesbæ í gær og báru sigurorð af Keflvíkingum, 81-90. Keflvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti en KR-ingar sigu framúr og stóðu að lokum uppi sem öruggir sigurvegarar. Körfubolti 24. október 2006 06:00
KR lagði Snæfell í hörkuleik KR byrjaði leiktíðina með sigri í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið lagði Snæfell á heimavelli sínum 83-79. Heimamenn voru yfir nær allan leikinn, en gestirnir komust yfir þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka. Þá fékk Hlynur Bæringsson sína fimmtu villu og eftir það gengu KR-ingar á lagið og höfðu sigur. Körfubolti 20. október 2006 21:34
Tveir stórleikir í kvöld Fyrsta umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta klárast í kvöld þegar tveir stórleikir verða á dagskrá. Grannarnir Hamar/Selfoss og Þór eigast þá við í Þorlákshöfn og í DHL Höllinni mætast KR og Snæfell. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og rétt er að hvetja alla til að mæta á völlinn, enda verður eflaust hart barist á báðum vígstöðvum. Körfubolti 20. október 2006 17:28
Suðurnesjaliðin unnu leiki sína Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í kvöld. Suðurnesjaliðin unnu öll fyrstu leiki sína og þá unnu Haukar afar nauman sigur á nýliðum Tindastóls í Hafnarfirði. Körfubolti 19. október 2006 21:44
Deildarkeppnin hefst í kvöld með fjórum leikjum Keppni í úrvalsdeild karla í körfubolta hefst með látum í kvöld þegar fjórir leikir eru á dagskrá og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Íslandsmeistarar Njarðvíkur hefja titilvörnina í Seljaskóla gegn ÍR, Keflavík tekur á móti Skallagrími, Fjölnir fær Grindavík í heimsókn og þá taka Haukar á móti Tindastól. Körfubolti 19. október 2006 18:31
Keflavík lagði Skallagrím í spennandi leik Fyrsta umferð Iceland Express deildarinnar hófst í gær þegar Keflvíkingar mættu Skallagrímsmönnum í íþróttahúsinu við sunnubraut en báðum liðum hefur verið spáð góðu gengi í vetur. Leikurinn var jafn og æsispennandi allan tímann og fór í framlengingu en lyktaði með naumum sigri Keflvíkinga 87-84. Körfubolti 19. október 2006 05:00
Íslandsmeistararnir verja titla sína Í dag var haldinn árlegur blaðamannafundur fyrir upphaf leiks í úrvalsdeildum karla og kvenna í körfubolta og þar spá þjálfarar og fyrirliðar allra liða í deildunum í spilin fyrir komandi leiktíð venju samkvæmt. Njarðvík og Haukar munu verja titla sína ef marka má spár í dag. Sport 17. október 2006 17:44
Páll Axel safnaði mestu fé Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson safnaði mestu fé allra í gær þegar fram fóru úrslitaleikirnir í meistarakeppni KKÍ, en Iceland Express og Lýsing borguðu ákveðnar peningaupphæðir fyrir hverja troðslu og 3ja stiga körfu sem skoruð var í leiknum og rann upphæðin til heyrnadaufra barna. Körfubolti 16. október 2006 21:45
Ætlum að vinna allt í vetur Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður körfuknattleiksliðs Keflavíkur, segðist sáttur við sigurinn á Skallagrími í gærkvöldi þó leikmenn eigi enn eftir að slípa sig betur saman. Hann segir stefnu Keflvíkinga hiklaust setta á að vinna alla titla sem í boði eru í vetur og þar sé Evrópukeppnin engin undantekning. Körfubolti 6. október 2006 21:00
Njarðvík og Keflavík leika til úrslita Það verða grannarnir Keflvíkingar og Njarðvíkingar sem spila til úrslita í Powerade bikarnum í karlaflokki eftir að Njarðvíkingar skelltu KR 102-95 í skemmtilegum leik í Laugardalshöllinni í kvöld. KR-ingar höfðu frumkvæðið meira og minna fram í fjórða leikhluta, en Íslandsmeistararnir reyndust sterkari á lokasprettinum. Úrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn. Körfubolti 5. október 2006 22:42
Njarðvíkingar leiða í hálfleik Njarðvíkingar hafa nauma forystu gegn KR 47-45 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta í Laugardalshöll. Jeb Ivey er stigahæstur í liði Njarðvíkur með 12 stig og Friðrik Stefánsson hefur skorað 10 stig, en hjá KR er Jeremiah Sola að fara á kostum og er kominn með 19 stig. Körfubolti 5. október 2006 21:46
Keflvíkingar í úrslit Keflvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum í Powerade bikarnum í körfubolta með því að leggja Skallagrímsmenn 88-81í Laugardalshöll. Keflvíkingar höfðu undirtökin í fyrsta leikhluta en eftir að hafa verið undir fram í byrjun lokaleikhlutans, spýttu suðurnesjamenn í lófana og unnu sannfærandi sigur á Borgnesingum. Körfubolti 5. október 2006 20:37
Skallagrímur enn í forystu Borgnesingar hafa sex stiga forystu 66-60 eftir þrjá leikhluta í viðureign sinni við Keflvíkinga í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta en leikið er í Laugardalshöll. Klukkan 21 hefst síðari undanúrslitaleikurinn á sama stað og þar eigast við Njarðvík og KR. Körfubolti 5. október 2006 20:21
Skallagrímur yfir í hálfleik Skallagrímur hefur náð undirtökunum í undanúrslitaleik sínum við Keflavík í Powerade bikarnum í karlaflokki í kvöld. Borgnesingar hafa yfir 45-40 þegar flautað hefur verið til leikhlés í Laugardalshöllinni, en góður lokasprettur liðsins í öðrum leikhluta tryggði liðinu 5 stiga forystu í hálfleik. Síðar í kvöld mætast svo Íslandsmeistarar Njarðvíkur og KR. Körfubolti 5. október 2006 19:47
Keflavík yfir eftir fyrsta leikhluta Keflvíkingar hafa yfir 28-27 gegn Skallagrímsmönnum eftir fyrsta leikhlutann í viðureign liðanna í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta, en leikið er í Laugardalshöll. Leikurinn fer afar fjörlega af stað eins og stigaskorið ber með sér. Körfubolti 5. október 2006 19:27
Leikur Keflavíkur og Skallagríms að hefjast Fyrri undanúrslitaleikur kvöldsins í undanúrslitum Powerade-bikarsins í körfubolta hefst nú klukkan 19 í laugardalshöll en hér er um að ræða viðureign Skallagríms og Keflavíkur. Síðar í kvöld mætast svo Njarðvík og KR. Körfubolti 5. október 2006 19:01
Beljanski til Njarðvíkur Íslandsmeistarar Njarðvíkur hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í vetur, en félagið hefur gert eins ár samning við miðherjann Igor Beljanski sem lék með Snæfelli á síðustu leiktíð. Lið Njarðvíkur er því komið með þrjá sterka miðherja og veitir ekki af, enda er liðið að taka þátt í Evrópukeppninni í ár. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í dag. Körfubolti 5. október 2006 13:38
Undanúrslitin hefjast annað kvöld Í dag var haldinn blaðamannafundur vegna undanúrslitaleikjanna í karla- og kvennaflokki í fyrirtækjabikar KKÍ sem nefnist Powerade bikarinn að þessu sinni. Keppni þessi hefur verið árviss viðburður í tíu ár og ráðast úrslitin um næstu helgi í Laugardalshöllinni. Körfubolti 4. október 2006 17:00
KR burstaði Grindavík Það verða Njarðvíkingar, Keflvíkingar, Skallagrímsmenn og KR-ingar sem spila í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta eftir að þrjú síðastnefndu liðin tryggðu sér nokkuð örugga sigra í viðureignum sínum í átta liða úrslitunum í gær, sunnudag. Körfubolti 2. október 2006 01:11
Njarðvíkingar í undanúrslit Brenton Birmingham skorÍslandsmeistarar Njarðvíkur urðu í gærkvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Powerade bikarsins í körfubolta þegar liðið vann öruggan 20 stiga sigur á Hamri/Selfoss á heimavelli sínum 99-79. Körfubolti 1. október 2006 17:54
Haukar í átta liða úrslitin Haukar úr Hafnarfirði urðu í gærkvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Powerade bikarsins í körfubolta þegar liðið lagði ÍR 76-65 í Seljaskóla. Hreggviður Magnússon skoraði 19 stig fyrir ÍR og Rodney Blackstock setti 16, en Roni Leimu skoraði 22 stig fyrir Hauka og Kevin Smith setti 19 stig. Körfubolti 30. september 2006 17:03
ÍR mætir Haukum í kvöld Í kvöld klukkan 19:15 kemur í ljós hvort það verða ÍR-ingar eða Haukar sem verða síðasta liðið til að tryggja sér sæti 8-liða úrslitunum í Powerade bikarnum í körfubolta, en keppnin hófst í gær með þremur leikjum. Keppt var með breyttu sniði í ár og aðeins tólf lið tóku þátt. Átta liða úrslitin í keppninni hefjast svo með látum á morgun þegar Njarðvíkingar taka á móti Hamri/Selfoss í Njarðvík klukkan 19:15. Körfubolti 29. september 2006 18:15
Níels Dungal í Fjölni Bakvörðurinn Níels Páll Dungal hefur ákveðið að ganga í raðir Fjölnis í Iceland Express deild karla í körfubolta. Níels er 23 ára gamall og var lykilmaður hjá KR-ingum á síðustu leiktíð. Hann spilaði 26 mínútur að meðaltali í leik og skoraði um 9 stig að meðaltali. Þetta kemur fram á heimasíðu Fjölnis. Körfubolti 20. september 2006 18:30
Snæfell ræður bandarískan þjálfara Úrvalsdeildarlið Snæfells í körfubolta hefur ráðið til starfa bandarískan þjálfara að nafni Geof Kotila, sem kemur hingað til lands síðar í sumar og mun stýra liðinu næsta vetur. Kotila þessi hefur áður getið sér gott orð meðal annars í Danmörku, þar sem hann stýrði liði Bakken Bears. Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells. Sport 9. maí 2006 16:39
Benedikt tekur við KR Körfuknattleiksdeild KR gekk í dag frá þriggja ára samningi við Benedikt Guðmundsson sem mun taka við þjálfun karlaliðs félagsins af Herberti Guðmundssyni. Benedikt var áður hjá Fjölni í Grafarvogi, en hann er öllum hnútum kunnugur í vesturbænum. Sport 27. apríl 2006 14:28
Ivey verður áfram hjá Íslandsmeisturnum Leikstjórnandinn knái Jeb Ivey mun spila áfram með Njarðvíkingum næsta vetur en hann hefur gengið frá eins árs framlengingu á samningi sínum. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í dag. Ivey hefur um árabil verið einn allra besti leikmaður Iceland Express deildarinnar og eru þetta því góð tíðindi fyrir Íslandsmeistarana. Sport 25. apríl 2006 15:40
Sigurður áfram í Keflavík Keflvíkingar hafa framlengt samning við þjálfara sinn Sigurð Ingimundarson og mun hann því stýra liðinu áfram næsta vetur. Lið Keflavíkur olli nokkrum vonbrigðum í vor þegar það féll úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins, en þar á bæ þykir það ekki góður árangur. Keflvíkingar hafa þó ákveðið að blása til sóknar undir stjórn Sigurðar næsta vetur og ætla sér eflaust að endurheimta titilinn af grönnum sínum í Njarðvík. Sport 21. apríl 2006 14:11
Bárður tekur við ÍR Bárður Eyþórsson hefur gert fjögurra ára samning við körfuknattleiksdeild ÍR og mun sjá um þjálfun liðsins frá og með næsta vetri. Bárður hefur stýrt liði Snæfells undanfarin fimm ár með góðum árangri en er nú kominn í Breiðholtið og ætlar liðinu að vera í toppbaráttunni næsta vetur. Sport 21. apríl 2006 11:49