KR-ingar unnu Snæfellinga og fóru á toppinn KR-ingar fara með bros á vör upp í flugvélina til Kína eftir sex stiga sigur á Snæfelli, 97-91, í fyrsta leik ellefu umferðar Iceland Express deildar karla í DHL-Höllinni í kvöld. KR komst í efsta sæti deildarinnar með þessum sigri sem var öruggari en lokatölur gefa til kynna. Körfubolti 15. desember 2009 20:15
Tveir stórleikir í Keflavík Dregið var í dag í fjórðungsúrslit karla og kvenna í Subway-bikarkeppni karla. Leikirnir fara fram 16. og 17. janúar. Körfubolti 15. desember 2009 14:11
Dabney maður Stjörnuleiks karla Hamarsmaðurinn Andre Dabney var valinn maður leiksins í Stjörnuleik karla en glæsilegum Stjörnuleiksdegi KKÍ var að ljúka. Körfubolti 12. desember 2009 17:43
Magnús vann þriggja stiga keppnina Stórskyttan Magnús Þór Gunnarsson vann þriggja stiga keppnina sem fram fór á Stjörnuleiksdegi KKÍ í dag. Körfubolti 12. desember 2009 17:17
Davis marði Ólaf í troðslukeppninni Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson náði ekki að vinna troðslukeppnina í ár. Hann laut í lægra haldi gegn John Davis úr Ármanni eftir harða keppni. Körfubolti 12. desember 2009 17:13
Landsliðsmennirnir lögðu stjörnurnar Fyrrum landsliðsmenn í körfubolta lentu í litlum vandræðum með lið landsþekktra einstaklinga í skemmtileik sem fór fram fyrir stjörnuleik karla í dag. Landsliðið vann 12 stiga sigur, 39-27, en leikurinn var augljóslega í styttri kantinum. Körfubolti 12. desember 2009 16:47
Stjarnan á toppinn í Iceland-Express deildinni Stjarnan tyllti sér á topp Iceland-Express deildar karla í körfubolta í kvöld með góðum sigri á Hamarsmönnum. Körfubolti 4. desember 2009 20:45
Komast Stjörnumenn á toppinn í karlakörfunni í kvöld? Stjörnumenn geta komist á topp Iceland Express deildar karla vinni þeir Hamar í kvöld en þá fara þrír síðustu leikirnir fram í tíundu umferðinni. Stjarnan næði með sigri Njarðvík og KR að stigum en væru betri innbyrðis þar sem Garðbæingar hafa unnið báða leiki sína á móti toppliðunum. Körfubolti 4. desember 2009 17:15
Unnu með 34 stigum þegar Fannar var inn á KR-ingar sóttu tvö stig til Keflavíkur í gær þar sem þeir unnu fimmtán stiga sigur, 100-85. "Gömlu Keflvíkingarnir" Tommy Johnson og Fannar Ólafsson áttu báðir frábært kvöld en þeir skoruðu saman 52 stig í leiknum og hittu úr 19 af 25 skotum sínum sem gerir magnaða 76 prósent skotnýtingu. Körfubolti 4. desember 2009 14:15
Tommy Johnson: Góður afmælisdagur Tommy Johnson hélt upp á afmælið sitt í kvöld með góðri frammistöðu gegn hans gömlu félögum í Keflavík er KR vann þar góðan sigur, 100-85. Körfubolti 3. desember 2009 21:39
Páll: Öflugt að vinna í Keflavík Páll Kolbeinsson, þjálfari KR, sagði að það hefði verið öflugt hjá sínum mönnum að vinna sigur á sterku liði Keflavíkur á útivelli. Körfubolti 3. desember 2009 21:32
Hörður Axel: Erfitt að elta Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var vitanlega ósáttur við tap sinna manna fyrir KR á heimavelli í kvöld. Körfubolti 3. desember 2009 21:25
IE-deild karla: Úrslit og stigaskor Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla. Snæfell lagði Njarðvík í háspennuleik, KR lagði Keflavík og Breiðablik marði Fjölni. Körfubolti 3. desember 2009 21:04
Umfjöllun: KR vann mikilvægan sigur í Keflavík KR vann í kvöld sigur á Keflavík í hörkuspennandi leik, 100-85, í Iceland Express deild karla. Körfubolti 3. desember 2009 20:38
Vinna Njarðvíkingar sinn fyrsta deildarsigur í Hólminum frá 2003? Topplið Njarðvíkur í Iceland Express deild karla heimsækir Snæfellinga í Stykkishólm í kvöld en Njarðvíkingum hefur ekki gengið vel í deildarleikjum sínum í Hólminum síðustu sex tímabil. Snæfell er nefnilega búið að vinna sjö síðustu deildarleiki liðanna í Fjárhúsinu. Körfubolti 3. desember 2009 16:15
Hvernig koma kanalausir Keflvíkingar til baka á móti KR? Keflvíkingar fengu slæman skell á móti nágrönnum sínum í Njarðvík í síðasta leik sínum í Iceland Express deild karla og ráku í kjölfarið kanann sinn Rashon Clark. Keflvíkingar fá tækifæri til að endurvekja stoltið þegar þeir taka á móti Íslandsmeisturum KR í Toyota-höllinni í Keflavík klukkan 19.15 í kvöld. Körfubolti 3. desember 2009 15:15
Keflvíkingar búnir að reka kanann sinn í körfunni Keflvíkingar sögðu í gær upp samningi sínum við Bandaríkjamanninn Rahshon Clark og mun lið þeirra spila án Bandaríkjamanns í næsta leik sem verður á móti KR í Toyota-höllinni á fimmtudaginn. Rahshon Clark var með 18,9 stig og 10,8 fráköst að meðaltali í leik. Körfubolti 2. desember 2009 10:30
Hlynur með bestu frammistöðuna í 9. umferð Snæfellingurinn Hlynur Bæringsson var með hæst framlag allra leikmanna Iceland Express deildar karla í 9. umferð sem lauk í gær. Hlynur fékk 35 í framlagseinkunn fyrir leik Snæfells í Grindavík en það dugði þó ekki Hólmurum sem töpuðu með einu stigi, 94-95, eftir framlengdan leik. Körfubolti 1. desember 2009 17:15
Gerðu sverð nágrannanna að sakleysislegum kústsköftum Jóhannes Kristbjörnsson, fyrrum körfuboltamaður, skrifar reglulega skemmtilega pistla á heimasíðu körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur og hann var enn á ný á ferðinni eftir frábæran sigur Njarðvíkur í toppslag Iceland Express deildarinnar í gær. Körfubolti 1. desember 2009 15:45
Guðjón: Mér fannst við bara vera kraftlausir „Við vorum bara skítlélegir og það var ömurlegt að horfa upp á þetta. Það er í raun það eina sem mér dettur í hug að segja núna,“ sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, eftir 76-63 tap liðsins í Suðurnesjaslag gegn Njarðvík í Iceland Express-deild karla í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Körfubolti 30. nóvember 2009 23:00
Sigurður: Varnarleikurinn var frábær allan leikinn „Ég er mjög sáttur með sigurinn. Varnarleikurinn var frábær hjá okkur allan leikinn en það komu leikkaflar þar sem við vorum ekki að gera nógu vel í sókninni en í heildina litið er ég mjög sáttur með okkar leik,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur í leikslok eftir 76-63 sigur liðs síns gegn Keflavík í toppbaráttuslag Iceland Express-deildar karla í kvöld. Körfubolti 30. nóvember 2009 22:43
Marvin með 35 stig í sigri Hamars á Breiðabliki Marvin Valdimarsson skoraði 35 stig í mikilvægum ellefu stiga sigri Hamars á Breiðabliki, 89-78, í Hveragerði í Iceland Express deild karla í kvöld. Hamarsmenn lögðu grunninn að sigrinum með góðum þriðja leikhluta sem þeir unnu 28-15. Körfubolti 30. nóvember 2009 21:08
Njarðvík með öruggan sigur gegn Keflavík Njarðvík vann 76-63 sigur gegn Keflavík í sannkölluðum toppslag í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Körfubolti 30. nóvember 2009 20:46
KR-ingar frusu í fjórða leikhlutanum og Stjarnan vann Stjarnan vann fimm stiga stiga sigur á Íslandsmeisturum KR, 78-73, í DHl-höllinni í kvöld. Stjörnumenn sýndu mikinn styrk í lok leiksins og unnu sig til baka inn í leikinn eftir að hafa lent mest tíu stigum yfir í þriðja leikhlutanum. Körfubolti 30. nóvember 2009 19:59
Benedikt spáir í leiki kvöldsins: Væri til í að sjá alla þessa þrjá leiki Vísir fékk Benedikt Guðmundsson, þjálfara toppliðs KR í Iceland Express deild kvenna til þess að spá fyrir um þrjá leiki í karladeildinni í kvöld. Allt eru þetta leikir sem geta ráðið miklu um endanlega stöðu liðanna í deildinni. Körfubolti 30. nóvember 2009 15:45
Tveir toppbaráttuleikir í körfunni í kvöld Það verða tveir toppbaráttuleikir í Iceland Express deild karla í kvöld þegar tvö efstu liðin og erkifjendurnir í Njarðvík og Keflavík mætast í Ljónagryfjunni í Njarðvík á sama tíma og Íslandsmeistarar KR taka á móti bikarmeisturum Stjörnunnar í DHL-höllinni. Körfubolti 30. nóvember 2009 14:45
Björn Steinar tryggði Grindavík sigur í framlengingu Grindavík vann í kvöld nauman sigur á Snæfelli á heimavelli í framlengdum leik í Iceland Express-deild karla, 95-94. Körfubolti 29. nóvember 2009 21:04
Öruggur sigur KR KR vann öruggan nítján stiga sigur á Haukum á Ásvöllum í Iceland Express deild kvenna í kvöld, 81-62. Körfubolti 29. nóvember 2009 20:44
Sigurður og Guðjón völdu báðir íslenskan leikmann fyrst Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur og Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, hafa nú lokið við að velja Stjörnuliðin sín fyrir árlegan Stjörnuleik Karla sem fer fram í Dalhúsum Grafarvogi 12. desember næstkomandi. Körfubolti 26. nóvember 2009 14:45
Teitur: Gefur okkur auka kraft „Þetta var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur eftir tvo tapleiki á undan. Við áttum möguleika í Grindavík um daginn en spiluðum illa gegn Tindastóli hérna heima," sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigurinn á Njarðvík í kvöld. Körfubolti 23. nóvember 2009 22:24