Reykjavík þarf Regínu Regína Ásvaldsdóttir skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Regína var nú síðast farsæll bæjarstjóri í Mosfellsbæ og náði þar framúrskarandi árangri í rekstri og þjónustu við bæjarbúa en ánægja íbúa Mosfellsbæjar mældist sú hæsta á landinu árið 2025. Skoðun 14. maí 2026 17:32
Áfram og upp Sterk fylgni er á milli þess hvernig fólk upplifir nærsamfélagið sitt og hvernig það kýs. Rannsóknir sýna að þau sem telja hverfið sitt vera í niðurníðslu, þjónustuna vera að versna og öryggi að minnka, líður eins og kerfið hafi brugðist þeim. Þetta á við um allt. Um biðlista á leikskólum. Um húsnæði sem er myglað og ekki lagfært. Um samgöngur sem virka ekki. Tilfinningin er að það sé enginn að hlusta. Og þannig verður til sterkur hvati til að kjósa þau sem segjast ætla að brjóta allt niður, þau sem eru nógu stóryrt í sínum yfirlýsingum og helst sjokkerandi líka, í þeirri veiku von að þetta sama fólk geti búið til eitthvað sem virkar betur. Sveitarstjórnarstigið gegnir lykilhlutverki í því að snúa þessari upplifun við. Þar finnur fólk fljótt hvort samfélagssáttmálinn haldi. Skoðun 14. maí 2026 14:01
Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Einkavæðing og sala á eignum sveitarfélaga hefur borið töluvert á góma nú í aðdraganda kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn hélt nýlega blaðamannafund og kynnti tillögur um að ríkið selji 40% hlut í Landsneti og 40% hlut í RARIK og formaður flokksins hefur talað fyrir því að ráðist verði í sölu á stórum hlut í Landsvirkjun til einkaaðila. Skoðun 14. maí 2026 13:30
Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Það hefur verið stórfurðulegt að fylgjast með opinberri umræðu undanfarið um skóla- og menntamál. Þegar áhyggjur vakna af námsárangri, líðan barna eða stöðu menntakerfisins virðist umræðan enda í því að kennarar eru ábyrgir fyrir öllu því sem fólk telur að hafi misfarist. Skoðun 14. maí 2026 13:00
Þetta gerðum við á 15 mánuðum Nýr meirihluti Samfylkingar, Pírata, Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs , Sósíalista og Flokks fólksins tók við stjórn Reykjavíkur eftir pólitíska yfirplottun oddvita Framsóknarflokksins snemma árs 2025. Um var að ræða fyrsta fimm flokka meirihlutann í sögu borgarinnar, sem tók við krefjandi aðstæðum í borgarsjóði, húsnæðismarkaði, leikskólamálum og innviðauppbyggingu.Þrátt fyrir efasemdir um stöðugleika samstarfsins hefur meirihlutinn á 15 mánuðum komið fjölda stórra mála áfram í framkvæmd og afgreiðslu. Fleiri tillögur hafa verið lagðar fram og afgreiddar í borgarstjórn á þessu tímabili en samanlagt á þremur árum þar á undan. Frá upphafi var jafnframt lögð áhersla á virka dagskrá og stöðuga framvindu mála á hverjum fundi. Skoðun 14. maí 2026 08:11
Hildur. Borgarstjórinn okkar Litrík húsþökin og nándin við fjöllin og sjóinn gefa Reykjavík sinn einstaka brag. Hún er borg sem hefur sinn eigin tón en er alls ekki einsleit, ekki frekar en fólkið sem í henni býr. Skoðun 14. maí 2026 07:21
Hestar í höfuðborginni Að stíga á bak er dásamleg tilfinning. Hestar eru fallegar skepnur og nálægðin við þá fyllir mann af einhvers konar náttúrukrafti.Við eigum að vera mjög stolt af því að Reykjavík sé ein fárra höfuðborga í heiminum þar sem hestamennska blómstrar í návígi við byggðina. Þessi einstaka menningararfleifð og íþróttastarfsemi stendur hins vegar frammi fyrir áskorunum sem kalla á skýra framtíðarsýn af hálfu borgaryfirvalda. Skoðun 13. maí 2026 11:17
Byggjum meira félagslegt húsnæði í Reykjavík Í vikunni samþykkti borgarstjórn mikilvægar aðgerðir til að styrkja uppbyggingu félagslegs húsnæðis í Reykjavík. Skoðun 13. maí 2026 09:10
Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Nú heyrist víða fullyrt að „Samfylkingin þurfi frí“ frá stjórn Reykjavíkurborgar. Klárlega geta fylgt áskoranir langvarandi setu við völd og mikilvægt og vera meðvituð um þær. En þá þarf að ræða líka kostina við samfellu við stjórn. Skoðun 13. maí 2026 08:52
Börnin í Laugardalnum eiga betra skilið Flestir landsmenn líta á Laugardalinn sem Mekka íþrótta á Íslandi og ég er svo sannarlega einn af þeim. Skoðun 13. maí 2026 08:42
Þegar við höfnuðum „Viljandi villt“ Borgin okkar er frábær og hún á það skilið að skarta sínu fegursta. Sumarborgin Reykjavík á alltaf að vera í sparidressinu, þannig að bæði íbúar og gestir geti notið hennar til hins ýtrasta. Skoðun 13. maí 2026 06:01
Stolt framtíð í Kópavogi Ég verð á hverjum degi vör við það mikla stolt sem íbúar í Kópavogi bera til samfélagsins okkar. Það er töluverð innstæða fyrir því stolti, því Kópavogur er öflugur, vaxandi og vel rekinn bær þar sem lögð er áhersla á þjónustu og lífsgæði íbúa. Þetta stolt er drifkrafturinn í okkar starfi og áminning um að þær ákvarðanir sem við tökum í dag móta líf þeirra kynslóða sem á eftir koma. Skoðun 12. maí 2026 11:11
Framsókn vill vinna gegn einmanaleika Einmanaleiki er ein mesta meinsemd nútíma samfélags. Skoðun 12. maí 2026 10:12
Jafnrétti í Reykjavík Í borgarstjórnarkosningunum sem fram fara á laugardaginn er tekist á um það hvort við eigum að styrkja þá innviði sem hafa fært konum aukið frelsi og öryggi – eða veikja þá með niðurskurði, markaðsvæðingu og tillögum sem ýta konum aftur inn á heimilin. Skoðun 12. maí 2026 09:01
Samfylkingin vill byggja átta nýja leikskóla og bæta mönnun Samfylkingin hefur leitt leikskólauppbygginguna í borginni undanfarin átta ár og vill halda því áfram af fullum krafti. Skoðun 12. maí 2026 08:31
Umsóknum um vernd fækkað um 60% Þegar ég tók við embætti dómsmálaráðherra blasti við stefnuleysi í útlendingamálum. Skoðun 12. maí 2026 07:40
„Gefum þeim frí – það er best fyrir alla“ Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 1994 var áberandi í orðræðu frambjóðenda og stuðningsmanna R-listans að kominn væri tími á að gefa Sjálfstæðismönnum frí eftir langa valdasetu í borginni. Skoðun 12. maí 2026 06:02
Samfylkingin vill bæta starfsaðstæður í leikskólum Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Á sama tíma er hann lykilþjónusta í daglegu lífi fjölskyldna. Þetta ætlum við að viðurkenna með því að ná saman við ríkið um að lögfesta rétt barna til leikskólavistar. Skoðun 11. maí 2026 07:33
Byggjum af skynsemi á Keldnalandi Keldnalandið svokallaða er mögulega besta byggingaland á höfuðborgarsvæðinu. Hvern dreymir ekki um að eignast hús í fallegri suðurhlíð með náttúrufegurð Grafarvogs í túnfætinum? Skoðun 11. maí 2026 06:01
Börn og kennarar geta ekki beðið lengur Við vitum hvað þarf að gera. Hugmyndirnar liggja fyrir, tillögurnar eru til, fagþekkingin er til staðar. Það sem vantar er pólitískur vilji til að klára málin. Það er einfaldlega óásættanlegt að ár eftir ár ræðum við sama úrræðaleysið í skólakerfinu án þess að gripið sé til raunverulegra aðgerða. Skoðun 10. maí 2026 09:01
Borg óttans Reykjavík hefur stundum verið kölluð borg óttans af fólki af landsbyggðinni, yfirleitt í léttum tón. En því miður þá er staðan sú að þessi lýsing á Reykjavík er smátt og smátt að stefna í að vera réttnefni. Skoðun 9. maí 2026 19:46
Mennt er máttur í Garðabæ Eitt helsta verkefni sveitarfélaga er að móta framtíðina og skapa börnum og ungmennum traust umhverfi og tækifæri til að þroskast og mennta sig. Skólakerfið er lykilþjónusta sem styður við fjölskyldur með faglegri og traustri þjónustu í síbreytilegu samfélagi. Skoðun 9. maí 2026 16:00
Samgöngur fyrir börn Borg sem er hugsuð út frá þörfum barna er borg sem virkar fyrir okkur öll. Börn þurfa ekki síður en fullorðnir að komast leiðar sinnar með öruggum og fljótlegum hætti hvort sem það er innan hverfisins eða á milli hverfa. Skoðun 9. maí 2026 07:02
Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Í Svíþjóð hefur ríkisstjórnin boðað umfangsmestu umbætur í menntamálum þar í landi í þrjá áratugi. Hvað felst í þessum umbótum og hvernig ríma þær við hugmyndir sem hafa að undanförnu verið í umræðunni hér á landi? Skoðun 7. maí 2026 15:32
Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Ein fyrsta minningin mín er þegar ég var um það bil meter á hæð út á skólalóð Seljaskóla að reyna hitta ofan í körfu sem á þeim tíma virtist vera að minnsta kosti tíu metra há. Skoðun 7. maí 2026 12:30
Reynsla Íslands á erindi við umheiminn Við Íslendingar vitum hvernig það er að berjast við náttúruna. Þess vegna skiptir saga Íslands máli langt út fyrir okkar eigin landamæri. Skoðun 7. maí 2026 11:00
Skólarnir eru hjarta Hafnarfjarðar Skólamál eru eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélaganna. Í skólunum mótast framtíðin, þar læra börnin okkar að lesa, reikna og skapa en ekki síður að vera hluti af samfélagi, eignast vini, takast á við áskoranir og finna styrkleika sína. Skoðun 7. maí 2026 07:40
Enginn treystir kerfinu: Stefna meirihlutans í Reykjavík hefur brugðist Á dögunum fór fram pallborðsumræða á vegum Leigjendasamtakanna þar sem fulltrúar allra framboða til borgarstjórnarkosninga sátu fyrir svörum. Ein spurning stóð upp úr, einföld en afdráttarlaus. Skoðun 7. maí 2026 07:32
Gerum betur í Mosfellsbæ Það er gott að búa í Mosfellsbæ. Við erum umlukin einstakri náttúru og er aðgengi að henni með því besta sem gerist. Tækifærin til íþrótta- og tómstundaiðkunar í bænum eru mýmörg og fjölbreytt, hvort sem litið er til Aftureldingar, golfklúbbsins, hestamannafélagsins eða annarra félaga. Skoðun 6. maí 2026 16:03
Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Leikskólamálin eru eitt stærsta hagsmunamál barnafjölskyldna í borginni og íslensks samfélags alls. Þau samfélög sem standa vel efnahagslega og eru framarlega í jafnréttismálum eiga það sammerkt að hafa fjárfest í leikskólastiginu. Eftir barneignir verða foreldrar að eiga þess kost að komast aftur til vinnu og börn þurfa faglegt og öruggt umhverfi til að þroskast áfram. Skoðun 5. maí 2026 13:02
Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson Skoðun