Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar 6. september 2026 13:00 „Mér finnst eins og þeir sem eiga allt hafi unnið þótt ég sé nokkuð viss um að þetta hafi verið rétt niðurstaða fyrir Ísland,“ sagði kona við mig á förnum vegi. Ég varð hugsi yfir þessu og smám saman varð mér ljóst að fleiri voru sömu skoðunar. Önnur kona, sem einnig kaus nei, sagðist vilja að Íslendingar leystu málin sjálfir, án Brussel. Um leið óttaðist hún að þeir sem höfðu mestan hag af baráttunni gegn aðild hefðu takmarkaðan áhuga á þeim breytingum hér heima sem hún vildi sjá. Loks hitti ég hjón sem kusu já. Þau töldu að tækifærið til að sjá samning hefði verið tekið af þeim og upplifðu að aðdragandi kosninganna hefði ekki verið sanngjarn. Öll voru þau sátt við atkvæði sitt, en jafnframt hugsi yfir ferðalagi þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Ekki endilega vegna niðurstöðunnar sjálfrar, heldur vegna þess sem aðdragandinn leiddi í ljós um vald og hvernig við förum með það í samfélaginu, ekki síst í tengslum við hagsmuni, fjármagn og miðlun upplýsinga. Fjórða valdið og hagsmunabarátta Nokkrum dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna heyrði ég auglýsingar þar sem gefið var í skyn að mögulegt aðildarferli gæti ógnað yfirráðum Íslands yfir orkuauðlindum sínum. Sama orðræða átti sér stað á ýmsum miðlum. Sem fyrrverandi orkumálastjóri og staðfastur talsmaður fyrir íslensku eignarhaldi á auðlindum landsins hef ég oft gagnrýnt hvernig fyrri stjórnvöld hafa innleitt orkupakka Evrópusambandsins. Sú pólitíska vegferð hófst hins vegar fyrir áratugum. Að setja slíkt fram sem nýja áskorun í rétt fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu var því í besta falli misvísandi framsetning. Fullyrðingar um stórfellda lækkun matarverðs voru jafn misvísandi hinum megin. Tollar eru mjög mismunandi eftir vöruflokkum og áhrif tollalækkana á endanlegt verð sömuleiðis misjöfn þó að samkeppni spili einnig hlutverk í vöruverði. Bæði dæmin sýna hvers vegna það er varasamt að setja tvær andstæðar fullyrðingar hlið við hlið og kalla það jafnvægi í opinberri umræðu. Umfjöllun má ekki einfaldlega vera endurómun á röksemdum stríðandi fylkinga. Rýna þarf bæði röksemdirnar og gögnin sem þær byggjast á og kanna hvað stenst skoðun. Hér gegna fjölmiðlar, sem gjarnan eru nefndir fjórða valdið, lykilhlutverki. Til að geta veitt stjórnmálum og öðrum valdhöfum raunverulegt aðhald þurfa þeir svigrúm og burði til sjálfstæðra rannsókna og greininga. Hlutverk þeirra er ekki bara að rétta fólki hljóðnemann. Alvarleg staða fjórða valdsins Þess vegna eru tíðindin um að RÚV og Sýn dragi saman seglin umhugsunarverð fyrir samfélagið. Þessi þróun, sem hefur lengi verið á einn veg, hefur veikt greiningarhæfni og fagþekkingu fjölmiðla og þar með deyft eitt mikilvægasta aðhaldsvald lýðræðisins. Án sterkra fjölmiðla bjóðum við þeirri hættu heim að fjölmiðlar magni raddir þeirra sem hæst láta og hafa mest fjármagn. Með veikum fjölmiðlum minnkar getan til að rannsaka fullyrðingar, leiðrétta rangfærslur og veita valdinu aðhald þegar mest á reynir. Kannski þarf að endurskoða hvernig ríkið styður við fjölmiðlun í ljósi þess að núverandi kerfi virðist ekki veita viðspyrnu. Ein tilraun væri að beina auknum stuðningi til minni ritstýrðra miðla með litla yfirbyggingu og áherslu á rannsóknir og dýpri greiningar. Verkefnin framundan þola enga bið Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur nú fyrir. Hana ber að virða að fullu, snúa bökum saman og horfa fram á veginn. Hana má þó ekki túlka sem almennt umboð fyrir óbreyttu ástandi. Kosið var um eitt afmarkað mál; hvort hefja skyldi aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Stóru verkefni samfélagsins standa hins vegar eftir og ljóst að þau brenna á fólki þvert á fylkingar. Þar má nefna lækkun verðbólgu og efnahagslegan stöðugleika, víðtæka sátt um eignarhald og sanngjarnan ábata af nýtingu auðlinda, trausta framtíð matvælaframleiðslu og sókn í nýsköpun, menntun og tækniþróun. Jafnframt þarf að standa vörð um frelsi og frið með öflugri þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. Þessi verkefni þola enga bið og þurfa ríka athygli stjórnmálanna. Nýtt þing og lærdómur náttúruhamfara Alþingi verður sett 8. september. Þar sitja 63 þingmenn sem hafa verið kjörnir til valda og nú reyndir á hvernig farið verður með valdið. Fólk hefur litla þolinmæði fyrir þrasi og átökum. Það vill samhentar aðgerðir og árangur. Við vitum að Íslendingum gengur vel að vinna sem ein heild þegar náttúruhamfarir eiga sér stað. Þá bregðumst við hratt við, samhæfum aðgerðir og fylgjum þeim eftir þar til hættan er liðin hjá. Þessa dagana skekja fjárhagslegir skjálftar mörg heimili. Nú þurfum við sama kraft, takt og samheldni í viðbrögðum til að bæta stöðuna. Ríkisstjórnin lofaði fyrir kosningar að taka á verðbólgunni með sleggjunni og tíminn er að renna út. Það verður að gera betur. Stjórnarandstaðan þarf á sama tíma að veita aðhald, leggja til raunhæfar lausnir og samvinnu til að sýna að við getum þetta sjálf. Nú þarf breiðari samstöðu á Alþingi Það er kominn tími til að sækja í þá hefð sem þekkist meðal annars í Noregi, þar sem samningar og málamiðlanir milli flokka skipa ríkari sess. Við gætum gert meira af því hér með því að hefja samtalið fyrr, skilgreina sameiginleg markmið strax við upphaf þings og leita breiðari samstöðu um langtímaverkefni. Ganga mætti enn lengra í samvinnu með því að stokka upp í nefndarstarfi með þeim hætti að stjórnarandstaða komi meira að málum og samstarf þéttist. Slík samvinna þarf hvorki að þagga niður eðlilegan pólitískan ágreining né draga úr mikilvægu hlutverki stjórnarandstöðunnar. Við þurfum ekki að vera sammála um allt til að geta unnið saman að markmiðum sem eru stærri og mikilvægari fyrir fólkið í landinu en metnaður einstakra flokka. Nú þarf samvinnu og sátt. Umfram allt þarf að láta verkin tala. Ekki bara hver fer með valdið; heldur hvernig farið er með það Undanfarin misseri hafa minnt okkur á að það skiptir máli hver fer með valdið, hvort sem það birtist í stjórnmálum, fjölmiðlum eða atvinnulífi. Ekki síður skiptir hins vegar máli hvernig farið er með valdið. Það er mikilvægt að hafa augun á hvoru tveggja þegar við tökumst á við verkefnin framundan og byggjum til framtíðar. Traust, samheldni og velferð samfélagsins veltur á því. Höfundur er þingkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Hrund Logadóttir Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
„
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar