Nashyrningar í krossaprófi Í spurningaspili sem ég spilaði sem krakki kom eftirfarandi spurning ítrekað upp úr bunkanum: "Hvort sjá nashyrningar eða heyra betur?” Skoðun 9. nóvember 2012 06:00
Jóhönnulánin Það liggur fyrir að þeir sem tapað hafa mestu af eigin fé í húsnæði sínu eru þeir sem keyptu sína fyrstu íbúð eða stækkuðu við sig á árunum 2007 og 2008. Skoðun 8. nóvember 2012 06:00
Stuðningsgrein: Af hverju Árna Pál? Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkur á Íslandi. Hún hefur verið í ríkisstjórn í á hálft sjötta ár. Á þeim tíma hefur allt gerst. Allt sem var óhugsandi – og á ég þar bæði við hrunið og uppbygginguna í kjölfar þess. Þessi tími hefur reynt mjög á og það standa opin sár í hreyfingu jafnaðarmanna. Skoðun 5. nóvember 2012 06:00
Happdrættiseftirlit ríkisins Stundum eru nafngiftir opinberra stofnana þannig að halda mætti að einhver hefði lesið bókina 1984, séð þar nöfnin „Sannleiksráðuneyti" og „Friðarráðuneyti" og hugsað með sér: „Þetta er sniðugt. Gerum eins." Fastir pennar 2. nóvember 2012 08:00
Hæstaréttardómur yfir vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar Nýfallinn dómur hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka er áfellisdómur yfir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og eftirlitsstofnunum á fjármálamarkaði. Dómurinn er sigur fyrir lántakendur en jafnframt mikill álitshnekkir fyrir ríkisstjórnina sem brást heimilum og fyrirtækjum alvarlega í þessu máli og kaus að gæta hagsmuna fjármálafyrirtækja. Skoðun 1. nóvember 2012 08:00
Fjölskyldan í forgang á Forvarnardaginn Miðvikudaginn 31. október er Forvarnardagur Íslands, hann er haldinn til að minna okkur á að unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Áralangar íslenskar rannsóknir sem unnar hafa verið þar sem áhættuhegðun unglinga hefur verið könnuð sýna það og einnig að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf falla mun síður fyrir fíkniefnum og því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau verði fíkniefnum að bráð. Skoðun 30. október 2012 12:45
Launamerkið Í auknum mæli skreyta fyrirtæki sig umhverfismerkjum. Það er bæði þarft og snjallt. Eins eru félög í meiri mæli farin að huga að hollustuþáttum í ímynd sinni, svo og vottun um réttindi vinnuafls, uppruna hráefnis og sanngjörn viðskipti. Allt er þetta vel. Skoðun 30. október 2012 08:00
Bindandi bindandi Þegar Alþingi samþykkti, fyrir rúmum fimm mánuðum, að boða til ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs ályktaði meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins með eftirfarandi hætti um framhald málsins: Fastir pennar 26. október 2012 06:00
Kaliforníuvæðing Kalifornía væri áttunda stærsta hagkerfi heims væri hún sjálfstætt ríki. Með sinn blómlega hátækni- og afþreyingariðnað ætti fylkið að hafa allar forsendur til að vera í ágætum málum fjárhagslega. Reyndin er hins vegar önnur. Kalifornía veður í skuldafeni. Um það eru flestir sammála. Það eru ekki allir jafnsammála um ástæðurnar en beint lýðræði er þó oftar en ekki nefnt sem skýring. Fastir pennar 19. október 2012 06:00
Það verður ekkert lagað seinna Þorvaldur Gylfason hélt því fram í Kastljósinu á þriðjudag að verði fyrstu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni um drög stjórnlagaráðs svarað játandi af meirihluta kjósenda þá geti Alþingi ekki annað en samþykkt drögin óbreytt sem nýja stjórnarskrá. Þetta er auðvitað ekki þannig. En það er samt ansi líklegt að þetta verði þannig. Fastir pennar 12. október 2012 00:00
Hvað er í húfi 20. október? Þann 20. október fer fram mikilvægasta þjóðaratkvæðagreiðsla lýðveldistímans. Þá mun þjóðin kveða upp úr með það hvort endurskoðun stjórnarskrárinnar eigi að byggja á því frumvarpi sem stjórnlagaráð skilaði af sér – eða ekki. Skoðun 10. október 2012 00:00
Leifur og jakkafötin Leifs heppna Eiríkssonar er minnst í Bandaríkjunum í dag, en um árabil hefur 9. október verið nefndur Dagur Leifs heppna þar í landi. Að þessu leyti hefur Leifi verið gert jafn hátt undir höfði og Kristófer Kólumbusi, sem drap niður fæti í Ameríku 500 árum síðar og á einnig sinn dag á hinu bandaríska dagatali. Þótt Leifur sé stundum ranglega talinn Skoðun 9. október 2012 06:00
Betri rammi um krónuna Skýrsla Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum er nýr grundvöllur umræðu um framtíð krónunnar, upptöku evru og nýja peningastefnu fyrir heimili og fyrirtæki. Það er, ef fólk hefur áhuga á upplýstri og yfirvegaðri opinberri umræðu um þau mál. Skýrslan er gríðarstórt plagg en ég hvet alla til þess að kynna sér efni hennar í stórum dráttum, t.d. Skoðun 8. október 2012 06:00
Hvernig gengur með Orkuveituna? Næsta ár er erfiðasta árið í fjármögnun Orkuveitunnar skv. fimm ára aðgerðaráætlun eigenda sem samþykkt var til bjargar fyrirtækinu fyrir hálfu öðru ári. Þá greiðir OR niður lán sem nemur 25 milljörðum króna. Þetta er stærsti áfangi í lækkun skulda skv. Skoðun 6. október 2012 06:00
Að tala niður gjaldeyrishöftin Eflaust má velta því fyrir sér frá einhverjum vinkli hvað heppilegt sé að pólitíkusar og seðlabankamenn segi um gjaldmiðilinn. En athyglisverða spurningin í þessu er auðvitað ekki "Hvað má segja?“ heldur "Hvað er satt?“ Ef keisarinn er nakinn þá er hann nakinn, sama þótt það kunni að vera óheppilegt fyrir mannorð hans. Það að til séu stjórnmálamenn sem skipta vilji krónunni út fyrir annan gjaldmiðil er ekki hennar stærsta vandamál. Fastir pennar 5. október 2012 00:30
60 ára stjórnmálasamband Um helgina var sagt frá því að miðar á tónleika Þýsku Fílharmóníunnar í Hörpu hefðu selst upp á fáeinum mínútum. Það kemur engum á óvart. Hljómsveitin hefur mjög lengi verið á heimsmælikvarða. Hún heldur þeim kvarða uppi. Sama má segja um fjölmarga þætti þýskrar menningar, ekki síst þeirrar mikilvægu menningar sem kallast verkmenning. Skoðun 3. október 2012 06:00
Gamalt hafnarsvæði. Nýtt skipulag Á ljósmyndum sést að miðborg Reykjavíkur var hafnarborg lengst af á 20. öldinni. Þar áður hafnlaust sjávarpláss. Götur og sund teygja sig alveg að sjónum og húsin standa á hafnarbakkanum. Landfyllingar, plássfrek hafnsækin starfsemi og hönnun Geirsgötu sem hraðbrautar rufu þessi tengsl borgar og hafnar. Skoðun 29. september 2012 06:00
Gjald er ekki refsing Mér er ekki sérstaklega illa við að borga fyrir hluti. Þess vegna fer það í taugarnar á mér þegar menn geta ekki rætt um eðlilega verðlagningu á þjónustu öðruvísi en á þeim forsendum að verið sé að "refsa fólki“. Ég vil ekki "refsa fólki“ fyrir að leggja bílnum niðri í miðbæ, ég vil bara að fólk borgi fyrir það. Ég vil heldur ekki "refsa fólki“ fyrir að taka strætó, þótt ég vildi ég gjarnan sjá fólk borga meira fyrir það. Ég er raunar sannfærður um að það myndi gera strætó betri. Fastir pennar 28. september 2012 06:00
"Til þjóðarinnar með þetta“ Nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunarkerfisins. Óháð skoðun manna á kvótakerfinu er þetta dæmi um það sem gerst getur ef stjórnmálamenn fá þjóðaratkvæðagreiðsluvopnið í hendurnar: Þeir nota það til að firra sig ábyrgð og vinna eigin stefnumálum fylgi. Er til betri leið til að ýta málum af strandstað en sú að "spyrja þjóðina álits“? Fastir pennar 21. september 2012 06:00
Setjum markið hátt Þróunaraðstoð hefur óneitanlega sérstöðu meðal þeirra málaflokka sem Alþingi fjallar um. Kemur þar margt til. Þau verkefni sem sinnt er hverju sinni eru í fjarlægum löndum, á svæðum þar sem mannlífið og þjóðfélagsgerðin er mjög frábrugðin því sem við eigum að venjast. Þá er það mikið álitamál með hvaða hætti við eigum að skipta framlögum milli verkefna sem við höfum beina aðkomu að og þeirra sem rekin eru í samstarfi margra þjóða, eins og t.d. undir regnhlíf Sameinuðu þjóðanna. Það er sérstakt fræðasvið hvernig best megi tryggja að fjármunir til þróunaraðstoðar skili tilætluðum árangri. Skoðun 18. september 2012 06:00
Stefnumót mitt við LÍN Fyrir þremur árum hóf ég nám við Óslóarháskóla. Í gegnum námið hef ég kynnst verklagi LÍN við veitingu námslána. Margar úthlutunarreglur LÍN eru alls ekki nægilega vel útfærðar og vil ég nefna tvö dæmi því til stuðnings. Skoðun 18. september 2012 06:00
Draumur um margs konar mjólk Um daginn las ég frétt um að "mjólkin“ seldist óvenju vel. Það er kannski dálítið táknrænt að hér á landi megi með góðri samvisku setja ákveðinn greini á mjólkina, því það er eiginlega bara ein ákveðin til. Fastir pennar 14. september 2012 06:00
Landspítalinn og Hringbraut Óli Kristján Ármannsson blaðamaður skrifaði í ritstjórnargrein helgarútgáfu Fréttablaðsins að Landspítalinn ætti ekki heima í miðbænum, þar sem hann er nú. Skoðun 11. september 2012 06:00
Gráðuga dagmamman Í fréttum vikunnar var þetta helst: Til eru foreldrar sem vilja borga mikið fyrir að vera með barnið hjá dagmömmu. Fyrir vikið fá sumar dagmömmur mikið borgað. Hjá Kópavogsbæ er leitað leiða til tækla þetta vandamál. Fastir pennar 7. september 2012 06:00
Yfirlýsing frá samtökum tölvuleikjaframleiðenda Ef byrjað hefði verið að fjöldaframleiða tölvuleiki nokkrum áratugum fyrr og aðrar venjur hefðu skapast um dreifingu þeirra værum við kannski í dag að lesa yfirlýsingar eins og þessa: Fastir pennar 31. ágúst 2012 06:00
Ef þið hagið ykkur ekki almennilega Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi sagði á blaðamannafundi að það yrði engin menningarnótt 2013 ef fólk lærði ekki að haga sér almennilega. Þetta var haft eftir honum í Reykjavík – Vikublaði síðastliðinn föstudag. Fastir pennar 24. ágúst 2012 06:00
Ólympíuandinn svokallaði Þegar ég heyri orðið "Ólympíuandi“ sé ég ósjálfrátt fyrir mér sárþjáðan, haltrandi íþróttamann að reyna að klára hlaup undir dynjandi lófataki áhorfenda. Með aukinni þátttöku almennings í íþróttum er reyndar vonandi kominn meiri skilningur á því að það er ekkert sérlega skynsamlegt að menn reyni að staulast í mark í 800 metra hlaupinu með tognað læri. Enginn íþróttamaður á Ólympíuleikunum ætti að þurfa að sanna að hann geti að hlaupið tvo hringi í kringum hlaupabrautina. Fastir pennar 10. ágúst 2012 06:00
"Er þetta ekki örugglega nóg?“ Ein af fjölmörgum dellum íslenskrar áfengisstefnu byggði á þeirri kenningu að ef menn væru neyddir til að kaupa meira áfengi í einu þá myndu þeir drekka minna af því. Þannig máttu Íslendingar lengi minnst kaupa sex bjóra í einni búðarferð. Líklegast byggðist þetta á þeirri hugsun að ef menn hækka upphafshæðina í hástökki þá muni færri reyna að stökkva yfir. Sem sagt: Það væri dýrara að kaupa heila kippu en einn bjór og stykkjasölubannið hindraði því dagdrykkju. Fastir pennar 3. ágúst 2012 12:00
Skuldasöfnun Jóhönnu Sigurðardóttur Fyrir skemmstu birtist ríkisreikningur fyrir árið 2011. Samþykkt fjárlög höfðu gert ráð fyrir 46 milljarða halla. Niðurstaðan varð hins vegar 90 milljarðar. Skoðun 2. ágúst 2012 06:00
Árangur hverra og fyrir hverja? Umræða undanfarinna daga um stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði gefur tilefni til að benda á nokkrar staðreyndir. Umræðan er mikilvæg vegna þess að tækifæri Íslands eru líklega meiri en nokkurs annars lands en samt eigum við á hættu að glata þeim. Saga undanfarinna ára undirstrikar þetta. Skoðun 2. ágúst 2012 06:00
Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun
Haukur Arnþórsson og misskilningur hans um hæfi Sigurjóns Þórðarsonar Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun